Fálkinn - 09.01.1937, Side 6
F Á JL K 1 N N
HULDA:
SÍÐH
Niðurlag.
„Rístu upp, ungi maður!“ —
Hver var að kalla? ,,Statíu upp,
Pjetur Eysteinsson og fylg
mjer heim til bæjar“.
Pjetur reis upp og sá hvar
Síðhetta stóð, í klausturbúningi
sínum, en nú hafði hún eigi
kertaljós i liendi, enda var þess
eigi þörf í Jónsmessuljómanum.
Pjetur sá að það var hin feg-
ursta sumarótta og geislarnir
glóðu i Ijósgullnum smálokkum,
er gægðust framundan liöfuð-
húningi Síðhettu og krossinn á
hrjósti hennar sýndist loga.
„Ger svo vel og fylg mjer
heim til klaustursins", mælti
hún enn — og sneri sjálf áleiðis
til fagurrar byggingar, eða öllu
heldur byggingaþorps, er Pjetur
sá örskamt þar frá. Hann reis
þegar á fætur og fylgdi Síðhettu.
En laversu undurslegin voru
eigi augu lians yfir öllu sem
hann leit! Hversu ólíkt var eigi
alt því, sem það liafði verið fyr-
ir skemstu. Algróið land, skóg-
ar í hlíðum og fossinn i grænni
hæjarbrekkunni — klaustur,
kirkja og ótal önnur hús.
Pjetur fylgdi Síðhettu eftir.
Nú gengu þau ofurlitla útskoma
trjebrú er lá yfir bæjarána, sem
kom forsandi ofan brekkuna,
vafðist um klausturþorpið og
rann síðan lygn og blá, ofan dal-
dragið. Gráar og hvitar heim-
gæsir voru að stinga sjer og
busla ofan við hrúna á ánni.
Og marglit hænsni höðuðu sig í
sólheitri moldinni í einurn ysta
húsagarðinum, svínin rýttu í stí-
um sinum og fjöldi dúfna flögr-
aði inn og út um dúfnahúsið,
sem stóð á gildum stólpa eitt
sjer í grænum grasgarði. Undr-
aðist Pjetur það nrjög, því að
hann hafði aldrei á æfi sinni
sjeð þannig bygt hús. — Fegri
og stærri urðu húsin, þvi innar
sem dró í bæjarþorpið. Þarna
var kirkjan með blýgreyptum
gluggarúðum og logagyltum
krossi, og þarna —, já þetta
lilaut að vera klaustrið sjálft,
þessi stóra fallega bygging með
breiðri steinstjett alt í kring, út-
skornum bustum og blaktandi
vindhönum. Aðaldyrnar stóðu
opnar. Við þær staðnæmdist
Síðhetta og leit til Pjeturs. „Fylg
mjer til gestaherbergis“, mælti
hún vingjarnlega. og Pjetur
hlýddi. — Þau komu inn í víð-
áttumikinn forsal, þaðan lágu
ótal leiðir inn í klaustrið. „Til
hægri liandar“, mælti Siðhetta
án þess að líta við og Pjetur
fylgdi henni inn í stofu nokkra,
lága en viðkunnanlega. Þar
voru borð og liægindi.
ETTA
„Hvíl þig nú, sveinn“, mælti
hún og benti á eitt hægindið.
Sjálf settisl liún beint á móti
honum, brosti og tók svo til
máls:
„Pétur Eysteinsson, — af öll-
um þeim, sem jeg hefi fylgt yf-
ir eyðilandið, ert þú hinn fyrsti,
sem jeg get sýnt minn forna bú-
slað og birt sögu mína. Þú ert
eklci í likama þínum þessa
stund, hann hvilir í náðum lijá
hestinum þínum hjerna örskamt
frá og mun hvergi saka. Þú ert
einn þeirra fáu manna, er hafa
frá náttúrunnar hendi þann
eiginleika að geta horfið yfir
tíma og rúm. — Mæli jeg nú svo
um, að þú munir alt sem jeg
tala við þig, er þú vaknar, en
ekki skaltu hirta það neinum
manni nema Rakel heitkonu
þinni, þegar þú keinur aftur á
hennar fund. Þjer mun jeg segja
sögu mína og þú munt skilja
hana, því að hjarta þitt hýr yf-
ir þeirri ósk, sem er sterkari en
allir örðugleikar jarðar. Heill
og hamingjuríkur munt þú aft-
ur koma til átthaganna. Og hlýð
nú sögu minni:
Jeg heiti rjettu nafni Herdis
Hámundardóttir og var ahbadís
hjer i klaustrinu. Hamingjan
var mjer góð. Ung geklc jeg á
fund Drottins míns inn í þetta
friðsæla og fagra klaustur. Ætt-
ingjar mínir og vinir höfðu bor-
ist á banaspjótum. Mjer ægði
griind og ofsi heimsins. En lijer
var friður. Og svo liðu mörg ár,
að jeg undi mjer við orð Guðs,
fagrar listir og ræktun jarðar.
