Fálkinn - 01.08.1936, Blaðsíða 8
8
F Á L K I N N
YHft/fU
(£/U4bURHIR
M sem allir dugandi drengir ættu að knnna.
Ofurlítið um björgun og lífgun.
Ef svo ber undir að nauðsyn ber
til að bjarga einhverjum frá drukn-
un þá mundu umfram alt, að hjálp-
in er því betri því fljótar sem hún
kemur. Vertu ekki að hugsa þig um
of lengi, en fleygðu á svipstundu
fötunum af þjer og syntu eftir þeim
nauðstadda, ef þú ert maður til að
bjarga honum. Og hafirðu ekki tíma
til að fara úr fötunum, þá kastaðu
þó af þjer skónum þvi að það ljettir.
Ef sá nauðstaddi er mjög aðfram-
kominn eða jafnvel meðvitundarlaus,
er hægast að bjarga honum eins og
sýnt er á I. mynd. Munið að halda
honum þannig, að munnurinn og
nefið standi upp úr og helst alt höf-
uðið. Á II. mynd er sýnd önnur að-
ferð. Björgunarmaðurinn tekur mann-
inn með báðum höndum utan á háls-
inn og syndir baksund með fót-
unum. En ljettasta aðferðin er sýnd
á III. mynd, en hana er aðeins hægt
að nota, þegar sá sem verið er að
bjarga er rólegur og vill láta hjálpa
sjer. T. d. þegar einhver er orðinn
uppgefinn á sundi, svo að hann þarf
hjálpar í land. Hjálparmaðurinn ýtir
þá liinum á undan sjer á venjulegu
bringusundi.
Þegar komið er i land með félaga,
sem kominn hefir verið að druknun
er það erfiðasta eftir, nfl. að gera
lífgunartilraunir á honum. Hann er
jafnaðarlega meðvitundarlaus. Það er
vitanlega ekki hægt að kenna þetta
í stuttri grein, helchir þarf að læra
það ítarlega af góðum leiðbeiningum
og kennara. Lítið á IV. mynd. Dreng-
urinn meðvitundarlausi hefir verið
lagður á brjóstið, til þess að vatnið
sem hann hefir svolgrað fái útrás.
Björgunarmaðurinn glennir sig á
linjánum yfir drenginn, og þrýstir
með báðum höndum fastar og fastar
á bakið á honum, þangað til öll lik-
amsþyngdin er komin á handleggina.
Á þennan hátt er reynt að þrýsta
lungunum saman á eðlilegan hátt,
eins og þau hreyfast þegar maður
andar frá sjer. Með því að sleppa
liöndunum af baki hins druknandi
lætur maður lungu hans þenjast út
aftur. Þetta á að endurtaka hægt
livað eftir annað. Það er talið, að
mátulegt sje að gera 10—17 andanir
út og inn á mínútu.
Þetta eru vitanlega ekki nema allra
einföldustu atriði þessarar greinar
sundkunnáttunnar, en hún er mikil-
væg. Þetta eiga allir að kunna, en
þeir eiga að kunna meira. Ef þið
hafið lært að synda ættuð þið um-
fram alt að biðja um sjerstaka til-
sögn eða komast á námskeið, þar sem
lcent er að bjarga frá druknun og
gera lífgunartilraunir á þeim, sem
langt eru leiddir.
Sveiflubolti — skemtilegnr leikur
fgrir tvo.
Á fjögra metra langt snæri er lát-
inn málmhringur, sem er svo rúm-
ur að hann geti runnið fram og til-
baka á snærinu þvingunarlaust. í
þennan hring er festur fótbolti, í
nál. 50 sentimetra langri, sterkri
snúru. Þátttakendurnir taka livor í
endann á snærinu og setja sveiflur
á það. Nú er um að gera fyrir hvorn
aðilann að sveifla snærinu þannig,
að knötturinn hitti andstæðinginn,
en andstæðingurinn reynir auðvitað
að varast að verða fyrir höggi en
koma því á hinn.
Það er undir góðri æfingu komið
hvernig úrslitin verða í þessum leik.
í hvert sinn sem maður liittist af
knettinum, telst eitt stig, og sá sem
hittist fyrir tíu sinnum hefir tapað
leiknum.
Um daginn var 100 ára dánardags
þess manns, sem OFti þjóðsöng
Frakka, minst um alt Frakkland.
