Fálkinn


Fálkinn - 07.11.1936, Page 6

Fálkinn - 07.11.1936, Page 6
6 . F Á L KI N N HANS BRÚCKENBERG: EFTIR LEIKHÚSTÍMA Nei — jeg er svo ógurlega þreytt, jeg held jeg fari beint heim. ViS höfðum horft á rússnesku óper- una „Katherina Ismailovna", það iiafði tekið talsvert á taugarnar og nú stóðum við í anddyrinu og vor- um að ráðgast um hvort við ættum að fara á samkomustað og njóía lífsins á eftir. En hún var of þreytt til þess. Vildi fá að sofa í tólf tíma að min'sta kosti. Jeg kysti hana um leið og hún hvarf inn í bílinn. „Var það nokkuð?" spurði hún. Hún tók eftir að jeg leit við. „Ekki neitt. Ekki annað en mað- ur sem fer í taugarnar á mjer. Þessi sköilótti þarna fyrir handan, dr. Sandor, þú þekkir hann víst ekki“. „.tá, svei, hann er líka viðbjóðs- legnr að sjá. Svo að mín vegna máttu gjarnan reka í 'hann hníf. Nú skil jeg liversvegna þú gengur altaf með skritna linifinn á þjer“. Jeg sagði að mig langaði til áð hregða mjer einhverstaðar inn og fá mjer kaffibolla áður en jeg færi heim, og svo afrjeðum við að hitt- ast og borða saman miðdegisverð á morgun. Hún rak höfuðið út úr bílnum um leið og hann fór af úr stað, og kinkaði kolli og brosti. Vindurinn feykti þjettu jörpu hárinu. Jeg var hamingjusamur. í fyrsta skiftium langt skeið var jeg ham- ingjusamur. Mjer fanst alt í einu að nú ætti jeg lieima í þessum ókunna bæ, alt hið hræðilega sem jeg hafði orðið að reyna síðasta árið, var koinið langt, langt á burt og fram- undan mjer lá landið, með ógrynni af allskonar möguleikum. Jeg hafði rir liöndum starf sem átti að sigra lreiminn. Og jeg var ástfanginn. Jeg fann að jeg var dálitið þreytt- ur, jeg lika. Ákvað að fara heim, en fara gangandi. Vorið hafði losnað úr læðingi fyrir fult og alt, með und- ursamlegri hressingu í loftblænum, og í görðunum á báðar hliðar stóðu kirksiberjartrjen í blóma. Ánægt og glaðvært fólk reikaði um strætin. Það liafði rignt dálitið og ljósin glitruðu á vofum stjettasteinunuin. Jeg stikaði stórum, fylti lungun af vorlofti og fann einu sinni enn live sæll jeg var. Þarna þrammaði dr. Sandor framhjá á höltum skankan- uin, jeg ljet hann gera það. Því hvað kom sá maður eiginlega mjer við? Já, jeg var ástfanginn. Ofsalega. óstjórnlega, óviðeigandi ástfanginn -h- eins og skólapiltur, Þó jeg væri kominn fast að fertugu og liti út cins og jeg væri eldri! Hárið var orðið hæruskotið og andlitið hrukk- ótt eftir þjáningarnar síðasta árið. En nú var það afstaðið. Fyrir mjer var aðeins til nútíð og framtíð. Kannal Hanna! Jeg mundi hana eins og hún var þegar hún kom lilaupandi upp brekk- una í sama bili sem jeg kom út úr skóginum. Með hárið flaksandi og blóðrjóðar kinnar, hún var alt of lít- ið klædd fyrir febrúarveðráttuna. Og við höfðum undir eins farið að tala saman, við hlóum og gerðum að gamni okkar og var jeg þó engu líkari en umrenningi. Hún hafði feng- ið mig til að koma með sjer lieim þó jeg maldaði í móinn. Um kvöldið sat jeg í baðkápunni hennar, mig verkjaði í fæturna eftir gönguna löngu og við ræddum um Oswald Spengler. Hvað þessi bær var samt fallegur! Á svona vorkvöldi. Jeg