Jeg ávann mjer hylli og hlaul
abbadísartign. Þetta voru sak-
leysis og friðarárin mín. En þau
tóku enda“. Síðlietta studdi oln-
bogum fram á borðið, andvarp-
aði og liuldi ásjónu sína með
hvítum og smáum höndum sín-
um.
„Já — þetta voru friðarárin“,
endurtók hún lágt. „Svo komu
sælu og sorgarárin. Sunnan úr
löndum þar sem sólin brennir,
allskonar undursamleg aldin
vaxa og hlóð mannanna er eld-
heitt — kom sá er svifli mig
hjartarónni. Hann var íslend-
ingur eins og jeg, en hin suð-
ræna sól hafði fylt æðar hans
hrennheitu blóði og orð hans
voru sæt eins og þrúguvín og
sólbornir ávextir. Hann var
þjónn Drottins, en sál hans var
þrungin jarðneskri sæluleit,
engu síður en himneskri. — Jeg
elskaði hann — um leið og jeg
leit í augu hans“. — Síðhetta
Lrá höndum frá andliti sjer,
signdi sig ákaft og andvarpaði.
Síðan mælti hún:
„Alt frá æsku liafði hjarta
mitt sofið, eins og barn í reif-
um. Hið hlessaða Guðs orð,
hannyrðir og blóm, gæska við
gest og gangandi og' liin sak-
lausu dýr, hafði svalað sál
minni, gefið mjer heilbrigða
þreytu og sætan nætursvefn. En
nú kom þessi yndislegi gestur
og svifti mig öllu öllu. Alt
var gleymt, nema þetta eina:
Jeg elskaði. Og það því heitar
og ljúfar sem sál mín hafði úr
ósnertum brunnum að ausa. Jeg
unni vini mínum með reynslu-
lausu sakleysi sautján ára meyj-
ar og dýpt og styrk fullþrosk-
aðrar konu. Suma'rlangt dvaldi
hann hjá mjer.
Þá fyrst sá jeg til fulls hve
tryggar og raungóðar meyjar
mínar voru — hve trútt og gott
alt mitt lieimilisfólk var, alt frá
svínahirðinum og smalanum til
ráðskonu og ráðsmanns. Eng-
inn kærði mig.
Um veturinn fæddi jeg son
og var óviðjafnanlega sæl. En
Guði þóknaðist að taka soninn
til sín, vikugamlan. Mjer lá við
sturlun af sorg og söknuði. Jeg
gerði ekkert til þess að hylja
brot mitt. En svo elskaði heim-
ilisfólk mitt, mig óverðuga, að
það levndi öllu og breytni mín
varð aldrei lýðum kunn.
Jeg náði mjer smátt og smátt,
naut virðingar allra, æðri sem
lægri og lifði í allmörg ár eftir
þetta. En jeg skriftaði aldrei
ást mína.Mjer var ómögulegl að
nefna sælu mína synd, hvorki
fýrir Guði nje mönnum. Aldrei
baðst jeg svo fyrir eftir þetta,
að jeg þakkaði ekki skapara
mínum af öllu hjarta fyrir ást-
arreynslu mína. Á hverju vori
fanst mjer fuglarnir syngja um
mína liðnu sumarsælu. Og þeg-
ar stjörnurnar tóku að birtast á
haustin fanst mjer þær allar
segja: Þú átt engil á himnum.
Og sorg og gleði fyltu augu mín
sætum tárum. Já — jeg þakkaði
Guði af öllu hjarta og hann fyr-
irgaf mjer, hreysku barni sinu.