Hann hjet Rouget de Lisle og kvæð-
ið orti hann, er hann var hermaður
i Strassburg árið 1792. Honum hefir
verið reistur veglegur minnisvarði í
því þorpi, þar sem hann var fæddur.
Setjiðþið saman!
1.
2.
3.
4.
5.
6.
7.
Þrenn verðlaun:
1. ísl. kauptún.
2. Mannsnafn.
3. Jurt.
4. í skipum.
5. Mannsnafn.
6. Greiddu!
7. Endurnýjun.
8. Borguðu.
9. Mannsnafn.
10. Mannsnafn.
11. Aumt.
12. Mannsnafn.
87.
kr. 5, 3 oo 2.
8.
9.
10.
11.
12.
a—agn—ia ð—>ar—a r—ar—b o rg—b o r g
—ell—gním—Jgreidd—íhaf—i—i—i—it
ing—ket—lið—netl—mes—rúm—sælt
—u—ur—ur—ve—yng.
Samstöfurnar eru alls 29 og á að
setja þær saman i 12 orð í samræmi
við það sem orðin eiga að tákna,
þannig að fremstu stafirnir í orð-
um, taldir ofan frá og niður og öft-
ustu stafirnir, taldir að neðan og
upp og myndi nöfn fjögra kornteg-
unda.
Strykið yfir hverja samstöfu
um leið og þjer notið hana i orð og
skrifið nafnið á listann til vinstri
Nota má ð sem d og i sem í, a sem
á, o sem ó og u sem ú.
Sendið „Fálkanum“, Bankastræti
3 lausnina fyrir 15. sept. og skrifið
nöfnin í horn umslagsins.
Að hnýta hnúta.
4 *, . n ■.
ö. &) j
111111 **•* '■**-
' ^
Kunnið þið að hnijta hnúta?
Ykkur þykir þetta kanske skrítin
spurning. Því að allir drengir geta
lmýtt einhverja hnúta. Auðvitað. En
hvaða hnúta? Eru það linútar, sem
duga á þeim stað, sem þeir eiga að
vera, en láta elcki undan þegar á
reynir.
Nú ætla jeg að sýna ykkur nokkra
aðra hnúta — „stik“ og „knob“ sem
sjómennirnir kalla. Jeg lærði þá af
gömlum sjómanni, svo að það má
treysta þeirn. Það eru hnútar sem
segja sex og þá verðið þið að kunna.
Lítið þið nú á myndirnir og reynið
að hnýta þá á seglgarn eftir mynd-
unum.
Á fyrstu myndinni sjáið þið hnút,
sem í rauninni er undirstaða allra
hnúta. 2a sýnir flagglínuhnút — eina
rjetta hnútinn til að festa flagglín-
una í flaggstagið. 2b sýnir annan
flagglínuhnút, enn traustari. Á 3 sjá-
ið þið „stólpahnút", sem er traustur
linútur, þegar maður vill búa tit
l>kkju. Þannig lykkjur eru notaðar
á fangalínum á bátum, til þess að
setja um stólpa á bryggjuuum. Á 4.
mynd sjest örugg aðferð lil þess að
hnýta saman tvo kaðla. Er þetta
kallað enskur hnútur. Loks sjest á
5. mynd hnútur, sem notaður er til
að gera lykkju á miðjan streng, án
þess að þurfa að bregða enda gegn
þegar linýtt er.
Munið þið nú eftir a@ læra þessa
hnúta eftir myndunum, því að þsð
getur altaf komið fyrir, að þið þurf-
ið á þeim að halda.
Maður nokkur í Michigan var svo
óheppinn um daginn að þurka sjer
um hendurnar á ameriska flagginu.
Fólk, sem sá þetta, kærði hann fyrir
lögreglunni og maðurinn var tekinn
fyrir. Hann sagðist hafa keypt not-
aðan bíl, fundið flaggið í honum og
þurkað olíu af höndunum með flagg-
inu, alveg í hugsunarleysi. Dómar-
inn blaðaði fram og aftur í lögbókinni,
cn fann engan lagastaf, sem hægt
var að dæma hinn seka eftir. Þá
stakk einhver upp á því að mað-
urinn skyldi dæmdur til þess að
ganga fram hjá lögreglustöðinni og
talca ofan fyrir ftagginu í heilan
mánuð. Þetta gekk hann inn á -— og
þurkar sjer líklega ekki í næsta
skiftið um liendurnar á ameríska
flagginu.