Fálkinn


Fálkinn - 15.05.1937, Blaðsíða 14

Fálkinn - 15.05.1937, Blaðsíða 14
14 F Á L K I N N Rlkisstjórnarafmæli Kristjáns konungs X. Froinh. af bls. 3. víðsýnt. En þó er sennilegt, að lausn sambandsmálsins hefði dregist enn uin sinn, ef Danir liefðn ekki endurheimt Suður- Jótland eftir ófriðarlokin. Sá atburður er nátengdur viður- kenningunni á sjálfstæði Islend- inga. íslendingar hafa i heila öld lialdið því fram, að Island væri sjálfstætt land og eklíi undir dönsku þjóðina gefið, en þegna konungs hafa þeir jafnan talið sig, síðan landið gekk undir Noregskonung 1262. Sem kon- ungur íslands á Kristján X. því aldarfjórðungsafmæli í dag, þó að ekki væri nafn íslands tekið upp í titil hans fyr en 1918. Með samþykt sambandslag- anna varð Kristján X. opin- Jjerlega konungur tveggja ríkja. Island var viðurkent frjálst og sjáifstælt ríki og jafn rjetthátt- Danmörku. Ríkisráð konungs urðu tvö en ekki eitt. Konungs- íanarnir urðu tveir, annar fyr- ir ísland og hinn fyrir Dan- mörku og konungsritararnir urðu tveir. I Danmörku kemur konungurinn fram sem konung- ur beggja landa, hann tekur á móti gestum sem konungur íslands og Danmerkur, minnist heggja landanna í ræðum sín- um og þjóðsöngvar beggja landa eru leiknir eða sungnir við þau tælíifæri, sem konungur kemur fram sem húsbóndi á sinu heimili. En auðvitað kem- ur hann að jafnaði fram sem konungur Danmerkur, á sama hátt og hann kemur fyrst og fremst fram sem konungur Is- lands, er hann dvelur lijer á landi. Enginn liefir orðið til ]>ess að hera konungi á brýn, að liann liafi vanrækt hlut ís- lands í stjórn sinni. Fyrir ísland liefir hinn liðni stjórnarferill orðið merkilegri og viðburðaríkari en nokkurt tímabil i sögu þjóðarinnar i margar aldir. Konungur lslands vr orðinn staðreynd, sem fáir viðurkendu áður en allir viður- kenna nú. Og á þessu tímabili liefir ísland liaft meira af kon- ungi að segja, persónulega, en nokkurntima áður. Fvrir lcon- ungstið núverandi konungs höfðu aðeins tveir konungar komið til íslands, Kristján IX. árið 1874 og Friðrik VIII. árið 1907. En Kristján konungur X. hefir komið liingað fjórum sinnum á síðustu 16 árum. Fyrsta sinnið komu konungs- hjónin hjer 1921 á „Valkyrien“ og var sú heimsókn að mörgu leyti viðhafnarmest. Næsta heimsóknin var eigi „opinber heimsókn“ í sömu merkingu og hin fyrri, en í þeirri ferð fór konungur kringum land i baka- Fimleikamót íslands ,4 annan i Hvítasunnu hefst fini- leikamót fslands á íþróttavellinum og heldur áfram tvo næstu daga. Þátttakan i þessu móti ber þess merki, hve mjög iðkun fimleika hefir farið í vöxt siðustu árin, því að nú eru það um 200 manns, sem keppa á vellinum. Á síðasta fim- leikamóti fyrir fjórum árum voru keppendur ekki nema 140. Þátttak- endur eru þessir: Frá Ármann: Telpuflokkur (22) og drengjaflokkur (13) undir stjórn leiðinni og sá í fyrsta sinn norðurland og austurland. Þriðja heimsóknin var á Al- þingisliátíðina 1930 og hin fjórða og um sinn síðasta í fyrrasumar og ferðuðust kon- ungshjónin þá meira um land- ið en nokkru sinni áður, m. a. norður i land. Alexandrine drotning hefir jafnan verið með konungi i þessum ferðum og er hún fyrsta drotning, sem tíl íslands hefir komið. Synir þeirra hafa einnig báðir komið til íslands oftar en einu sinni, en það fórst fyrir, sem ráðið hafði verið i fyrra, að Ingrid krónprinsessa kæmi hingað. I fyrstu ferð sinni hingað fóru konungshjónin til Grænlands og komust þá norðar á hnöttinn en nokkur konungur hefir kom- ið. Hefir Grænland aldrei feng- ið konungsheimsókn fvr en þá. íslenska þjóðin fagnar deg- inum í dag. Á undanförnum aldarfjórðungi hafa langþráðir draumar hennar ræst. Konungs- ríkið Island getur i fyrsta skifti minst stjórnarafmælis, sem sjálf stæður og viðurkendur ‘aðili. Og margar hlýjar óskir munu rísa í hugum Islendinga í dag, fyrir þann hlut, sem Kristján konungur tíundi átti að því máli. Nýlega