Fálkinn


Fálkinn - 31.07.1937, Blaðsíða 2

Fálkinn - 31.07.1937, Blaðsíða 2
2 F A L K I N N -------- GAMLA BlÓ -------------- Örlöfl við Volga. Áhrifamikill sjónleikur tekinn ai' Milo Film, París, undir stjórn Wladimar Strichevsky. Leikin al' frönskum leikurum. ASalhlutverkin leika: PIERRE BLANCHAR, CHARLES VANEL, VERA KORENE, INKIJINOFF AIMOS, LABRY. Myndin verður sýnd bráðlega. Þessi stórfenglega mynd, sem far- ið hefir sigurför um allan heim er gerð eftir handriti Josefs Kasseis, eins hins ágætasta kvikmyndahöt'- undar nútimans, en tekin undir stjórn Rússans Wladimir Strichev- sky af Milo-Film í Paris. Aðalhlut- verkin eru þrjú, Vadime Borzine ferjumaður á Volga (leikinn af Pierre Blanchar), Boris Goereff ofursti (Charles Vanel) og Lydia kona hans (Vera Korene). Myndin fer fram í sjerstæðu umhverfi og mótast af hinu daglega lífi ferju- niannanna á stórfljótinu Volga, sem dag eftir dag og mánuð eftir mánuð eru á ferðum um fljótið á hinum ílatbotnuðu bátum sínum. Þeir eru ómentaðir menn og illa til fara og láta hverjum degi nægja sína þján- ing. Undantekning frá þessu er þó ferjumaðurinn Vadime. Hann hafði áður verið liðsforingi, en fyrir við- kynningu sína við unga konu, hafði maður hennar í afbrýðissemi sinni látið dæma liðsforingjann sekan fyr- ir njósnir, til útlegðar i Síberíu. En hann komst undan og tók upp falskt n.afn og lifði siðan, sem óljreyttur ferjumaður á Volga. Nú ber svo við eina nóttina, að stórt farþegaskip, sem gert hafði verið út af ýmsum ríkum mönnum i skemtiferð, brenn- .ur til kaldra kona á fljótinu, og höfðu farþegarnir kveikt i þvi í ölæði. Aðeins ein manneskja kemst lífs af, Lydia kona ofurstans. Og liðforinginn, sem nú er orðinn nær óþekkjanlegur, sem skeggjaður og óþrifalegur ferjumaður á Volga, verð- ur til að bjarga henni. Þar mætast örlög þeirra tveggja á ný, og skal ekki lýst hvernig þau verða, því að myndin gerir það best sjálf. En þess má geta, að frá upphafi lil enda er mynd þessi ein hin á- gætasta mynd, sem tekin hefir verið í Rússlandi og hinu franska kvik- myndafjelagi til mesta sóma. Hún er afar áhrifamikil, bæði fyrir leik hinna einstöku persóna og eins fyr- ir umhverfi það, sem hún er tekin i. Þykir myndin, að dómi erlendra blaða vera til stórsóma fyrir franska kvikmyndalist og leikendurnir, sem að vísu voru gamalkunnir í Frakk- landi, sem ágætir listamenn, urðu fiægir á svipstundu um allan heim, eftir að þessi mynd kom á markað- inn. Konan, sem leikur hlutverk Lydiu, Vera Korene, er talin besta leikkona hins fræga Parísarleikhúss „La Comedie Francaise". Þetta er mynd, sem óhikað má ráða öllum til að sjá, sem hafa gam- an af listfengum kvikmyndum. Hún verður sýnd á GAMLA BÍÓ innan skamms. Maður í Glasgow kom inn i búð og vildi kaupa einn spora. Af- greiðslumaðurinn áttaði sig ekki á þessu: — Einn spora? Hvað ætlið þjer að gera við hann? Þjer meinið víst tvo? — Nei, hversvegna skyldi jeg vera að eyða peningum i meira en einn. Ef jeg get komið annari hliðinni á hestinum áfram, þá hlítur hin að elta! tslensku skátarnir sem fóru á alþjóðainótið til Hollands eru nú koinnir á leiðarenda og 1 skeyti, sem frá þeim kom á mánu- daginn láta þeir vel yfir för sinni það sem af er. Þeir fóru með Lyru til Bergen en þaðan sjóleiðis