Fálkinn - 20.01.1939, Side 10
10
F Á L K I N N
Smáhlutir prjónaðir úr afgöngum af garni.
Þvottapoki.
Efni:
Óbleigjað bómullargarn nr. 8, gult
bómullargarn, 2 prjónar nr. 2Vt.
Prjónaaðferð:
Fitjið upp 35 1. af óbleigjaða garn-
inu. Prjónið 2 prjóna rjett; þá 6
prjóna með gula garninu og svo 2
prjóna með því óbleigjaða. Prjónið
svo áfram með óbleigjaða garninu 8
prjóna sljett prjón og svo skábrugð-
ið prjón, 3 1. r. og 3 1. br. Munstrið
flytjist um 1 1. til vinstri annan
hvern prjón. Að endingu er prjón-
aður eins bekkur og byrjað var á.
Saumið svo nafnið í bekkinn með
sljetta prjóninu. Pokinn er svo saura-
aður sanian og prjónuð lykkja fest
á hann.
Pottaleppar eða borðmottur.
Efni:
Óbleigjað bómullargarn nr. 6, rautt
bómullargarn, 2 prjónar nr. 3, hektu-
nál nr. 3.
Prjónaaðferð:
Fitjið upp 21 1. af rauða garninu.
Prjónið rjettar 1. Fyrst 2 prjóna á
þessar 21 1.; svo prjónist 18 1. og
snúið við og prjónað til baka. Prjón-
ið svo með óbleigjaða garninu fyrst
3 1. fram og til baka, þá 6, 9, 12, 15
1. á sama hátt. Þetta myndar reiti og
eru 21 slíkir reitir í mottunni. Mott-
an er saumuð saman og með rauða
garninu eru heklaðar fastalykkjur
með fram kantinum. Gatið í miðj-
unni er dregið dálítið saman með
garni og þar er lykkja fest í.
Poki fyrir púðurdós eða peninga.
Efni:
Óbleigjað bómullargarn nr. 10, al' -
gangar af sexþættu silkigarni, 2
sokkaprjónar nr. 10, gult leggingar-
band; silkiband eða rennilás.
Prjónaaðferð:
Pokinn er prjónaður eftir sömu
aðferð og borðmottan. Óbleigjaða
garnið er liaft í staðinn fyrir það
rauða og silkið í staðinn fyrir það
óbleigjaða. Fitjið upp 14. 1. af þvi
óbleigjaða og prjónið rjett. Fyrst
þessar 14 1. fram og til baka, þá 12
1., svo er prjónað með silkigarninu
fyrst 3 svo G og svo 9 1. fram og til
baka. 16 slíkir reitir eru í hvorum
helming pokans. Saumið báða helm-
ingana saman í botninn, saum;ð
leggingarbandið með fram köntun-
um sem ekki voru saumaðir og fest-
ið silkiband á til þess að festa pok-
ann saman með, en betra er samt
að festa hann saman með rennilás.
Ef vill má lika fóðra hann.
Saumahulstur.
Efni:
Óbleigjað bóniullargarn nr, 10,
sokkaprjónar nr. 10, flónel til þess
að fóðra með, linappur og sexþælt
silkigarn til að sauma i með.
Prjónaaðferð:
Fitjið upp 30 I. og prjónið rjetí
5 cm. Fitjið upp 4 aukalykkjur hvoru
megin og prjónið þannig: 1 prjónn
rjett; 2. prjónn: 4 1. r. 2 1. br., 3 1.
r. 8 1. br.; 3 1. r. 8 1. br. 4 1. r.
Haldið áfram með þessa 2 prjóna
þangað til búið er að prjóna 17 cm.
Þá er tekið úr á hverjum rjetta
prjóni með þvi að prjóna 2 I. sam-
an eftir og á undan 4 endalykkjun-
um. Þegar 14 1. eru eftir er felt af.
Saumið svo í með krosssaum eftir
meðfylgjandi munstri. Fóðrist með
flónelinu. Nú er 5 cm. með rjetta
prjóninu brotið upp og myndast þá
vasi sem i er geymt skæri, fingur-
björg og garn. Nálum er stungið í
flónelið. Lokist með lykkju og
hnappi.
Útprjónað veski með rennilás.
