Fálkinn


Fálkinn - 15.10.1938, Blaðsíða 11

Fálkinn - 15.10.1938, Blaðsíða 11
F Á L Iv I N N 11 Kantn að nota augun? — Skemtifea athyglisþraat Horfðu á þessa mynd í nákvæmlega fjórar minútur, legðu þvínæst papp- írsblað yfir hana og reyndu, hversu mörgum af eftirfarandi spui ningum þú getur svarað eftir minni. 1) Hvaf? eru niargir drengir á myndinni? 2) HvaS eru þeir að gera'? 3) Hefur einn af drengjunmn háls- bindi, svo aS þaS sje sjáanlegt? 4) IlvaS er af búsáhöldum í eld- húsinu? 5)HvaS mörg tjöld getur maSur sjeS? (i) Eru flögg á tjöldunum? 7) IivaS eru mörg trje og runnar á myndinni? 8) HvaS sjesl í loftinu? !)) HvaS sjest á vatninu? Reyndú nú! Ef þú getur í skyndi svaraS þessum 9 spurningum rjett þá er athyglisgáfa þín í góSu lagi. Biítu skrautblömin |)ln til sjálf. Fyrir fingerðar, litiar stúlkur. Úr afklippum úr köflóttu kjóla- taui getiS þið, telpur, búiS til falleg- ustu skrautblóm á kjólana ykkar. SníSiS úr efninu tvo hringi. Annar á aS vera 10 cm. í þvermál og hinn 2—3 cm. minni, saumið þvínæst þess- ar tvær pjötlur saman í miðjunni, og um leiS rykkiS þiS þær mátulega mikiS, svo aS þær likist sem mest blómi. Inn í mitt blómiS látiS þiS fyrst 3 smáperlur eins og sjest á myndinni, og í kring um þær saumið þiS röS af lykkjum meS gullþræSi, þaS eru fræflarnir. Ef þiS notiS „organdi“ í blómiS er óþarfi aS hafa nokkurn randsaum. Ef þiS búiS til þrjú slík blóm og látið þau á tauræmu, þá er það ágætt skraut í hálsmáliS á kjólnum ykkar. « I baráttu fyrir rjettlætinu. 1) ÞaS liafði vorað seint í Kanada. Þó aS laufið væri að byrja að gægj- ast út á trjánum og grasið væri far- ið að fá á sig lit, var enn nokkur snjór í fjallahliSum, og fljótið, sem liSaðist gegn um landiS, var ennþá fult af isjökum. Eftir öllu þessu tók Bobby Packard, meðan hann í fylsta máta naut hressandi vorsvalans. BúgarSur föSur hans lá nokkuð langt frá fljótinu og Bobby hafði ekki getað neitað sjer um ])að þenna indæla dag að koma á hestbak. Ofau frá fljótinu heyrði hann undarlegan hávaða, sent hann ákvað að rannsaka nánar. — Hvað kallar maður þær verur, sem lifa sumpart í vatni og sumpart á þurru landi? — Baðgesti. 2) Hann reið í spretti, þangað lil liann komst upp á hæð, þar sem hann hafði gott útsýiii yfir iiið mikla fljót. — Hann stöðvaði hestinn i skyndi. Nokkurn spiil ofan við hæð- ina höfðu jakarnir, smærri og stærri, stifláð fljótið. Fyrir neðan þessa ís- stíflu var vatnshæðin eðlileg, en bak við hana var hún fleiri metrum yfir mcðallag. Stíflan stundi og nötraði og mundi bráðlega láta undan eftir því sem vatnsmagnið ykist er á henni hvíhli og það gat ekki liðið á löiigu þangað til, og eftirvæntingar- fullur bjóst Bobby við, þar sem hann var i öryggi upp á hæðinni, að njóta þessa stórfenglega náttúrusjón- leiks. — Hvers vegna hlóuð þjer ekki að fyndninni, sem læknirinn sagði áð- an? Hún var með bestu sögum, sem jeg liefi heyrt lengi. — Já, en mjer er illa við læknir- inn svo að jeg ætla að bíða með að hlæja þangað lil jeg kem heim. 3) Hann var öruggur! Óþægileg til- hugsun sló hann. Skamman spöl frá búgarði föður lians lá Indíánaþorp, þar sem hann hafði verið tíður gest- ur frá þvi að hann var smábarn. Þar átti hann marga vini. Einkum var Rauði Hjörtur, yngsti sonur Indíána- höfðingjans, aldavinur hans. ísinn hafði hlaðist upp um nótt- ina, enginn nema Bobby vissi um það, — og veslings Indiánarnir, sem voru úti á fljótinu í bátskriflunum sinum áttu engrar undankomu auðið ef flóðbylgjan næði þeim. Á svip- stundu sneri Bobby hestinum viS. Hann reið alt hvað aftók í áttina til þorpsins. Meðan á reiðinni stóð heyrði hann hávaðann frá ísstiflunni aukast i sí- fellu. ísjakarnir ruddust hver á ann- an og möluðust sundur eins og í ein- hverri risakvörn — og hann vonaði i hjarta sinu, að hann fengi tóm til að aðvara vini sina. Skyldi nú Bobby hitta Indi- ánana áður en stiflan gefur eftir fyrir vatnsþunganum? Lestu um það í næsta blaði. TJEKKNESKIR REIÐHESTAR Hestar og reiðmenn Tjekkóslóvaka- hersins eru taldir betur æfðir en i herjum annara þjóða. Hjer á mynd- inni sjest tjekkneskur riddaraliðs- maður leika listir sínar á hestbaki. RIDDARAR FRÁ ALSÍR hafa nýlega tekið þátt i alþjóða reið- móti í London og vakið undrun og aðdáun fyrir listir sinar. Hjer sjest einn þeirra. STÓIt BRÆÐSLUOFN. Þelta er stærsti bræðsluofninn i Evrópu og var nýlega tekinn i notk- un í Bússlandi. Er hann all ólíkur eldri bræðsluofnum að gerðinni.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.