til Hollands. Myndin, sem hjer birtist af þeim, er tekin uppi á Flaugar- fjalli við Bergen. jr I nöesta blaðí „FÁLKANSW birtist síðari hluti hinnar stórmerki- legu greinar um kynjalandið At- iantis, sem Fálkinn flytur fyrri hlutann af í dag. Um þetta dularfulla land hafa verið gefin út nálær.t 50.000 rit og á siðari árum fjölgar j>eim óðum, sem hallast að því, að Atlantis hafi verið til, en fyrrum vildu flestir telja Atlantis-sagnirnar þjóðsögn eina eða lygasögn. Fjórar myndir verða með seiruii hluia greinarinnar. Þá er næsta blaði saga eftir James Ashvell, sem heitir ,,Öll svörin“ og fylgir mynd sögunni. Ennfremur lítil gamansaga eftir Roda Roda, og heit- ir hún „Antipellin". Fjöldi innlendra og útlendru mynda verður í blaðinu að venjn. í greinarflokkinum Menn sem lifa verður sagt frá enska skáldinu Thom- as Hardy. Jinn mikli arfnr tslands*. (Iceland’s Great Inheritance) heitir bæklingur einn, sem nýlega er kom- inn út á ensku og ritað hefir Adam Rutherford, meðlimur kgl. enska land- fræðafjelagsins. Hann mun aldrei hafa komist hingað til lands, en þekkir land og þjóð all ítarlega af ýmsum bókum, sem hann hefir lesið. Höf- undur ber fram í ritlingi sínum þá kcnningu, að íslandi sje ætlað að verða öndvegisland frændþjóðanna á norðurlöndum og einnig allra Engilsaxa og Kelta, úr því- að fjög- ur ár eru liðin. En rökstuðning hans fyrir þessum spádómi er að sumu leyti heimt úr biblíunni, en á öðrum þræði frá ýmsum fyrirbær- um, sem höf. hefir leitast við að rannsaka á Kheopspyramídanum í Egyptalandi, en þar hefir hann dval- ið allmörg ár. Nýstárlegt mun mörg- um þykja, að höf. telur íslendinga komna af Benjamín, yngsta bróður Jósefs, sem herleiddur var og Biblí- an segir frá. Yfirleitt er bæklingur- inn hinn furðulegasti aflestrar, og má ráða íslendinum, sem ensku lesa, til þess, að kynna sjer efni hans, þvi að það er býsna sjerstætt. Ritlingur- inn fæst í bókaverslunum hjer og kostar eina krónu. Gengið á Himalaja-fjöll. 1 Himalaja-fjöllum, sem eru á landamærum Indlands og Tíbet, eru margir hnúkar, sem aldrei hefir verið gengið á. Frægastur þeirra er Everest, sem er hæsta fjall í heimi (8882 metrar). Engin bygð er þar nálægt, og er Everest ekki eins áberandi, eins og margir aðrir hnúkar þarna í fjöllunum. Það grunaði því engann, að þetta væri hæsta fjall í heimi, ekki einu sinni hresku landmælingamennina, sem úr fjarska mældu hæð hnúkanna. Það var ekki fyr en farið var að reikna út mæling- arnar, að upp úr kafinu kom að þéssi nafnlausi hnúkur, sem þá var, var hæsta fjall í heimi. Það var Inverji einn, er var starfsmaður á landmælingastöð Breta í Indlandi, sem uppgötv- aði þetta, og kom þjótandi inn á skrifstofu til deildarstjórans, og sagðist hafa fundið hæsta fjali í heimi. Fjallinu var síðan gefið nafnið Everest, eftir yfir- manni landmælinganna bresku i Indlandi, er þá var, en liann hjet Everest, og liafði fremur lítið til þess unnið, að fjallið vrði kent við hann. Marga leiðangra er búið að gera út, til þess að reyna að komast á Everest-fjall, en á- rangurslaust. Aftur á móti hefir tekist að fljúga yfir það, og taka af því ágætar ljósmyndir. , I sumar hafa menn í tvennu lagi verið að reyna að komast upp á háa fjallshnjúka í Hima- laja. Var annað þýskur