Fálkinn


Fálkinn - 18.01.1936, Side 3

Fálkinn - 18.01.1936, Side 3
F Á L K I N N 3 VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Vilh. Finsen og Skúli Skúlason. Framkvæmdastj.: Svavar Hjaltested. Affalskrifstofa: Bankastræti 3, Reykjavik. Sími 2210. Opin virka daga kl. 10—12 og 1—6. Skrifstofa i Oslo: A n t o n S c h j ö t h s g a d e 14. BlaSiS kemur út hvern laugardag. Askriftarverð er kr. 1.50 á mánuði; kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftanir greiðist fyrirfram. AuglýsingaverÖ: 20 aura milliméter. Herbertsprent prentaði. Skraddarajiankar. Þrált fyrir alt hefir óróinn eða óttinn, seni ávalt er að breytast og vaxa, náð almennri útbreiðslu í nútímaheiininum, alveg eins og hjartveikin í New York og' tæringin í París gerir, þrátt fyrir framfarir læknislistarinnar. Að sleptum þeim manneskjum sem sofa, hlekkjaðir eins og þrælar við sitt liðna líf, eru þeir fáir, sem ekki liafa mist sálar- frið sinn. Allir reyna eftir besta megni að ltöndla gæfuna. Sumir halda sig ná henhi í kapphlaupinu um heims- gæðin, en aðrir í kyrðinni og friðn- um. Hinir fyrri eru ágengir, hinir síðari latir. Aðrir reyna að temja sjer göfugar og liáleitar dygðir. En öllum er glötunin vís ef þeir gleyma þessum einföldu atriðum: að pen- ingar eru peningar, að nautnin fullnæging til þess að hrekja á burt leiðindin .. Ástæðan lil þessa er ekki sú, að taugar nútímamannsins sjeu næmari en þær voru; mann- kynið hefir engu tapað af þrótli sínum eða greind. Sannleikurinn er sá, að það er líkt ástatt fyrir mann- inum og ferðamanni sem lendir í óveðri uppi í fjöllum. Maðurinn er í þann veginn að uppljfa bylt- ingu og fær höfuðsvima. Hann er einsog sjóveikur aumingi í stórasjó. Siðustu tíu árin hafa visindin, iðn- aðurinn, vinnuaðferðirnar opnað mannkyninu óendanleg valdsvið. Maðurinn ræður yfir orku, sem hann ræður eftir vild, en gerir sjer ekki fidla grein fyrir hvernig hann eigi að nota hana og titrar eins og barn, sem falið hefir verið að stjórna stóru orkuveri. Og um leið hefir hið gamla, sem þótti óbrigðult, mist til- trúna. Þreyttur eftir liernaðinn og afleiðingar hans, er maðurinn stadd- ui' i óvissu og bregst sjálfstraustið. í rauninni vill fólk ekki viður- kenna þetta, þó að það kvarti. Og það vill ekki heldur viðurkenna, að djúptæk bylting og breyting sje uð gerast nú, á skeiði sem manni alls eigi finst vera byltingaskeið. Því byltingaeinkennin, sem fólk tekur eftir, gerast á yfirborðinu, snögglega og ákaft og vara stutta slund en láta eftir sig stækkaðar endurminningar. Fólk man húsin sem brend voru, rika sem gerðir voru iireigar og höggstokkana, sem roðn- ir voru i blóði. En byltingarnar í djúpinu gerast hægar. Þær eru stund- um aldir á leiðinni og þá loksins er þeim er lokið, hafa menn gleymt upphafi þeirra. Það er þesskonar liylting, sem valdið hefir óvissunni, sem einkennir yfirstandandi tíma. Strowsky. FRAKKNESKIIt FASISTAR. Myndin hjer að ofan er tekin við gröf ókunna hermannsins undir Sig- Lirboganum í Paris. Sjást þar nokkr- ir menn úr flokki frakkneskra fas- ista, sem nefna sig „Eldkrossinn“ FLOTARÁÐSTEFNAN í LONDON sem nú stendur yfir á að gera til- lögur um hvernig flotamálum heims- ins — eða rjetlara sagt stórveld- anna — skuli hagað þegar samkomu- lagið sem gert var í Washington fyrir tíu árum, er rúnnið út. Búist er við, að