var svo frek- ur að beygja mig yfir girðingu og brjóta blómgaða möndluviðargrein af runna. Sem flóttamaður hafði jeg komið í þetta land og lifað sælustu vikurnar á æfi minni. Hanna! Jeg hafði flúið ættjörðina. Ekki með ljettu hjarta — í nærri því fjöru- tiu ár hafði jeg lifað þar, i fjögur erfið ár hafði jeg barist á vígstöðv- unum. En jeg átti enga völ, jeg varð að flýja. Þeir skutu á mig þegar jeg fór yfir landamærin. Þegar jeg fálm- aði mig gegnum skóginn í ókunna landinu fanst mjer alt mitt lif hafa orðið til ónýtis. En þegar jeg stóð uppgefinn í skógarjaðrinum og horfði yfir öldótta akrana og sá Hönnu koma hlaupandi milli fanndílanna með liárið eins og ský kringum höf- uðið, og þegar við fórum saman inn í liöfuðstaðinn — þá fanst mjer lif- ið vera að byrja. Jeg liafði aldrei haft áliuga á stjórnmálum. Jeg hafði mitt starf, það tók minn tíma og þar vann jeg mitt hlutverk. En jafnvel það urðu þeir að gera aðstjórnmálastarfi. Þeir kröfðust þess að jeg ætti að brjóta í bág við þær fáu frumreglur sem jeg hafoi sett mjer, en það gat jeg ekki. Og svo var friðurinn úti. Síðasta árið hafði verið hræðilegt. Það var ómöguiegt að kæfa endur- minningarnar frá þessum tíma. Þær lágu þarna i leyni og gægðust fram jafnvel þegar jeg var sælastur. Og nýir erfiðleikar höfðu mætt mjer í ókunna landinu, ekkert var eius og jeg hafði hugsað mjer, svo að ef það hefði ekki verið Hanna .... Tilhugsunin uin hana rak vondu hugsanirnar mínar á flótta. Það þurfti ekki nema brosið! Og Ijóm- andi sólbrendu kinnarnar! Jeg gekk upp hljóou, dimmu göturnar, fann ilminn af trjánum og votu grasinu og dreymdi eins og ástfanginn dreng. Við tvö saman------- Nú stóð jeg við hliðið á húsinu, sem jeg átti heima i, það mætti mjer stórt og svart og vott. Hafði jeg gleymt lyklunum? Rótaði i öll- um vösum, nú — þarna voru þeir. Fyrir framan mig lá portið, dimt og sóðalegt og þrepin þarna í horn- inu. Þetta var einn afundarleguleigu- bústöðunum frá því fyrir aldamót- in, þar sem stigarnir og gangarnir liggja utan á húsunum. Koldimt á kvöldin, ljólt og skitið að utan en býsna vistlegt, þegar inn var komið. Jeg hafði fengið íbúðina lijá kunn- ingja mínum, verkfræðingi þarna úr bænum, sem liafði farið til Rúss- lands og ætlaði að dvelja þar eitt ár. Jeg fann, að það blæddi úr hend- inni á mjer. Jeg hlaut að hafa rispað mig á liníf, þegar jeg var að leita að lyklunum. Þessi hnífur var einstald ólán. Hanna hafði oft furðað sig á ]iví, hversvegna jeg gengi með hann að jafnaði. En jeg hafði lært að vera varkár. Skeftið var holt að innan og í því var geymd teikningin áð uppgötvuninni — sú eina, sem til var. Jeg hafði brátt komist að því, að það var ekki aðeins í ættlandi mínu, sem menn vildu ná í þessa uppgötv- un, þó að þeir voguðu ekki að nota sömu aðferðirnar. En jeg vildi held- ur eyðileggja teikninguna, heldur deyja, en að árangurinn af starfi mínu kæmist i hendur manna, sem notuðu hann til þess að drepa sak- laust fólk í stórum stíl. En þessa afstöðu skilja ekki allir, nærri því daglega las jeg í blöðunum að heiman, að hefndin fyrir landráð mín skyldi