Fálkinn


Fálkinn - 31.07.1937, Blaðsíða 11

Fálkinn - 31.07.1937, Blaðsíða 11
F Á L K I N N 11 Heimagerð „Qlettuskæri". HEIMAGERÐ „GLETTUSKÆRI". Það er ekki mikill vandi að smiða þessi skæri, sem þið hafið eflaust sjeð einhverntima. Þið sagið ykkur marga smálista úr vindlakassatrje, tólf stykki er hæfilegt og eiga styklc- in að vera 2 sentimetrar á breidd og 20 á lengd, eins og sýnt er á 1. myndinni, en Idó má hafa listana lengri, ef þið viljið ná langt með skærunum. Listarnir eiga að vera nákvæmlega jafnlangir, því að ann- ars verða skærin ekki góð. Þið legg- ið þá saman þegar þið hafið sagað þá og bindið vel utan um þá eða setjið þá í skrúfstykki og borið svo þrjú göt á þá, alla í einu (mynd 2). Götin eiga ekki að vera stærri en svo, að venjuleg pappírsklemma (mynd 4) komist gegnum þau. List- arnir eru nú settir saman með klemmunum eins og mynd 3 sýnir, Hver veit nema þið hafið eitthvert leynifjelag eins og frímúrarar — og hver hefir ekki það — svo að þið viljið skrásetja ýmislegt, sem allir mega ekki vita. Þá er gott að búa sjer til „duhnálsritvjel“, sem eflaust kem- ur ykkur að miklum notum. Það er hægt að breyta dulmálinu frá brjefi til hrjefs og það geta ekki aðrir les- ið brjefið, eða ráðið það, en þeir, sem hafa áhaldið. Þið búið ykkur til tvær pappírsskífur, eins og þær sein eru sýndar lijer á myndinni og fest- ið þær saman með pappírsklemmu, stærri skífan á að liggja neðar og á brúnina á henni, sem útundan stend- þar sýna svörtu deplarnir klemm- urnar, sem halda saman listunum. Það má ekki vera of fast á klemm- unum, því að þá verða skærin stirð í liðamótunum, en þeir eiga að geta dregist sundur og saman, alveg eins og harmonika. Svo skuluð þið klippa skemtilega mynd, t. d. eins og þá sem sjest hjerna, út úr myndablaði, líma hana á pappa og festa á ann- an oddinn á skærunum, eins og sýnt er á mynd 5. Ef þið eruð dugleg að teikna þá getið þið búið ykkur til skrípamynd sjálf og málað hana með litum. Og svo eru glettuskærin til- búin. Maður heldur á þeim eins og sýnt er á mynd 6 og þegar maður þrýstir listaendunum saman, eins og þegar klipt er með skærum, kem- ur hausinn þjótandi út i loftið, á ótrúlega löngum hálsi. • ur á maður að skrifa alt stafrofið, með jöfnu millibili milli stafanna, og í rjettri röð eftir stafrofinu. Á litlu skifuna skrifar maður lika alla staf- ina á jaðarinn, en ekki í stafrófsröð heldur á ruglingi, eins og sýnt er á mynd 2. Ef maður býr til skífur handa mörgum meðlimum i sama fje- laginu verður röð stafanna á litlu skífunni vitanlega að vera eins, því að annars er ekki gagn að henni. Mynd 3 sýnir hvernig skífurnar eru festar saman; milli þeirra er ofur- lítill pappírshringur, svo að þær nú- ist ekki saman. Þegar þið svo skrifið dulmálsbrjef þá snúið þið litlu skifunni í ákveðna afstöðu til hinnar, svo að t. d. bók- s.tafurinn P komi beint inn af A á stóru skifunni. Og nú skrifið þið á- fram, þannig að þið notið altaf stafinn sem stendur fyrir innan rjetta stafinn í stað þess rjetta. Á þennan hátt verða það skrítin orð sem þið fáið, en ef sendandi brjefs- ins skrifar aðeins A=P í hornið á brjefinu, þá veit viðtakandinn hvern- ig hann á að stilla sína skífu og get- ur svo ráðið brjefið. Ef þið hafið litlar hálmpípur (strá) getið þið spreytt ykkur á að reyna að lyfta fjórum stráum og einuin peningi með einu strái. Það virðist enginn hægðarleikur, en þó er það hægt, ef þið farið að eins og mynd- in sýnir. Brjótið hálmstráið í fjóra parta, um 10 sentimetra langa og reynið svo listina. Þetta er líkast eldspýtnaþraut, en það er ekki hægt að nota eldspýtur samt, þvi að þær eru ekki nógu sveigjanlegar. ----x---- Kakettu-biíreið. Það er orðið algengt að búa til litla leikfanga-bíla úr blýi. Þeir eru