Fálkinn


Fálkinn - 18.01.1936, Blaðsíða 5

Fálkinn - 18.01.1936, Blaðsíða 5
F A L li 1 N N Jón H. Guðmundsson: HÆNSNAKOFI OG GAMALL MAÐUR. Uppi í holtinu var liænsnakofi. Hann var klæddur ulan nieð tjöru- pappa, óg vindar liöföu leikið um hann svo óþyrmilega, að rifnaö liafði sumstaðar út frá naglaförum og skein í berar kassafjalirnar, og pappatætlurnar gáfu þeim utanundir. Jeg negldi pappann niður eitt kvöld- ið. Jeg átti af tilviljun leið þar um og það var dimt. Það logaði á olíulampa inni hjá fuglunum. Hann bar daufa birtu út um rúðubrotið, sem auðsjáanlega hafði verið skorið óhönduglega eða með ónýtum glerskera og skell fyrir li? bráðabirgða og fest með ryðg- uðum nöglum og einn hafði brotnað. Örskamt frá kofadyrunum var steinn, flatur að ofan, með ofurlitlu graskögri yst á brúninni, algrænu á sumrin og vinalegu. Jeg hugsaði stundum um að lilúa svo að þessum gróðri, að hann þekti smám saman yfirborð steinsins. En jeg hugsaði hara um þetta og á liverju ári mink- aði balinn og einn daginn, þegar jeg kom þangað, var hann alveg horfinn. Á morgnana sat jeg stundum á steininum og horfði á hænsiiakofann og útsýhið, fjöllin og voginn og fisk- reitina, þar sem fólkið keptist við að breiða í þerrinum, skipin og bátana úti á firðinum og snjófönn- ina i Esjunni, og Jiá kom gamli mað- urinn oftast labbandi yfir holtið að kofanum sínum til þess að huga að hænsnunum. Jeg tók strax eftir því, að hann horfði ekkert vinalega til mín. Alveg eins og' honum væri ami að návist minni. Hann leit öðru livoru út undan sjer á mig, rjett eins og hann væri að gá að því, hvort jeg sæti nú Jiarna ennþá. Og alt af var hann eitthvað að dunda inni i kofanum eða utan við hann, Jiangað lil jeg stóð upp og gekk burtu. Yrði mjer svo litið við, þá sá jeg, að hann var sestur á steininn. Það gilti einu, hve lengi jeg sat, aldrei fór hann á und- an mjer, einS og hann gæti ekki yfirgefið holtið án þess að hafa setið á steininum. Og J)að fór svo, að mjer fanst jeg vera á annars manns eign og meina honum að neyta rjettar síns. Einn morgun um haustið fann jeg eina pútuna hans. Hún stóð i skjóli við kofann, aum af kulda. Jeg tók hana upp og settist með hana á steininn og yljaði lienni á fótunum. Svona sat jeg, þegar gamli maðurinn kom, og var liann óvenju snemm.i á ferð. Hann gekk rakleitt til mín og stóð og horfði ó okkur nokkra stund. Það var alt annar svipur en vanalega. Augun voru vot og mild, og tortrygnin og andúðin gersamlega horfin. „Jeg fann hana hvergi í gærkvöldi, greyið“. Annað sagði hann ekki og tók við hænunni. Eftir J)etta kom hann altaf og sett- íst við hliðina á mjer. Aldrei sagði hann neitt að fyrra bragði, en sat og horfði ávalt í sömu átt, austur. Einu sinni sagði jeg: „Það er fall- egt hjerna“. Hann leit á mig, og mjer sýndist fyrirlitning lýsa sjer í svipnum. ‘ „Hvað?“ „Útsýnið". Hann hjelt áfram að horfa í austur. „Ertu fæddur og uppalinn hjerna?“ spurði hann svo, án þess að lita á mig. „Já“. „Jæja“. Hann horfði snöggvast nið- ur yfir hæinn. „Þykir þjer J)á ekki bærinn falleg- ur líka?“ „Ekki beinlínis fallegur, en hann er altaf að stækka og verða myndar- legri. Hann þenur sig út, og J)að er meira að segja farið að kalla hann borg“. Og jeg fann l)að núna alt i einu, að jeg var töluvert hreykinn af borginni minni. Gamli maðurinn varð raunalegur á svipinn. „Já, hann stækkar og þenur sig út og gleypir alt og sogar í sig. En meltir hann það, drengur minn, verð- ur honum gott af J)essu öllu saman? Það er ekki nóg að heita fínu nafni og hafa mikið umleikis og jeta mikið, jaðalati'iðið er, hvernig manni verð- ur af því öllu saman. Því gleymið þið stundum, drengur minn“. Jeg svaraði þessu engu. Mjer'þótli það vera eins og livert annað raus i gömlum manni. Hann var eflausl sveitamaður, troðfullur af fyrirlitn- ingu á Reykjavik, þessari húsaþyrp- ingu niður við ströndina og gróður- litlu holtunum í kring, bænum, sem var altaf að stækka og soga til sin ungviðið úr sveitunum. Borginni, þar sem fólkið vann ekki nema part úr deginum og oft ekkert, drakk svo og dansaði og