En á herðum mjer hvíldi önn-
ur hyrði. Jeg naut virðingar,
sem jeg átti ekki með rjettu í
mannheimi. Menn bentu heim
til klaustursins og sögðu: Sjá,
þarna býr ein af göfugustu kon-
um landsins, hin skírlífa og
guðrækna abbadis Herdís Há-
mundardóttir sem aldrei liefir
hrasað. Skáldin fluttu mjer
kvæði og hörpuslagararnir sungu
þau. Allir klerkar og ábótar
landsins, með biskupana i
hroddi fvlkingar lofuðu mig og
lilóðu á mig og mitt klaustur
auðæfum lieims og sæmd. -— Æ,
þetta varð mjer þung bvrði — í
lifi og dauða. I livert skifti sem
einhver vitnaði i sakleysi mitl
og sóma var sem steini væri
lient afafli í hjarta mitt.
Je,g dó — og kom fyrir hástól
Guðs.
Ekkert þyngdi sálu mína,
nema oflofið, sem liafði verið
á mig borið, bæði lífs og liðna.
Jeg liafði aldrei skriftað fyrir
D.einiim manni. En sannleikur-
inn á að skína, hæði á himni og
jörðu. Nú var jeg dáin og
gat ekki hirst hræðrum niínum
og systrum i draumi. Jeg iiað
til guðs og sagði:
Faðir, leyf mjer að vinna sjálf
af mjer þessa þungu byrði. Leyf
mjer að njóta auðmýktár á
jörðu. —- Og skapari niiun
aumkvaðist vfir mig og svaraði
injer:
Þú skalt verða ein af þeim
hinmesku verum, sem hjarga
og leiðlieina án þess að nokkíir
maður viti hverjar þær eru, eða
geti goldið þeim i nokkru jarð-
nesku.
Lít þú niður til þíns forna
heimkynnis á jörðu. Sjá, nátl-
úruöflin liafa leikið hrika-
leik í ættlandi þínu. Þú skalt
verða dis vatna og sanda og
hjarga mannslífum. í hvert sinn
sem þeir þakka mjer af lijarta
lifgjöfina skal hvrði þín ljettast
Og að lokum munt þú finna ein-
livern þann, sem getur hlustað
á skriftamál þitl og sagt börn-
um sinum hversu hin göfuga
IJerdis Hámundardóttir var i
jarðlífi sínu.
Jeg þakkaði skapara inínum
og flaug til jarðar.
Æ, sú hrygðarsjón, sem við
mjer hlasti hjer! Hvar var
klaustrið mitt fagra? IJvar voru
hinar berjasælu hirkihlíðar?
Hvar voru grænar grundir,
þaktar saklausum hjörðum og
hláar bergvatnsárnar fullar af
laxi og urriða? Hvar voru reyni-
trjen og gullgulur víðirinn?
Hvur var hjeraðið mitt?
Náttúrulögmálið verður ekki
brotið. EldfjöIIin gjósa þegar
þeirra tími er kominn. Eitt gos-
ið i ættlandi mínu hafði sópað
á burtu lieilu lijeraði. Jeg reik-
aði friðlaus um svarta sanda og
eitruð vötn. Veslings mennirnir,
þeir þurftu að fara ferða sinna
jirátt fyrir torfærurnar og jeg
fjekk brátt tækifæri til þess að
bjarga fyrstu ferðamannalest-
inni, sem lagði út á eyðilandið.
Mennirnir lofuðu guð og
byrði min ljettist.
Þannig liðit ár og aldir.
Þunginn á lierðum minum
ljettist sifelt. Himinn Guðs stóð
mjer opinn. Barnið mitt beið
mín í sælu hólpinna sálna. En
jeg liafði ekki ennþá fundið
neinn þann, meðal jieirra sem
áðu lijer á hæðunum, er gætu
farið úr líkama sínum, fylgt
mjer lil klaustursins liorfna og
lilustað á skriftamál mitt fyr
en nú í nótt. — Pjetur Eysteins-
son, þú ert sá sem hefir frels-
að mig úr eyðimörk þagnar-
innar. Je,g liefi skriftað fyrir
þjer“.
Siðlietta leit upp og' var sem
himnesk birta og friður færðist
yfir svip hennar.
Framh. á bh. 10.