Fálkinn


Fálkinn - 02.01.1937, Blaðsíða 2

Fálkinn - 02.01.1937, Blaðsíða 2
2 F Á L K I N N cr 'ohcUl - hun Hotar ERA SlMILLON 5NYRTIV0RUR SKULI JÖHANNSSON&CO- ------- GAMLA BÍÓ ------------ NÝÁRSMYND 1937. Danði hershðfðingjans. Stórkostleg og spennandi mynd frá austurheimi um ást, hugrekki og fífldirfsku. Aðalhlutverkin leika: GARY COOPER MADELEINE CARROL. ÖSru hvoru má sjá í kvikmynda- húsunum myndir, sem gerast í Aust- urlöndum, og eru því að ýmsu leyti fróðlegri en hinar, sem gerast í þeim löndum og þeirri menningu, sem er lcunnari. Þegar nú þar við bætist, að myndin er svo spennandi, að á- liorfendur eiga bágt með að ná and- anum, má segja, að þeir, sem sjá myndina, sem hjer er um að ræða, ættu ekki að þurfa að fara erindis- leysu í GAMLA BÍÓ, sem sýnir hana þessa dagana. Yang hershöfðingi hefir um langt skeið haldið stóru flæmi af Norður- Tr ipnm sínum með hjálp ■leigðra liermanna af lakasta úrþvætti þjóðarinnar. Hann er vanur að kalla sig hershöfðingja landsins og gefa í skyn, að það sje ætlunarverk hans að hreinsa landið af ræningjum og óþjóðalýð, en sannleikurinn er sá, að hann sjálfur er mestur ræninginn og hans eigin hermenn mesti óþokka- lýðurinn, sem myrða og ræna frið- sama landsbúa. Smám saman er and- úðin gegn Yang og öllu hans athæfi orðin svo mögnuð, að samtök eru gerð til ,að varpa af þjóðinni þessu oki, og mikilli fjárliæð hefir þegar verið safnað til þess að kaupa fyrir skotvopn og liergögn í Shanghai. En þá er eftir þrautin þyngsta að koma fjenu til seljenda, svo kaupin geti komist í kring, og verður ungur Ameríkumaður, O’Hara að nafni, til þess að takast þessa glæfraferð á hendur, og koma peningunum til hr. Wu, sem á stórt gistiliús í Shanghai. Ætlunin er, að hann fari með flug- vjel því hvergi á landleiðinni er ó- hætt fyrir njósnurum Yangs. En einn af fylgifiskum Yangs, útlifaður Amer- íkumaður að nafni Perrie, tekst á hendur að koma O’Hara til að hætta við loftferðina og fara landveg. Til þess otar hann aftur dóttur sinni, sem O’Hara er ástfanginn af, og henni tekst að fá hann til að fara með járnbrautarlestinni. Hún verður þess fljótt áskynja, að hann er ást- fanginn af henni fyrir alvöru, og Eyggst að bæta fyrir brögð sín við hann með því að vara hann við liætt- unni, sem honum er búin, en það er um seinan ........ Hjer skal ekki lengra farið en þang- að, sem efnið fer að verða alvarlega spennandi, til þess að spilla ekki á- nægju áhorfenda. en óliætt mun að giska á, að „alt fari vel“ og „þau fái hvort annað“. Eftirlætisgoð allra kvenna Gary Cooper leikur O’Hara af venjulegri Oftast nær cr það Ameríka sem leggur til undrabörnin. En undan- tekning frá reglunni er j)að, að í Tyrol er nýlega komið fram undra- barn, sem þó að það sje aðeins fimm ára — það er drengur— er svo leikinn í harmóníkuspili, að hann vann nýlega fyrstu verðlaun meðal 250 þátttakehda. Þessi litli harmón- íkusnillingur heitir Bruno Lorenzo og kann hvorki að lesa eða skrifa ennþá, en á harmóníkuna getur hann ltikið hin erfiðustu lög. Bófarnir í Ameríku hafa nú færl úi kvíarnar. Áður hafa þeir iðkað barnarán, en nú hafa þeir fært sig upp á skaftið, því að nýlega stálu þeir frægum skurðlækni, sem lieitir Miltno Ochs. Hyggja menn að hon- um hafi verið stolið til jiess að hann lækni frægan bófahöfðingja, sem nýlega særðist hættulega í skamm- byssueinvígi við einn af keppinaut- um sínum, og að læknirinn verði ekki látinn laus, fyr en hann hefir læknað illvirkjann. Helgi Jónasson frá Brennu varð 50 áru í gær. snild, en aðal-kvenhlutverkið Made- leine Carroll. Er hægt að hafa það betra? Myndin er sýnd þessa dagana í GAMLA BÍÓ. Nýlega er lokið við að leggja 10000 kilómetra