ná mjer hvar sem jeg væri. En jeg ætlaði að þverskallast við liessum máttarvöldum, hversu sterk sem þau væri! Meö Hönnu við lilið mjer. Þegar jeg opnaði húsdyrnar var eins og öll þreyta væri horfin, jeg var ánægður og öruggur. Nú ætl- aði jeg að búa mjer góða máltið, njóta lífsins og gera áætlanir. Jeg kveikti í stofunni. Þetta var gamaldags stofa með miklu af göml- um og dýrmætum húsgögnum. Á gólfunum mjúkir, bláir dúkar, gaml- ar koparstungumyndir á veggjunum og afsteypur af forn-egyptskum myndum á við og dreif. Og svo þessi undarlega kend, sem fylgir þessum stofum, þegar eigandinn er fjarverandi. Það var þessi kend, sem kom yfir mig undir eins, glugga- tjöldin löfðu þung og dauð, húsgögn- unum illa og óeðlilega hagað og ein- hver annarleg lykt i herberginu. Fann jeg tóbakslykt? Jeg hefi mjög slæmt þefnæmi, svo jeg veit aldrei livaða lykt jeg finn. Máske eymdi enn eftir af lyktinni frá í morgun. Jeg reyki eins og fantur. Það voru víst reykingarnar sem ásamt atburðum siðasta árs höfðu eyðilagt taugarnar, því að bara þessi hugmynd, að einliver væri þarna inni lijá mjer, nægði til að koma mjer í ilt skap. Jeg fór úr jakkanum og fleygði honum á stól, en þunga og klunna- lega hnífinn lagði jeg á borðið. Ætl- aði að kveikja mjer i sígarettu til að örfa lystina undir kvöldmatinn. Nú fann jeg, live þreyttur jeg hlaut að vera. Jeg stóð þarna grafkyr og starði á gamla reykborðið úr mess- ing, án þess að hreyfa mig, án þess að liugsa. Svo rann það upp fyrir mjer, að jeg var að horfa á ösku- bakkann. í honum lá hálfreykt síg- aretta. Það fór hrollur um mig. Var jeg orðinn myrkfælinn í ellinni? Síg- aretta — jeg mundi víst hafa lagt hana þarna sjálfur. Það kom svo oft fyrir. En herbergið, herbergið milt fyltist af ósýnilegum verum, það var eins og alt yrði lifandi kringum mig, jeg varð að stilla mig að hrifsa ekki í dyratjöldin til að sjá, hvort nokkur stæði bak við þau. Bifreið ók framlijá fyrir utan gluggann. Jeg reyndi að róa mig, tók sígarettuna og sá að það var „Egypt“ — nú þá var það jeg, sem hafði reykt hana, jeg geymdi nfl. þá tegund í skrif- borðinu, en „Memphis" lá í hylk- inu á horðinu. Nú þarna sjerðu----- Jeg fór fram í eldhús til að finna mjer bita. Löngunin í máltíðina, sem jeg hafði ætlað mjer, var liorfin. Eldhúsið var kalt og ógeðslegt, jeg lielti i skyndi öli í glas, greip tvær brauðvölur og fór með þetta inn i stofuna. Jeg leit í kringum mig. Hvað hafði gerst hjerna inni? Horfði á húsgögn- in. Ekkert. Alt var eins og áður. Úti var bíksvört nóttin. Herra minn trúr, ertu orðinn móðursjúkur? En eitthvað var það. Eitthvað, sem gerði mig órólegan. Það var eins og augu mín þvinguðust að skrifborðinu, sem stóð þarna á örmjóum fótum með borðplötuna gljáandi og tóma eins og vant var. Hversvegna starði jeg svona á orðið? Var jeg svona þreyttur. Það var eins og borðið segði mjer að einhver væri i stof- Linni. En það var eittlivað sem vantaði. Eitthvað liafði legið á borðinu, sem ekki lá þar lengur. Bull, jeg hafði aldrei neitt liggjandi á skrifborðinu, það var fastur siður. En ósjálfrátt laut jeg niðúr til