Fálkinn


Fálkinn - 25.08.1939, Side 2

Fálkinn - 25.08.1939, Side 2
2 F Á L K I N N GAMLA BIO Mjög bráðlega sýnir Gamla Bío hina stórfenglegu mynd Kreutzer- sonatan, sem gerð er eftir hinni frægu sögu Leo Tolstois. Aðalhlut- verkin leika Lil Dagover, Peter Pet- ersen og 'Albrecht Schoenhals. Fjölmargir íslendingar munu hafa lesið Kreutzersónötuna, enda hefir hún verið þýdd á íslensku fyrir nokkrum árum. — Leo Tolstoi var, sem kunnugt er, eitt af fremstu skáldum Rússa og er af mörgum tal- inn einskonar faðir þeirra rússnesku skálda, er á eftir honum komu. Kreutzersónatan verður öllum minnisstæð, er lesa hana. Atburðirn- ir eru eðlilegir en hugstæðir. Listin og ástin togast þar á, en afbrýðis- semin kemur af stað öldurótinu, sem ýtir undir að mannlegar ástríður magnast og ná hámarki sinu með sálarlegum veikleika. Ef þú sætir í járnbrautarvagnin- um með honum Andrej og hlýddir á söguna sem hann segir, myndi þjev áreiðanlega ekki leiðast. Það er sag- an af honum sjálfum, hvernig örlög- in leika hann. Það er einnig sagan af konunni hans ungu og fallegu, og vini hans Gregor, heimsfræg- um fiðlusnilling. Andrej segir sög- una sína blátt áfram og virðist ekki draga neitt undan. Hann efast ekk- erl um sekt sína, en honum virðist einnig að einhver dulin öfl hafi ráð- ið gjörðum hans — einhver öfl, sem hann ekki rjeði við. Vinur hans og konan hans koma jjcssum öflum á hreyfingu. Listin — hljóðfæralistin fer eins og vindsveipur um sálu þeirra, vekur upp gamlar þrár, sem aldrei hafa dáið eins og ætlað var, heldur aðeins blundað. Börn listar- innar skjálfa oft sem strá í vindi, er heimur tilfinninganna færir þeim nýjar sýnir. Þá er það sem alda til- finninganna flæðir um sálina, '*g rjfur með sjer frá grunni, það sem ætla mátti að ævinlega mundi standa. En svona er lífið — likinga- dæmi, sem aldrei verður leyst. Eitt i dag og annað á morgunn. Hjer verður ekki gerð tilraun til að endursegja söguna hans Andrej, j)ví að það mundi aðeins skemma hana. Hann segir hana best sjálfur, og best skilur maður hann í sögu- lokin, þegar hann segir': „Jeg get ahlrei fyrirgefið sjálfum mjer og því síður orðið sem frjáls maður. Hvað jeg ætla fyrir mjer veit jeg ekki. En eitthvað verð jeg að gera, svo að hún fyrirgefi mjer.'11 — Þessi orð loða lengi i minni, þegar maður |)ekkir ])á forsögu, sem hjer hefir átt sjer stað. Kreutzersónatan er án efa einhver sú minnisstæðasta mynd, sem maður sjer og þessvegna ætti fólk ekki að láta slíka mynd fara fram hjá sjer. VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. Ritstjórar: Skúli Skúlason. Lúðvík Kristjánsson. Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Aöatskrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavik. Simi 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-0. Skrifstofa í Oslo: Anton Schjötsgade 14. Blaðið kemur út hvern föstudag. Áskriftarverð er kr. 1.50 á mán., kr. 4.50 á ársfj. og 18 kr. árg. Erlendis 24 kr. Allar áskriftir greiðist fyrirfram. Auglýsingaverð: 20 aura millim. HERBERTSprent. Skraddaraþankar Vex hugur þá vel gengur. Það er vert að veita því eftir- tekt hve þjóðinni hefir vaxið hugur á síðasta mannsaldri. Hún ræðst í hvert fyrirtækið af öðru, sem áður þótti óhugs- andi og framkvæmir mann- virki, sem áður vorn talin ó- vinnandi. Tökum nokkur dæmi. Fyrir mannsaldri var það talið ó- vinnandi verk að brúa ýmsar jökulár, sem nú hafa verið undir