rölti tilgangslaust á ryk- ugum götunum og eyddi í fánýtar dægrastyttingar meiru en því, sem ineðálbóndi gat lagt fyrir í sæmilegu árferði. Hann var auðvitað oft búinn að bera þetta saman við lieilnæmi sveitaloftsins og trausta og innihalds- ríka en fábreytta bændamenninguna, þennan gamla arf, sem einn varmegn- ugur að bjarga framtíð íslands, væri honum haldið við og hann aukinn og fengi staðist erlend og hálferlend áhrif ])essarar uppvaxandi borgar og annara bæja á landinu, o. s. frv. Jeg kannaðist við þetta all saman, hafði oft lieyrt það og bar litla virð- ingu fyrir því. Jeg var fæddur og uppalinn í höfuðstaðnum og vissi, að þó að houurn væri í mörgu ábóta- vant, var hann eitt besta vigi ís- lenskrar menningar, þar sem ríkíi djúpur skilningur á mikilvægi sveit- anna og glögt auga fyrir vankostum þeirra, strjálbýli og skipulagsleysi. Þessi misvaxna borg tók við erlend- um áhrifum, sem smárn saman runnu í eitt við íslenska menningu og auðg- aði bana. Jeg hlaut l)ví að vera andstæðing- ur gamla mannsins, þó að mjer ann- ars væri hlýtt tii lrans. Svo var það eitt kvöld, að jeg af tilviljun gekk með stúlku yfir holtið. Jeg þekti hana lítið, hafði kynst henni fyrir nokkrum vikum og við sjaldan verið ein saman. Það sem dregið hafði niig til að vera sam- vistum við hana, var hispurslaust fjör hennar og tepruleysi. Hún var langt frá því að vera falleg, varln einu sinni lagleg, en liún var geð- þekk, og mjer þótti gaman að tala við hana. Hún var róttæk í skoðun- um og það svo, að mjer ofhauó stundum. Hún hjelt því hiklaúst fram, að kvenfólkið ætti að njóta jafnrjettis við karlmenn á öllum sviðuin þjóð- fjelagsins. Þær gætu gegnt hvaða embættum, sem væri, starfað í öll- um greinum iðnaðar, jafnvel stundað sjóinn, orðið hásetar, vjelakonur, stýrikonur og skipstýrur. Þegar um störf væri að ræða, ætti ekki að spyrja um kynferði, heldur hæfileika, mentún og lægni. Jeg hjelt því liins- vegar fram, nokkuð til að stríða henni, en þó í fullri alvöru, að all- an þorra kvenna mundi skorta þrek og sjálfstæði ti! þess að inna þessi störf af hendi jafn vel og karlmenn gerðu. Þær væru til annars skapaðar. Þeirra væri að eiga börn og ala þau upp, auðvitað undir tilhlýðilegu eftir- liti karlmannanna, og einmitt þetta hlutverk liefði mótað þær svo á öll- um tímum, að annað liæfði þeim ekki. Hún reiddist þessum ummæluin mínum og talaði i sig hita. Það væri rjettast, að kvenfólkið gerði uppreisn. ' steypti karlmönnunum af stóli og tæki alt í sínar hendur. Þegar hjer var komið, þótti mjer ekki vænlegt að halda þessu karpi lengur áfram og leiddi talið að öðru efni. Við settumst ó steininn skamt fra liænsnakofanum, og jeg fór að segja henni frá gamla manninum. „Þekkir þú hann afa?“ spurði hún alveg undrandi. Jeg varð líka hissa, þó að þetta væri i sjálfu sjer ekkerl einkenni- legt. Og jeg gat ekki að því gert, að mig langaði lil að vita meira um gamla manninn, fyrst svona hittist á, að hún væri dótturdóttir hans. En jeg fann það strax, að ekki var jafn- auðvelt að fá hana til að tala um afa sinn eins og rjett kvenna í þjóð- fjelaginu. Þó tókst mjer það með mátulega ágengum spurningum. Og þegar hún var byrjuð, þá var eins og það brytist fram úr henni. Þau liöfðu átt heima i sveit. Hann liafði verið bóndi á eignarjörð, sæmi- lega stæður. Hann var þar fæddur og uppalinn, og þar höfðu forfeður hans búið á aðra öld. En þegar konan hans dó, vildi dóttir þeirra endilega flytja til Reykjavíkur. Og hún var að, þangað til hann gafst upp, ljet undan, seldi jörðina og keypti timburhús i höfuðstaðnum. Þar giftist dóttir hans og bjó i þessu húsi, þó að það væri gamalt og leið- inlegt. Hún hafði ekki brjóst í sjer lil að hryggja gamla manninn meira en orðið var. En auðvilað höfðu þau lielst viljað byggja annað nýtísku hús. Afi hennar hafði ekki fengist til að láta setja miðstöð og bað í húsið. Salerni var ekki einu sinni inni. Hún sagði, að þeir væru svo andstyggi- legir, þessir útikamrar. Og svona hjelt hún áfram að telja raunir þeirra mæðgna og baráttu við gamla manninn, þangað