er farið að endurreisa bæinn Quetta í Indluandi, sem hrundi til grunna í jarðskjálftunum miklu i fyrra. Hafa fundist 9000 lík í rúst- unum. Bærinn verður bygður á sama stað og hann var áður, þrátt fyrir jarðskjálftahættuna. Yignis Andrjessonar. Úrvalsflokkur kvenna og úrvalsflokkur karla und- ii stjórn Jóns Þorsteinssonar. Alls 08 þátttakendur. Frá K. R.: Tveir telpuflokkar og einn úrvalsflokkur karla. Stjórn- andi allra flokka: Benedikt Jakobs- son. Þátttakendur alls 43. Frá í. R.: Úrvalsflolckur karla undir stjórn Baldurs Kristjónssonar. Þáttakendur 10. Frá íþróttafjelagi verkamanna og verkakvenna í Hafnarfirði: Kvenna- flokkur undir stjórn Solveigar Guð- mundsdóttur. Frá Austurbæjarskólanum: 17 drengjaflokkur undir stjórn Hann- esar M. Þórðarsonar. Frá Reykholtsskóla: 17 pilta flokk- m undir stjórn Þorgils tíuðmundj- sonar. l-’rá tíagnfr.slcóla Rvikur: 42 stúlkur undir stjórn Vignis Andrjessonar. Eru flokkarnir tólf alls, þar af þrir frá skólunum. Mótið hefst kl. íy^ á 2. hvita- sunngudag með lúðrablæstri á Aust- urvelli og verður haldið þaðan í skrúðgöngu suður á íþróttavöll, með fimleikafylkinguna i fararbroddi. Vonandi verður veður svo hagstætl, að fylking áhorfenda verði löng. F u g I a r n i r. Þó kalt hafi verið und- anfarnar vikur, hafa far- fuglarnir verið að sma skila sjer heim lil Fróns, eins og venjulega. Þeir koma lengra að en svo, að' þeir geti breytt það til um áætlun, að þeir ekki skili sjer til lands- ins, þó þeir staldri ef til vill lengur við sunnan lands þegar seint vorar. > Ritan var komin hjer eins og venjulega um 4 níiðjan marsmánuð. Ekki liggur henni þó á heiin af því að hún fari svo snemma að verpa; liún gerið það ekki fyr en í júníbyrjun. Það er vafalaust hitt, sem kemur henni til þess að koma svona snemma, að henni finst björgulegra hjerna úr því þessi tími er kom- inn, en þar sem hún, heldur sig á vetrin. Ef spurt er: í hvaða landi er ritan á vetrin? verður svarið helst: í engu landi. Hún stundar sem sje úthafið á vetrin. Heldur sig í stór- hópum langt suður í Atlantshafi, alveg suður undir Azoreyjum. Skógarþrösturinn og smirillinn eru komnir fyrir 5—6 vikum; þeir koma venjulega í byrjun april. Nokkrir þrestir eru hjer alt árið, ]ió vafalaust ekki einn af hverjum þúsund, er suður fljúga. Sennilega kæmi smirillinn ekki svona snemma ef þrösturinn væri ekki svona snemma á ferli, því á þrastakjöti mun hann aðallega fylla fóhornið, þessi ræningi, þar til fleiri farfugl- ar koma, 1. d. þúfutitlingur og stein- depill, i apríllok og maíbyrjun. Skógarþrestir og smirlar halda sig á vetrin í Suður-Evrópu og Norður- Afríku. Töluvert er af skógarþröst- um á Bretlandseyjum á vetrin, en niargt bendir á að það sjeu ekki íslendingar, heldur skógarþrestir fra Xorður-Noregi. Skógarþröstnv. Hrafn og valur, sem báðir eru lijer alt árið, eru fyrir löngu orpnir. Krummi verpir í fyrrihluta april, (4—5 egg), en valurinn um miðjan mánuðinn (4 egg). Seint í apríl verpir toppskarfurinn. Frændi hans dílaskarfurinn verpir líklegast eitt- hvað viku, eða vel það, seinna. Skarfar verpa hjer í klettum, díla- skarfurinn aðallega við Norðurland, en toppskarfurinn aðallega við suð- ur og vesturströndina. Víða erlendis verpa skarfar i trjám, því þó sund- fit sje á milli allra fjögra tánna á fótum þeirra, geta þeir setið á trjá- greinum, en það geta fæstir sund- fuglar. Sums staðar í skógum er- lendis verpa skarfar hundruðum eða þúsundum saman á litlu svæði, og eru þá oft mörg hreiður í sama trjenu. Aðrir fuglar, sem verpa um mán- aðamótin apríl og mai, eru örn (2), auðnutitlingur (6) og veiðibjalla (3), og eru allir þessir fuglar hjer ár- lnngt. Ennfremur stelkurinn, sem e.' farfugl. Álft og stokkönd, einnig árs- fuglar, verpa í byrjun maí, og skóg- arþrösturinn er að búa sjer til hreiður. (Ritað í 3. viku sumars). Ólafur Friðriksson.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.