brúm mörg ár. Jökulsá, Þverá, Markarfljót, Hjeraðsvötn alt voru þetta talin óbrú- andi vatnsföll áður. Það var tal- ið óvinnandi verk að koma simasambandi yfir sandana sunnan Vatnajökuls, vegna þess að sírninn lijeldist ekki. Síðar var símalínan sett, þó menn vissu, að hún mundi kubbast i sundur í árflóðum — sem og varð. Áður þótti það óhugsandi verk, að stemma sligu fyrir sandfokinu. Það var reynt að tefja fyrir því og ýmsir bænd- ur óku foksandi af túnum sín- um alt vorið, en sættu sig við þá tilhugsun, að jörðin yrði örfoka fyr eða síðar. Nú hefta menn ekki aðeins sandfok þar sein það er í byrjun heldur græða upp örfoka land og hafa gert stórjarðir úr sandfokskot- unum. Árum og öldum saman hafa jökulárnar rifið og tælt i suridur blómlegt graslendi og breikkað sína eigin auraslóð. Nú hlaða menn fyrir þessar ár og stöðva þær, þvert ofan i mótmæli „gamalla og reyndra manna“, sem segja að þetta sje ómögulegt. Þeir gömlu og reyndu eru að vísu oft góðir, en þeir eru ekki óskeikulir. Það var gömul reynsla, að menn ættu að láta sjer vaxa alt í augum og sætta sig við það eins og hver önn- ur örlög, að skemdaröflin ljeki lausum hala. Það mátti helst ekki reyna neitt nýtt, því að gömul reynsla var ekki fyrir því. Aldrei mjakast út úr bein- troðinni götu. Og skaðlegast í allri þessari gömlu reynslu var, að maður ætti ekki að trúa á landið. Til þess að afsaka eigin ódugnað og slen, syfjuhátt og amlóða- skap, var því jafnan haldið á lofti, að landið væri slæmt land, hrjóstrugt og hættulegt. Allar ófarir voru landinu að kenna. Jarðveginum, sjónum og veðráttunni. Margt hefir áunnist síðustu áratugum, en þó er mest um það vert, að nú líðst amlóðanum ekki að kenna landinu uin. Það vita bæði guð og menn, að sá sem það gerir fer með lygi, og er sekur um skakkaföllin sjálfur. I NÆSTA BLAÐI FÁLKANS: Grein um Barnafcss, eftir Þorstein Jósefsson. — Tvær sögur. — Frjettamyndir. — Barnadálkur. — Skrítlur. — Kvennasíða. — Krossgáta. — Grein um Winston Chur- chill. — Grein um Zog Albanakonung o. m. fl. NYJA BIO Nýja Bíó sýnir á næstunni kvik- inyndina Victoria mikla Englands- drottning. Aðalhlutverkin leika Anna Neagle og Anton Walbrook. Ein af þeim konum, sem hæst bera í veraldarsögunni er Victoria Englandsdrottning. Hún hefir fyrir margra liluta sakir verið kona mjög sjerstæð og eflaust hefði sópað að henni, hvar sem hún hefði verið og hvaða störfum sem hún hefði gegnt. En nú lá það fyrir henni að vera krýnd lil drotningar 18 ára gömul. krýnd til þess að stjórna Bretaveldi. Victoria tók þegar i byrjun starf sitt mjög alvarlega, og sýndi skjótt að luin gat verið einbeitt og umsvifa- mikil, ef þess þurfti með. — Ætla má að margir hafi viljað vinna ástiv hinnar ungu og voldugu drotningar. Og Englendingar vildu vitanlega sjá fyrir því, að drotningin þeirra pipr- aði ekki. •— Prins Albert, sá þýski, var álitinn samboðinn drotningu og þess vegna var leitað til hans. Drotn- ingunni þótti sjer misboðið að fá ekki að ráða þvi ein, hver yrði maki hennar. Hún ásetti sjer því að taka á móti Albert með snúðugheit- um og kulda. Og hann, sem frjeil hafði, að mikilmenska og yfirhorðs- háttur einkendu drotninguna, hafði ásett sjer að vera stuttur í spuna við hana og láta ekki á þvi bera á neinn háft, að það væri hans þægðin að vera kominn þangað. — Þannig var jarðvegurinn fyrir hjónabandi vold- ugustu konunnar í Evrópu. En for- lögin ófu hjer