Efni:
Grænt og gult fjórþætt garn, 4
sokkaprjónar nr. 12 og 1 græun
rennilás 8. cm. langur.
Pr jónaaðferð:
Fitjið upp 60 1. af gula garninu á
3 umferðir brugðnar, 2 umf. rjett.
Prjónið svo með græna garninu 1
umferð rjett, 3 umf. br., 1 umf. r.
Prjónið svo eftir munstursýnishorn-
inu til skiftis gulan bekk með grænu
munstri, og grænan bekk með gulu
munstri. Þegar búið er að iirjóna 4
munsturbekki er felt af. Veskið er
fóðrað, rennilús sauinaður á, og
sauinað saman í botninn.
ðkUDikkarinn Ejston.
Sir Malcolm Campbell hefir >
mörg ár borið höfuð og herðar yfir
samtíðarmenn sína að því er snertir
hraða í bifreiðaakstri. Má segja að
hann hafi gert það að æfistarfi sínii
að lúta smíða hraðskreiðar bifreiðar
og aka þeim, enda hefir hann að
jafnaði haft hraðametið í bifreiða-
akstri síðastliðin 15 ár. í hitteð-
fyrra setti hann nýtt hraðamet og
komst Jiá 484,593 kílómetra á kluklui
slund.
Landi hans, Eyston að nafni, hefir
eigi hugsað um annað síðan en að
hrinda þessu meti og ljet smíða sjer
nýja gerð af bifreið í þeim tilgangi.
Fór hann með bifreiðina til Utah
i vetur, í þeim tilgangi að setja nýtt
met þar, á hinum seltublandna jartí-
vegi, sem þykir bestur ökuvöllur
veraldar. Rigningar komu um sama
leyti og varð hann því að bíða til
28. október með að gera tilraunina.
Til þess að setja gilt met verður
maður að aka sömu vegalengdina
fram og til baka og er mettíminn
meðaltal beggja leiða. Á útleiðinni
tókst lionum að ná 498,239 km. hraða
á klukkustund, en í bakaleiðinni
varð hann að stíga fætinum af ben-
síngjafanum, því að hann fann að
skrúfa hafði losnað í bílnum. Varð
hann nú að biða í tíu daga eftir að
bíllinn væri lagaður og fór á elgs-
veiðar á meðan, en reyndi á nýjan
leik að svo búnu.
Við þessa tilraun reyndi á taugar
hans. Hann varð tvívegis að sleppa
annari hendi af stýrinu til þess að
laga eitthvað sem aflaga fór og ná
geta nærri, að það er vandi að stýra
bifreið með annari hendi á svo geig-
vænlegri ferð. Alt er i voða, ef bíll-
inn vikur húrsbreidd frá rjettri línu.
En ekki tókst honum að sigra Camp-
bell. —
Eyston er fertugur að aldri, er
giftur maður og á tvær dætur. Síðan
hann lauk háskólanámi í Cambridge
hefir hann sífelt verið að eltast við
að setja ýmiskonar met í bifreiða-
akstri og orðið vel ágengt. Og síð-
ustu sjö árin hefir hann verið að
gera tilraunir með nýjar gerðir af
hraðaksturbifreiðum. Sú, sem liann
notar nú er á sex hjólum og ineð
henni hefir Eyston sett um 250 met
á ýmsum vegalengdum, all frá ein-
um kílómetra upp í ferðir sem telcið
hafa sólarhring.
Hann er því meðal mestu „hraða-
manna“ i heimi. Fremstur er ítalinn
Angelo sem fyrir þremur árum setti
met í flugi á sjóvjel, 709,208 km. á
lduklcustund, Þjóðverjinn Wurster
setti nýlega met á landflugvjel með
611.004 km. á klukkustund, Þjóðver.i-
inn Henne hefir komist 256.040 km.
á mótorhjóli, Cambell 208,4 km. á
á mótorbát, Frakkinn Palliard 137,33
km. á klukkustund á reiðhjóli, Frakk
inn Chancellier hefir komist 70 km.
á klukkustund ríðandi, Ameríku-
maðurinn Owens liefir hlaupið 35.9
km. á ldukkustund og Ameríkumað-
urinn Siclt synti 6,3 km. á klukku-
stund.
Útbreiöið Fálkann!