þess að sjá, hvort nokkuð liefði dottið. Nei, það væri bezt að komast í rúmið áður en mað- ur yrði ennþá ruglaðri. En eitthvað var það. Mig langaði til að fara út úr stofunni, en kom mjer ekki til þess. Og jeg varð að líta á skrif- borðið aftur. Nú vissi jeg það. Var sannfærður um að vita það. Það hafði legið eitthvað á skrifborðinu áður en jeg fór fram í eldliúsið. Og nú var það farið. Hvað var það, sem hafði legið þar? Meðan jeg stóð þarna í þönkum rispaði jeg í sífellu með nál i fág- aða mahogníplötuna. Fyrir utan ýlfr- aði vindurinn í kastaníutrjánum. Alí í einu greip mig skelfing. Hnifurinn! Nei, hnífurinn lá á reykborðinu, þar sem jeg liafði lagt hann. Með skjálf- andi fingrum opnaði jeg skeftið, guði sjfe lof, teikningarnar voru þar. Þetta voru bara taugarnar — — Meðan jeg stóð þarna og barði hnífnum í borðplötuna minntist jeg annars: það síðasta sem jeg hafði gert áður en jeg fór út i dag var að tæma sígarettustubbana úr ösku- bakkanum. Jeg var alveg viss, sá greinilega að það hefði verið fuít af stubbur. Svo þá hafði eiuhver verið hjerna. Nú jæja, það var ekki til að æðrast yfir, líklega höfðu einhverjir kunn- ingjar verkfræðingsins lykil að íbúð- inni. Jeg hneig ofan í hægindastól, drakk stóran teig af öli — þetta kom af þreytunni — >— — En hvað var það, sem hafði legið á skrifborðinu? Hafði það verið nokkuð? Ef svo væri þá hlaut það að vera hjer enn. Án þess að hugsa mig um, stóð jeg upp til þess að gægjast bak við dyratjöldin. Vertu nú rólegur, þú ert ekki að leika í glæpakvikmyud! En jeg stóð upp samt. Slofan var hljóð og hálfrokkin, birtan frá gamla rykaða hjálminum náði varla út í hornin. Jeg kveikti -'siálfrátt á hvíta lampanum. Og stóð aftur kyr og stóð og horfði á skrif- borðið. Og nú sá jeg myndina fyrir mjer. Þarna liafði legið kven-hand- taska. Þarna á brúninni. Það hafði legið þar grá handtaska, þegar jeg kom inn, og hún liafði verið tekin meðan jeg var úti í eldhúsinu. Jeg var nærri þvi viss um það. Kventaska. Og eigandinn hlaut að vera hjer inni ennþá. Ætlaði hún að stela uppgötvuninni? Enn einu sinni gaut jeg augunum til linífsins, og snjeri mjer ósjálfrátt við eins og einhver stæði á bak við mig. En svo rann ljós upp fyrir mjer. Að jeg skyldi geta verið svona mikill auli. Hver hafði lykil að íbúðinni? Auð- vitað Hanna! Og nú hrópaði jeg: „Hanna, þú ert fundin. Komdu fram!“ En alt var hljótt. »,Jeg veit að þú ert hjerna, Hanna. Jeg skal finna þig!“ Þetta var augljósl. Hönnu hafði langað til að ljetta sjer upp, þegar til átti að taka, og svo ætlaði liún að gera mjer hverft við. Bara að taugarnar í mjer hefðu verið styrkari. Hún mundi liafa falið sig bak við dyratjöldin eða í< klæðaskápnum, hæ — fyrir framan skápinn voru spor í rykinu. Sherlock Holmes! Jeg brosti og lioppaði yfir litla l'lauelsskemilinn og lauk upp skápn- um. Og hljóðaði upp. Eitthvað kast- aðist framan á mig, og jeg fann ís- kalt andlit koma við andlitið á mjer. Jeg barðist um á hnakka og hæli. Eitthvað datt á gólfið, svo að undir tók i húsinu. Einhver svört vera.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.