leiðang- ur undir stjórn dr. Karls Win, sem er landfræðis-prófessor við háskólann í Miinchen, og var ætlunin, að reyna að komast upp á Nagna Parbat-fjall, i vesturhluta Himalaja. Er það í annað sinn sem þýskur leiðaug- ur reynir við fjall þetta, sem er -------- NÝJA BlÓ. ---------------- Hinn framliðni snýr aftnr. Stórfengleg kvikmynd, tekin af Warner Bros. First National undir stjórn Michael Curtiz. Aðalhlutverkin leika: BORIS KARLOFF, MARGUERITE CHURCHILL. Mynd þessi er að efni til ein sjerkennilegasta myndin, sem sýiid hefir verið á siðari árum. Sýnd bráðlega. Ýmsa rekur eflaust minni til blaða- frásagna af alþjóðafundi frumlu- fræðinga, sem haldinn var í Kaup- mannahöfn um þetta leyti ( fyrra. Það sem einkum vakti athygli á þeim fundi var, að þar var meðal þátttakenda hinn frægi fluggarpur Charles Lindberg. Öllum heiminum var kunnugt, hvílíkur afreksmaður hann er í flugi, en hitt kom flesí- um einkennilega fyrir sjónir, að hann skyldi vera vísindamaður og hafa fundið „gerfihjarta" það, sem við hann er kent og sýnt var þarna á alþjóðafundinum. Nú mega menn ekki halda, að þetta gerfihjarta sje þannig, að hægt sje að koma því fyrir í lif- andi manni, sem hjartað er orðið ónýtt í. Gerfihjartað er áhald, sem notað er til að koma á framhaldandi starfi í frumlum, sem búið er að taka úr þeim líkama, sem þær áttu heima í. Tökum til dæmis, að skorið sje ketstykki af nýslátruðum grip. Þá er hægt með gerfihjartanu að láta frumlurnar halda áfrain að starfa i stykkinu, eins og það væri enn á gripnum lifandi. Er þetta stórmerkt atriði fyrir þá visinda- menn, sem leggja stund á að kynn- ast starfsemi frumlanna í öllum líf- rænum verum. En sú er orsök in til þess, að Lindbergh fór að sinna þessum efn- um, að einu sinni var hann látinn fljúga með blóðvatn til spítala eins vestra til þess að bjarga vini sín- um, flugmanninum Floyd Bennelt, sem samnefndur völlur er kendur við. Bennett dó, en Lindbergh ein- setti sjer þá að kynna sjer lífeðlis- fræði og fór að stunda þessa grein hjá hinum heimsfræga eðlisfræðingi dr. Alexis Carell. Og út frá því varð gerfihjartað til. í myndinni „Hinn framliðni snýr aftur“ kemur gerfihjartað við sögu á all einkennilegan hátl. Myndin segir frá manni, sem hefir verið tekinn af lifi með rafmagni vestur í Bandaríkjunum, en síðan tekst að lífga við. Er efni myndarinnar svo sjerstætt og myndin öll svo ein- kennileg og furðuleg, að flestir munu verða forviða að sjá hana. Hún ei tekin af Warner Bros-First Nationai undir stjórn Michael Curtiz en aðal- hlutverkið leikur hinn heimsfrægi leikari Boris Karloff af dæma- fárri snild. Hefir mynd þessi orðið lil að slá því föstu, að hann sje einhver hinn sjerkennilegasti leik- ari, sem komið hefir á sjónarsvið- ið á síðustu áratugum. Nafnið virð- ist benda á, að hann sje rússneskur, en það er hann ekki. Hann er Eng- lendingur og heitir rjettu nafni William Henry Pratt, en Karloff er ættarnafn konunnar hans. afar erfitt uppgöngu. Hið fyrra sinn var í júlí 1934. Reyndi þá liópur þýskra vísindamanna, undir stjórn hins fræga fjall- göngumanns Willy Merkl, að ganga á fjall þettk. En leiðang- ursmenn fórust allir á fjallinu, en með hvaða móti vita menn Frh. á bls. 15.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.