til mjer fór að þykja nóg um. „Og svo er ómögulegt að fá hann til þess að hætta við þessi hænsni. þó að mamma hafi margbeðið hann um það. En nú kvað bráðum eiga að fara að leggja hjer götu, og þá má hann til með að rífa kofann og drepa hænsnin". Eftir þetta kvöld vorínn við sjald- an saman, og nokkru seinna fór jeg vestur um haf, til Ameríku. Jeg hafði ætlað mjer að setjast þar að fyrir fult og alt, en festi þar ekki yndi og hvarf heim eftir nokkur ár. Jeg var kominn ó þá skoðun, að hvergi annarsstaðar en í Reykjavilc ætti jeg heima. Þar kunni jeg best við mig. Þar væri þvi rjettast að lifa lífi sínu. Mjer datt gamli maðurinn aldrei í hug allan þennan tíina. En einu sinni inintist jeg hans alt i einu. Það var, þegar jeg af tilviljun heyrði nokkra menn vera að tala um, hvort það myndi ekki borga sig að setja á stofn stórt hænsnabú. .Teg gekk strax á leið upp i lioltið, þangað sem kofinn hafði staðið. Hænsnakofinn var horl’inn, stóri steinninn var þar ekki lengur. Breið gata, falleg, nýtísku hús, garðar ineð ilmandi gróðri, liöfðu tekið sjer ból- festu, þar sem jeg og gamli maður- inn sátum forðum dága og unga stúlkan sagði gröm frá kenjunum hans afa síns. Mjer þótti skeimnlilegt að sjá þetta alt, en varð þó fyrir vonbrigð- um, saknaði einhvers, og mig langaði til þess að fá að vita eitthvað um afdrif gamla mannsins. Hann var skyndilega orðinn kunningi, sem jeg hafði gleymt að minnast, og vildi nú óður fá einhverjar frjettir af. Jeg fann ekki annað ráð en að fara þangað, sem hann átti heima, þegar jeg fór af landi burt. Þar var sami skósmiðurinn í kjallaranum og áður. Jeg gerði- mjer erindi inn til hans. Jú, hann mundi svo seni vel eftir gamla mánninum. Hann hafði strax, þegar dóttir hans giftist, flutt sig niður i herbergisskonsu víð lihðina á verkstæðinu, og varla viljað vera annarsstaðar, þegar hann þá ekki var hjá hænsnunum. En svo kom að þvi, að kofinn mátti ekki lengur standa. Þó hafði gamli niaðurinn verið þungur á brún og fátalaður. Eitt kvöldið leit hann imi ti) skó- smiðsins og sal þar drykklanga stund. Hann var með eitthvað vafið inn i tusku. „Jeg spurði gamla manninn“, sagði skósmiðurinn, „þegar hánn var bú- inn að sitja lengi þegjandi, hvort hann væri nú á leið upp í kofu. Hann svaraði því játandi og bætli við: „Það á að rífa lcofann á morgun. Þetta verður í síðasta sinn“. „Svo sat liann aftur langa stund og þagði, en mjer fór að þykja það hálfleiðinlegt, af því að mjer finst ekkert gaman að hafa menn hjá mjer, ef þeir steinþegja allan tim- ann, og jeg spurði þá, til að segja eitthvað, hvað liann. væri með í tuskunni þeirri arna. Hann sVaraði ósköp dræmt og sagði, að það væri nú svo sem ekki mikið. „Vel er þuð innbrotið11, sagði jeg, og langaði eiginlega til þess að sjá þetta. Gamli maðurinn tók tuskuna utan af þvi, og það var þá bara ómerkileg fjöl“. Það var auðsjeð á skósmiðnum, að hann hafði orðið fyrir vonbrigð- um, og jeg spurði hann því, hvers- konar fjöl þetta hefði verið, og hvað gamli maðurin niyndi hata ætlað að gera við hana. ,,Ekkert“, sagði skósmiðurinn. „Ilann hefir verið að leika sjer við að skera í liana, þegar hann var einn hjá pútunum. Það átti vist að vera mynd af liúsum á henni og svo eitthvað annað krass, — stafir, sem V jeg skildi ekki, og jafnvel líka liestar. kýr og kindur". Skósmiðurinn leit á mig og brosti að einfeldni gamla mánnsins. . Hvað varð um þessa fjöl?“ „Gamli maðurinn spurði, hvort jeg vildi eiga fjölina. og mjer var svo sem sama og þakkaði honmn f.vrir, af því að jeg sá, að það var eins og honum fyndist hann gefa mjer löluvert merkilegan grip. Hann var orðinn dálítið einkennijegur í seinni tíð, karlgreyið. Jeg man ekk ' ert, hvert jeg henti þessari fjöl, en ef yður langar til að sjá liana, skal jeg leita að henni“. Skósmiðurinn stóð upp og fór að leita í allskonar drasli, sem lá í einu horninu. Loks fann hann fjolina, þurkaði af henni mestu óhreinindiu og fjekk m,jer hana. Hún var várla meter á lengd og álika breið og ven.juleg rúmfjöl. Á

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.