langan járnbrautarkafla milli Kanton og Hankow og hafa Kínverjar unnið að brautarlagningu þessari í siðustu 38 ár Iiftir að þess- ari braut er lokið er hægt að aka með járnbraut frá Singapore í Aust- ur-Indlandi alla leið til London. Leið in íiggur frá Singapore til Bangkok í Siam og þaðan norður Kína og loks með Síberíujárnbrautinni til Vestur- Evrópu.. En 27 daga er maður á leiðihni, þó hvergi sje staðið við. Og farmiðinn kostar 2300 krónur. FLEKTRON-KLUKKAN er talin lang nákvæmasti tímainæl- ir sem til er og hægt að mæla miljón- astahluta úr sekúndu með henni. Myndin sýnir klukkuna og þann sem gerði hana: Manfred von Ardenne. NÝJA BlÓ. Blood skipstjóri. Stórfengleg mynd eftir liinni heimsfrægu skáldsögu Hafael Sabatini. —Aðalhlutverkin leika: ERROL FLYNN og OLIVIA DE HAVILLAND. Meðal allra hinna mörgu, sem lagt hafa stund á að skrifa „sögu- lega reyfara", hafa fáir öðlast jafn miklar vinsældir og Rafael Sabatini, og sennilega hefir enginn átt þær I betur skilið. Flestir „sögulegir" rit- höfundar geta orðið leiðinlegir á köflum, en það verður hann aldrei. Frásagnarlistin bregst aldrei og sögu- kunnáttan er með afbrigðum. Það ræður því að líkindum, að höfundur eins og Sabatini hefir ekki sloppið við það að verða kvikmynd- aður. Verkið, sem hjer er um að ræða og i flestum þýðingum af sög- unni ber nafn aðalpersónunnar, hefir sjest hjer á kvikmynd fyrir eitthvað 10 árum. Er það sjerstaklega ómaksins vert fyrir þá, sem sáu þá mynd, að sjá þessa og gera svo samanburo. Um efnið má fara fljótt yfir sögu, því það er svo mörgum kunnugt í aðalatriðum. Peter Bloocl er ungur læknir í Englandi, þegar uppreistin gegn Jakob konungi II. geisar. F.itt kvöld er hann kallaður til að stunda einn uppreistarmann, sem hefur særst hættulega, en meðan hann er ::ð stumra yfir honum, koma her- nienn konungs og bæði læknirinn og sjúklingurinn eru teknir til fanga. Síðlir er læknirinn ungi dreginn fýr- ir herrjett og dæmdur til daúða, eins og svo inaígir höfðu verið dæmdir á undan honum. En þegar hjer er komið eru meiin orðnir þreyltir á þvi að hengja uppreistar- menn unnvörpum enda vantar v.nnukraft tii nýlendnanna í Vestur- heimseyjum, og þannig er Peter Blood sendur til Jamaica í skips- farmi af pólitískum föngum, til að vinna þar sem þræll. Það yrði of- langt að rekja allar þær kvalir og hörmungar, sem þessir veslings fangar verða að þola, en loks kemur að því að þeim tekst að strjúka og ná í spanskt ræriingjaskip, meðan í-kipshöfnin er að rupla í landi, og nú hefst sjóræningjaferill Peter Bloods og stendur í þrjú ár. Vinnur liann sjer þar margt til frægðar, en að lokum getur hann þó orðið föður- landi sínu að gagni, og stendur þá svo vel á, að Jakob konungi er steypl af stóli um sama leyti og Blood og hinir hraustu skipverjar hans fá upp gjöf saka, en sjálfur eignast hann hönd og hjarta stúlluinnar, sem á sínum tíma hafði keypt liann á þrælamarkaðnum fyrir 10 sterlings- pund. Þessi stúlka er Arabella Bis- hop, bróðurdóttir Bishops ofursta, sem verst hafði farið með fangana á Jamaica, en fær að lokum makleg málagjöld. Það kann að vera, að margir hafi sjeð sjóorustur í kvikmyndum, en liitt má fullyrða, að fáir bíógestir lijer hafi sjeð neitt, sem kemst i hálfkvisti við það, sem sjá má í þess- ari mynd. Þegar þar við bætist, að öll hlutverk, sem nokkuð kveður að, eru snildarlega leikin, þarf ekki að hika við að telja þessa mynd í allra fremstu röð þeirra, sem hingað hafa komið. Aðallilutverkin — Peter Blood og Arabella Bishop — leika þau Errol Flynn og Olivia de Havilland. Err- ol Flynn byrjaði sitt ævintýri sem Framh. á bls. 15.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.