mjög erfitl verði að ná nýju samkomulagi, því að Japanar og fleiri gera kröfu til þess að mega auka flota sinn. Hjer að ofa.n er mynd af húsinu, sem fiotamálaráð- stefnan er haldin í og heitir það Clarence House i London. Ríkin, sem taka þátt í ráðstefnunni eru: Eng- land, Frakkland, Bandarikin, Ítalía og Japan. og er foringi flokksins, da la Rofjue ofurst fremstur. Eldkrossmenn hafu látið allmikið á sjer bera í vetur og hefir verið búist við byltingartil- raun af þeirra hálfu. aff i Nebraska var stolið vind- myllu, sem var tuttugu metra há og í Ohio var stolið húsi, tvílyftu, með öllu sem í þvi var, þar á meðal slórri fjölskyldu. -----x---- aff hinn frægi rithöfundur H. G. Wells þakkar það tilviljuninni að hann varð rithöfundur. Hann fót- hrotnaði þegar hann yar barn og lá þá í rúminu í nærri því ár og þá var það, sem hann fór að lesa bæk- ur og einsetti sjer að verða rithöf- undur. Hann hefir samið 75 skáld- sögur en segist hafa nóg efni i nýj— ar, þó hann lifði 150 ár enn. Hann getur orkt hvar sem er, í járnbraut- arlestinni, í baðfjörunni og stund- um fer hann á-fætur um miðja nótt lil þess að festa á pappírinn eitt- hvað nýtt, seiu honum dettur i hug. -------------------x---- aff litvarpsstöð ein í New York nolar hvorki klukkuslátt, fuglakvak eða tónsmíð eftir Jón Leifs sem þagnarmerki heldur þrumu, sem framleidd er með rafmagnsáhaldi á útvarpsstöðinni. Hlustendum þykir þetta gott lil þess að vakna. -------------------x-... aff Jessie Clyde Cavénder, sem er 15 ára og á heima i Ameríku gift- ist tvemiur mönnum sama daginn. Hún átti tvo unnusta og giftisl öðr- um snemma um morguninn en iðr- Einaf Kr. Guðmundsson múr- arameisiari, Ljósvaliagölu 32, verður 50 ára 2't. þ. m. Halldór Jónsson kaupm. frá Varmá, Hverfisg. 90 varð 65 ára 16. þ. m. aðis samstundis eftir og giftist hin- um seinni part dagsins. Fyrri mað- urinn var Ivítugur en hinn 39 ára. -----------------x---- aff ungfrú ein í Bandaríkjunum, Laura Hampton Hover að nafni, og dóttir riks olíukongs í Los Angeles, giftist forríkum New York-búa, L. Loomis að nafni, klukkan l() árdegis að morgni |>ess 12. desember s.l. En morguninn eftir höfðu þau fengið skilnað. Fyrir þessa' fljótn afgreiðsln á bóndanum var kvensan fræg um alla Ameriku •— einn dag. Því þá kom önnur, sem gerði betur. ----x---- aff i (ilasgow hafa fundist i reitum kerlingar einnar, sem var systir Mendeísohns-Bartholdy, frnmrit að ýmsum lögum eftir hann. Voru þau engum kunn áður, ekki einu sinni i afbrigðum. Talið er víst, að þessar tónsmíðar sjeu gerðar árið 1829. Söngvarinn McCormack hefir sung- ið nokkur af þessuni lögum i fá- mennum hóp listþekkjenda og ber þeim saman um, að þau geti ekki verið eftir annan en Mendelsohn. -----------------x---- aff nú þykir Ameríkumönnum ekki nógu fínt að láta gera gerfitennurn- ar i sjer úr gulli. Þeir nota i stað gnllsins eðalsteina, og eru komnir að þeirri niðurstöðu að það sje miklu áferðarfallegra, því að gullið sje ljótt ásýndar ef maður opni munninn. Og svo vinna þeir það við þetta, að skrokkurinn er miklu verðmætari, þegar liann lirekkur upp af — sál- inni. ——x------ aff nálega 25000 Gyðingar fluttu úr Póllandi til Palestínu árið sem leið. Arið 1934 fluttust ekki nema 13,500 manns frá Póllandi lil landsins lielga.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.