Fálkinn


Fálkinn - 02.01.1937, Blaðsíða 5

Fálkinn - 02.01.1937, Blaðsíða 5
F Á L K i N N 5 Hlíðarendi í Fljótshlíð. Merkjárfoss'. Uppi með Merkjá, inni á hciðum, segir sagan að fíjarni Tlwrarensen hafi villst þegar hann var barn. Belgiska stjórnin hefir lagt fyrir jjingiö frumvarp um almenna náö- un sakamanna, er dæmdir hafa ver- iö til refsingar fyrir politiskar sakir. Meðal þeirra eru ýmsir, sem uppruna- lega voru dæmdir til dauða fýrir landráð en fengu dómi sínum síðar breytt i æfilangt fangelsi. Meðal þeirra er Borms sá, sem heitti sjer fyrir aðskilnaði Flandérns frá Belgíu og ýmsir, sem á stríðsárunum fengu dauðadóm fyrir að hjálpa Þjóðverj- um, er jieir höfðu tekið mestan hluta Belgí.u herskildi. Mgndin tekin þegar höllin stóð i Ijósum logiim, og má hjer sjá bál eitl hið óskaplegasta. Þeyar Kristalhðllin I London brann. Framhlið hallarinnar. Mary Pickford, sem mörgum mun koma á óvart að sje ekki nema 43 ára — svo langt er síðan hún varð heimsfræg leikkona, hefir nú trú- lofast hljómsveitastjóranum Charles Bogers, sem venjulega er kallaður .,Buddy“ og er aðeins 32 ára. Það eru finun ár síðan Mary skildi við Douglas Fairbanks. hann tók því. Bestu vinir hans syðra munu liafa verið þeir Oddur Hjaltalín, Þorgrímur Tómasson og Hallgrímur Scliev- ing. -Það er ekkert oflof, þar sem Bjarni sagði tun sjálfan sig: Ungur þótli eg með söng gndi vekja’ i sveina giaumi. því að hann var söngmaður liinn hesti, eins og ýmsir föður- frændur lians. ..“ Bjarni var smiður ágætur; smíðaði einkum og gróf signet, sem hann gaf ættmönnum sínum“. Þessi lýsing Einars H. Kvar- an gefu'r nokkur deili á mann- inum, sem orkti „Eldgamla ísa- fold“. Hefðarmanninum á „jök- ultindinum", þar sem ekki er „liolt að hafa ból“. Listamann- inum, sem jafnan sat í virðing- armestu embættum landsins en orkti samt svo dýrmæt ljóð, að þau lifa í fullu gildi enn í dag. Hjer verður þvi miður ekki rum til, að lýsa skáldskap Bjarna Thorarensen. En að lok- um verður að minnast á aðra hlið þessa stórmerka manns, þátt í eðli hans sem lýsir vel hve langt hann var á undan sinum tíma. Það eru afskifti hann af fjallvegamálunum. Ó- ljygðabrautryðjandinn er ekki almenningi eins kunnur og amt- maðurinn og skáldið. Hjer er vitnað i grein, sem birtist í Ár- Ijók ferðafjelagsins 1931. Þar er þessi tilvitnun úr „Klaustur- póstinum“ frá 1823: „Loks lýsir Klausturpóstur þessi að bón Sýslumannanna Hra Jóns Espolín og Blöndal, þeirri opinherri þökk til Ilra Assisor B. Tliorarensen vegna sýslubúa þeirra, sem ferðast kunna um Iíaldadalsveg, fyrir góða vegabót, er hann á eiginn kostnað hefir látið gjöra með ruðning á þessa dals óvegs parti Skúlaskeiði nefndum“. Drengurinn, sem varð „berg- numinn" í æsku ljet ryðja fyrsta kaflann, sem ruddur liefir ver- ið á íslenskum fjallaleiðum. Og árið 1831 stofnar hann „Fjall- vegafjelag íslands“ ásamt nokkr um vinum sínum. Þetta fjelag bygði vörður á Holtavörðuheiði og gerði sæluhús í Forna- hvammi, ruddi Þorvaldsháls og veg frá Surtshelli að Hólma- kvísl. Einnig á Grímstungna- lieiði og fyrir Ok. Gerði út menn til þess að finna nýjar leiðir um óbygðir milli lands- fjórðunga. En þegar frá leið rjenaði áhugi almennings fyrir þessu nýmæli og fjelagið logn- aðist útaf, vegna fjárskorts. Fræðafjelagið í Kaupmanna- liöfn hefir nýlega minst Bjarna Thorarensen veglega, með hinni ágætu útgáfu af ljóðum hans, sem dr. Jón Helgason prófessor hefir sjeð um. En þjóðin sjálf á eftir að þakka honum fyrir þjóðsönginn og öll fögru ljóð- in sem hann gaf. Væri ekki vert að athuga hvort þjóðin vill nú á afmælinu sameinast um, að koma upp líkneski Bjarna Thor- arensen, veglegu svo að honum sómi. Það ætti að standa fall- gert rjettum hundrað árum eft- ir dauða hans, 24 ágúst 1941! Þegar Kristalshöllin i London brann til kal,dra kola aðfaranólt hins 30. nóvember, varð eitt- hvert hið stærsta hál, sem kom- ið liefir fyrir í heimshorginni, og mega þó Lundúnabúar marg- an stórhrunann niuna. Kristalshöllin var uppruna- lega reist eftir teikningu Sir Josep Baxtons árið 1851 og þá í Hyde Park. Þar fór fram al- heimssýning nokkru siðar og sóttu liana um (5 miljónir manna. Að sýningunni lokinni var tilætlunin að glerhöllin yrði rifinn, en nokkrir mætir borg- arar stofnuðu með sjer í'jelag í þeim tilgangi að koma því til vegar að höllin fengi að standa. Það var þó eigi komandi riærri því að bæjarstjórnin í London vildi leyfa að liöllin stæði á- fram í Hyde Park. Fjelagið keypti höllina til niðurrifs, en ljet endurreisa liana á öðrum stað í útjaðri lieimsborgarinn- ar, á Syhdenhamhæðinni og þar varð liið mikla hál, sem eyddi henni og nokkrum fleiri byggingum þar á staðnum. — Allir Lundúnabúar voru stoltir mjög al' þessari merki- legu byggipgu, sem var ein- göngu úr járni og gleri gerð. Og sá þótti ekki hafa „sjeð“ Lond- on, sem ekki liafði verið í gler- höllinni. Þar voru oft lialdnar sýningar, hljómleikar og alls- konar samkomur, því höllin rúmaði óhemju af fólki. Eftir heimsstvrjöldina, eða árið 1920 var hersafni Breta komið fyrir í liöllinni og mátti þar sjá ýiris hergögn, bæði ný og gömul. Þetta safn brann auðvitað all lil kaldra kola og er skaðinn al- veg ómetanlegur líka að því leyti. Nú er lalað um að reisa nýja glerhöll á sama stað. Ekki er þó að vita hvort úr því verður, eða þá hvaða lag kann að verða a hinni nýju höll. En hún getur aldrei orðið það sama og fvrri liöllin fyrir Lundúnabúann eða Bretann vfirleitt. Því gamla höll in var einkennilegasta bygging heimsborgarinnar.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.