Fálkinn - 09.05.1936, Page 7
F Á L K I N N
7
Nýlega var opnuð í Kaupmanna-
höfn stór íþróttasýning, „Idræt og
sport“ og er þar gefin alhliða mgnd
af íþróttahreyfingu nútímans. Á
sýningu þessari hafa Þjóðverjar
stórt líkan af íþróttavöllum þeim
við Berlín, sem notaðir verða til
Olympsleikjanna i sumar og er
myndin hjer til hægri af þessu lík-
ani. Sjest þar j miðjunni aðal leik-
vangurinn og ýmsir minni leikvellir.
1 hinni nýju sundhöll á Friðriks-
bergi við Kaupmannahöfn var fyrir
skömmu háð sundmót milli flokka
frá Berlín og Kaupmannahöfn, bæði
kappsund ogidýfingar. Á myndinni
hjer að neðan sjest Suzanhe Heinze,
sem talin er að vera líkleg til sigurs
á Ölympsleikjunum næstu, og þýzk-
austurríski sundkappinn Hans Hoff.
Tóku þau bæði þátt í mótinu.
I
Myndin hjer að ofan sýnir blaða-
menn vera að tala við ítalska hers-
höfðingjann Santini, eftir einn stór-
sigur hans í Abessiníu. Við hliðina
á honum sjest Fuller hershöfðingi,
sem er frjettaritari „Daily Mail“ í
Abessiniu og næst eina stúlkan, sem
gegndi frjettaritarastörfum í
ófriðnum.
Myndin til hægri er af Grænlands-
farinu „Julius Thomsen“, sem er
flutningaskip kryölítnámanna í
Grænlandi. Með skipinu fór stór
hópur ungra manna, sem á að
vinna í námunnm í 2—Ó ár. Efst til
hægri sjest hópur af farþegunum.