skemtilegir, en hafa einn galla: þeir hreyfast ekki nema því aðeins að ýtt sje á þá eða þeir látnir renna ofan í móti. En nú skuluð þið heyra: Sumir af þessum blýbílum eru í lag- inu eins og kappakstursbilar. Ef þið borið svolitla holu aftan í svona bifreið og stingið svo litlum „kin- verja“ í gatið, þá er billinn orðinn „rakettubíll“. Setjið hann á gólfið, helst í löngum gangi og kveikið á ,,kínverjanum“ og þá sjáið þið, að billinn getur tekið sprett. Það er líka hægt að binda „kínverjann“ á bílinn, til þess að þurfa ekki að bora gatið, en það er ekki eins gott. Hvað segið þið um að efna til kappaksturs með svona rakettu-bif- reiðum? Tóta frænka.. Ráðningin á þrautinni í næstsíð- asta blaði: Pjetnr er 10 ára og faðir hans þrjátíu. Nokkrir ferðalangar sátu saman og gortuðu af æfintýrum sinum. Þá tók Níels til máls: „Þegar jeg var vestur í Klettafjöllum var jeg van- ur að stinga hausnum út undaii tjaldskörinni áður en jeg fór að sofa á kvöldin og kalla: Vaknaðu Níels! Og þá vakti bergmálið mig stundvíslega klukkan sjö morgunin eftir“, Skák nr. 26. Drotningarbragð. Miinchen 1936. Hvítt: Einar Þorvaldsson (ísland). Svart:Gulbrandsen (Noregur). 1. d2—d4, Rg8—f6; (Svart leikur oft þannig á móti drotningarpeði í von um að hvítt leiki 2. Rgl—f3 af ótta við Búdapestarvörnina, en þá kemst svart út i gott afbrigði af Drotningar-indversku); 2. c2—c4, e7—e6; 3. Rbl—c3, d7—d5; 4ó. Bcl —g5, Bf8—e7; 5. Rgl—f3, Rb8—d7; (þetta afbrigði af drotningarbragði er nefnt Orthodoxafbrigði — ortho- dox = hinn rjetti — og er talin einhver sterkasta vörn svarts við drotningarbragði. Byrjunin krefst þó nákvæmrar þekkingar frá svarts hálfu og er ástæða til að vara þá menn við að tefla þessa byrjun, sem ekki kunna hana til fullnustu); 6. e2—e3, c7—c6; Venjulegra og betra er 6..... 0—0. Svart hefir þegar aukið á sína örðugleika. í skákinni Kmoch—Mattison Debreczin 1925 varð framhaldið á þessa leið: 7 Ddl —c2!, 0—0; 8. 0—0—0, d5xc4; 9. Bflxc4, Rf6—d5; 10. h2—h4, Kf8— e8; 11. e3—e4, Rd5xc3; 12. Dc2xc3, b7—b5; 13. Bc4—b3, Bc8—b7; 14. Kcl—bl, Dd8—b6; 15. Bg5—e3, c6 —c5; 16. d4—d5— og hvitt stend- ur betur) ;7. Dd.l—c2!, 0—0; 8. Hal —dl, Hf8—e8; 9. a2—a3, a7—a6; 10. Bfl—d3, Rd7—f8; Þessi leikqr tryggir að vísu reitinn h7 en veikir aftur á móti reitinn f7); 11. 0—0, Rf6 —d7; 12. Bg5—f4, d5xc4; 13. Bd3x c4, Rd5—b6 (Svart hefir nú leikið drotningarriddaranum tvisvar og konungsriddaranum þrisvar áður en hann hefir leikið út drotningarbisk- upnum. Slíkt er óhóf, sem svart hefir aldrei efni á, þó í lokaðri stöðu sje); 14. Bc—a2, Rb6—d5; 15. Bf4—g3, Be7—d6; 16. Rc3—e4, Bd6xg3; 17. Re4xg3! (Hvítu riddararnir eru nú í mjög góðri sóknaraðstöðu); 17.... Bc8—d7; 18. e3—e4, Rd5—e7; 19. Rf3—e5, Dd8—b8; (Ljótur leikur); 20. f2—f4, Hé8—d8; 21. f4—f5, Bd7— e8; 22. f5xe6!, f7—f6; (Svart getur ekki drepið peðið á e6. T. d. 22....... Rf8xe6; vinnur hvítt auðveldlegn við Dc2—f2! Ef 22.......f7xe6; þá 23. Hflx f8f, Kg8xf8; 24. Hdl— flt o. s. frv.); 23. Rg3—f5! Sterkt og fallega leikið. Ef 23...f6xe5 mát- ar hvítt i öðrum leik við Rf5xe7f og ,Hflxf8 mát. Ef 23......... Re7x f5 þá 24. e6—e7t Be8—f7; 25. e7xd8 D, Db8xd8; 26. Re5xf7, o. s. frv.); 23...... Dh8—c7; 24. Dc2—c5!, Be8—h5 (Svart gat eins vel gefið); 25. Dc5xe7, Dc7xe7; 26. Rf5xe7t, Kg8—h8; 27. Re5—f7t, Bli5xf7; 28. e(ixf7, gefið. — Gulbrandsen er einn af sterkustu skákmönnum Norð- manna og verður væntanlega mætt- ur fyrir þeirra liönd í Stokkhólmi núna um mánaðarmótin. — Hvað eruð þjer að glápa á, spurði bifreiðarstjórinn bóndann, — er þetta kanske fyrsti bíllinn sem þjer hafið sjeð á æfinni. — Nei, það er það ekki — en hann er alveg eins og hann. Ritvjel með leyniletri.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.