Fálkinn - 09.01.1937, Qupperneq 3
F Á L K 1 N N
3
VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM.
IUtsljórur:
V’ilh. I’inscn otí Skúli Skúlason
Franikuæmilastj.: Svavar Hjalleslcd.
,V ðulskrifstofu:
Bankaslræti 3, Reykjavík. Simi li2ln
Opin virka daga kl. 10—12 og I—(i.
Skrifstofu i Osln:
A n I <i n S c h j ö I li s g a d c 1 I.
Blaðið keinur út livcrn laugardag.
Askriftarverð er kr. 1.50 á niánuði;
kr. 4.50 á ársfjórðungi og 18 kr. árg.
Erlendis 24 kr.
Allar áskriftanir greiöist fyrirfram.
Auglýsingaverð: 20 aura millimeter.
Herbertsprent prentaði.
Skraddaraþaikar.
Það heyrist oft, jafnvel hjá ment-
uðu fólki, að þjóðsögur sjeu harla
lítils virði, þær sjeu hjegilja ein og
hafi meira að segja ill áhrif á les-
endur, sjerstaklega börn og unglinga.
Ekki skal fullyrt um það, hvort
nokluir hæfa sje í því, að þær hafi
ill áhrif á einhverja, en hitt er víst,
að það er hinn mesti misskilningur
að telja þjóðsögur yfirleitt lítils eða
einskis virði, enda ganga þeir lengst
i slíku, sem virðast eiga sjerstak-
lega erfitt með að skilja annað en
það, sem verður málum mælt, eða
tölum talið. Þjóðsögur eru þjoðar-
skáldskapur, og spegla þær þvi á
margvislegan hátt menningu þjóðar-
innar á liðnum tímum. Þær lýsa sið-
um fólksins og háttum þess, daglegu
lífi manna og störfum, trú og hjátrú
margs konar. Þeir sem lesið hafa hið
ágæta yfirlitsrit síra Jónasar frá
Ilrafnagili, íslenskir þjóðhættir, munu
vafalaust liafa tekið eftir því, hversu
íslensk þjóðsagnasöfn verða honum
drjúg heimild i öllum þáttum bókar-
innar. í engin rit er jafnoft vitnað
sem í þjóðsögurnar. Og þó fer því
fjarri, að efnið sje þurrausið. Þegar
ritað verður um íslenska þjóðarsál-
fræði, verða þjóðsögurnar enn ein af
aðalheimildunum. Ótalinn er þó enn
allur sá mikli fróðleikur, sem í sög-
unum felst, um persónusögu, staða-
lýsingar og ótal margt fleira. Þá má
ekki gleyma því, að óvíða eða livergi
er jafnauðug heimild um íslenskt al-
þýðumál eins og i þjóðsögum vorum.
Þær eru að jafnaði skráðar af vör-
um alþýðu; i þeim streymir því lind
alþýðumálsins í sinni hreinustu
mynd. Þá má og eigi heldur gleyma
hinum mörgu vitnisburðum um dul-
arfull fyrirbrigði, sem sögurnar hafa
að geyma, því að margar þeirra eru
vottfastar svo seni verða má best, og
mun engínn gætinn maðúr leyfa sjer
að neita því, að ýmsir slikir fyrir-
burðir hafi gerst, enda þóll sjálfur
hafi hann ekki orðið fyrir samskon-
ar reynslu. Vjer verðum að viður-
kenna, að lil er ótalmargt i náttúr-
unni, sem vjer skiljum ekki nje skynj-
um, og svo er með margt af því, sem
þjóðsögur vorar ségja frá. Loks má
ekki gleyma ævintýrunum, hinum
fagra skáldskap, sem felst í mörgum
þeirra. Fram úr þeim hefir jafnvel
liinum hestu snillingum ekki lekist
að fara. Það er mikið óráð að halda
þjóðsögum og ævintýrum frá börnum
og unglingum. Þær birta þeim nýja
hugmyndaheima, glæða ímyndunar-
afl þeirra, vekja þau til umhugsunar
um tilveruna, þroska þau og auðga.
Leikfjelag Reykjavíkur fjörutíu ára.
Ragnai' E. Kvaran, formaður.
„Fálkinn" birtir i dag nokkrar
myndir af leikúrum i Leikfjelagi
Keykjavíkur í tilefni af þvi að þessi
merki fjelagsskapur er fertugur á
mánudaginn kemur, 11. jan. En á-
stæðan fyrir því, að hjer verður ekki
rakin saga fjelagsins eða gerð grein
Þeir, sem kunnir eru ástæðum öll-
um og örðugleikum þeim, sem á þvi
eru að halda uppi samfeldri leikstarf-
semi í Reykjavík, líta svo á, sem það
gangi kraftaverki næst, að hafa ekki
látið fánann falla úr liendi í fjörutiu
vetur. Enda er sannast af þvi að
Hallgrímur Bachmann
gjaldkeri.
Það hefir ráðist í hin örðugustu við-
fangsefni og það er beinlínis þvi að
þakka, að íslenskar bókmentir hafa
auðgast af sumum hinna ágætustu ís-
lenskra leikrita.
Það er eftirtektarvert, að Leikfje-
lagið hefir öll þessi fjörutíu ár starf-
að i sama húsinu — Iðnó. Þegar
leikirnir hófust munu íbúar bæjarins
hafa verið um 2—3 þúsund manns.
Síðan hafa allir hlutir breyst, og verð
ur ekki annað sagt, en að það fari nú
ekki að verða vansalaust, ef ekki fást
Gestur Pálsson.
Marta Indriðadóttir. Þorst. Ö. Stephensen.
Indriði Waage.
Þóra Borg.
Arndís Björnsdóttir
Valur Gislason.
fyrir margháttuðu starfi þess um
þennan langa tíma, er sú, að stjórn
Leikfjelagsins hefir ákveðið að halda
minningarár þetta hátíðlegt siðar á
vétrinum með sjerstakri hátiðasýn-
iiigu og mun þá jafnhliða birtast
hjer i blaðinu itarlegt yfirlit starf-
seminnar.
segja, að það hefði orðið bæjarbúum
yfirleitt hið mesta harmsefni. Ekkert
einstakt fjelag hefir gert eins mikið
að því að halda uppi listrænni starf-
semi í bænum eins og Leikfjelagið.
veglégri húsakynni og lientugri að-
stæður fyrir leikstarfsemi í höfuð-
borginni en þau er við þótti unandi
í litlum bæ fyrir fjörutíu árum. Ætti
þetta fertugsafmæli Leikfjelagsins að
verða (il þess, að skriður kæmist á
að gengið yrði frá hinu fagra þjóð-
ltikhúsi, svo eigi yrðu hinir ytri
veggir jiess einir bæjarprýði, heldur
fyltist það lífi og list.
Haraldur Björnsson.
Gunnj). Halldórsd., Friðf. Guðjónss. Ving Stefúnss. og Soffía Guðlaugsd.