Fálkinn - 13.01.1939, Síða 7
F Á L K I N N
7
Eins og kunnugt er voru Ungverjar
ekki seinir á sjer að gera kröfur til
landa frá Tjekkóslóvökum eftir að
Þjóðverjar höfðu fengið kröfum
sínum framgengt. Ilvort krafan
hefir verið gerð í samráði við
Þjóðverja skal ósagt látið, en hitt
er víst að vinarhót hafa verið milli
þjóðanna og í sumar leið var
Horthy ríkisstjóri Ungverja i opin-
herri heimsókn hjá Hitler og horfði
þar á flotasýningu, því aðmíráll
er hann, þó engan eigi Ungverjar
herflotann. Myndin t. h. er frá
þeirri sýninnu og sjást þeir Hitlcr
og Horthy ásamt Reader aðmírál
Þjóðverja. Að ofan sjest herskipið
„Niirnberg“ og að neðan herskipa-
röðin sigla fram hjá avisoskipinu
„Grille“, sem þeir Hitler voru á.
Myndin að neðan er af borgar-
stjóranum í Manchester, tekin er
hann var á ferð í Danmörku og
hafði skoðað danskan bóndabæ.
Myndin að ofan er frá heimsókn
þeirra Júlíönu Hollandskrónprins-
essu og manns hennar í Kaup-
mannahöfn. Höfðu þau með sjer
dóttur sína ársgamla og er hún i
körfunni, sem vinur hjónanna,
Ahlefelt greifi, ber í fanginu.
Myndin er tekin á járnbrautar-
stöðinni í Gjedser, lendingarstað
ferjunnar frá Warnemiinde.
Skipið hjer á myndinni til vinstri
lá á Reykjavíkurhöfn í sumar og
urðu mörg ungmenni til að koma
um borð í það. Því að þetta er
skipið „Orduna", sem flutti Baden
Powell lávarð og kbO skáta til Is-
lands og annara höfuðborga Norð-
urlanda. Þessi mynd er tekin í
Khöfn þegar skipið kom þar. Efst
í horninu má óljóst greina svip
alheimsskátaforingjans er hann
heilsar „þegnum“ slnum.