sem oftar, undursam- legan vef, sem minsta kosti ViCtoria og Álbert, áttuðu sig ekki á þektu livorki fyrirvaf nje uppistöðu. Hjónaband þeirra var langvint og merkilegt og í sögu Englands heíii' það fengið á sig Ijóma æfintýranna, eins og reyndar svo margt, er snert- ir Victoriu drotningu. Þau bjuggu saman i 21 ár. Stundum urðu átök á milli þeirra, því að hin lundríka kona vildi l'á flestu ráðið. En Al- bert reyndist hinn stjórnspaki mað- ur, sem Victoria virti æ meir sem hún kyntist honúm. Og að lionum iátniim hjelt hún áfram að stjórna Englandi í hans anda. •— Reyndar dró hún sig nokkuð í hlje frá stjórn- arstörfum, þegar Albert fjell frá, því að þá hrökk sá strengurinn, sem luin hafði þekt traustastan. — E:i i hvert sinn sem landið krafðist sterkfar stjórnar þá kom hún til skjalanna. Undir hennar hyggnu og duglegu stjórn óx England í það, að verða heimsveldi. Þessi kvikmynd er stórfengleg lýs- ing á hinni löngu og viðburðaríku sljórnarævi Victoriu drotningar og jafnframt lýsir hún einhverri aðdá- unarverðustu ástarsögu veraldarinn- Vel i svarað. Rimskij, marskálkur Pólverja og hæstráðandi hersins, hafði fyrir nokkru verið í veislu, ásamt þýska hermálafulltrúanum við sendisveit- ina í Varsjá. Voru þeir að tala sam- an um hermál, og sagðist fulltrú- inn ekki skilja í þvi, að Pólverjar legðu svo mikla áherslu á að koma sjer upp bifreiðum til hernaðar- þarfa, úr því að vegirnir í Póllandi væru svo slæmir. Marskálkurinn svaraði: „Jú, það er satt. En þið liafið svo ágæta bifreiðavegi í Þýska- landi“! Kaffimynd Picasso. Mynd eftir hinn heimsfræga Pic- asso var nýlega á sýningu í London. Er hún þannig tilkomin, að einu sinni sat Picasso á kaffihúsi með franska skáldinu Paul Sluard og konu hans. Varð hann svo gagn- tekinn af fegurð frúarinnar, að hon- um fanst hann mega til að gera mynd af henni. En af því að hann liafði enga lili með sjer, teiknaði hann myndina með kaffi úr bollanum sínum og varastifti frúarinnar. Nú kostar þessi mynd 20.000 krónur. Hreiður í flugvjelinni. Rauðbrystingur einn verpti i vor í væng á flugvjel, sem stóð á flug- vellinum í Denham í Englandi. Hafði fuglinn fundið hentuga holu í vængn- um og gerði sjer þar hreiður og verpti sex eggjum. Vildi hann ekki yfirgefa hreiðrið, og þegar nota skyldi vjelina í ferð til Reading, varð hann með sem farþegi. Það er ekki nema 100 kílómetra leið. í Reading flaug rauðbrystingurinn út og skoðaði bæinn, en varð svo sam- ferða heim aftur. Hefir hann nú ungað út eggjum og má gera ráð fyrir, að afkvæmin verði ekki loft- hrædd. Alll ineð Islenskuin skrpum1 Guðinundur Guðmundsson, irje- smiður, Bjargárstíg tk, uerður 80 úra 25. þ. m. (í dag). Karlmenn svi.tna meira en konur. Molineri heilir læknir einn við hverabaðstað í Lychon í Pyrenea- fjöllum. Hefir hann komist að þeirri niðurstöðu, að karlmenn svitni miklu meira en konur, og hefir meira að segja mælt mismuninn. í Lynchon er baðstofa neðanjarðar þar sem 30 -40 stiga heitar brennisteinsgufur með radíum koma upp úr jörðinni og í þessum helli hefir Molineri gerl rannsóknir sinar. Karlmennirnir eru allir í einu svitalöðri þremur mín- útum eftir að jieir koma í baðið, en kvenfólkið fer ekki að svitna fyr en eftir sjö mínútur. En þó að kven- fólkið svitni minna og standist bet- ur hitann þá ljettist það eigi að síður eins mikið og karlmennirnir. Eftir stundarfjórðungs veru í þessii þrifabaði hefir manneskjan ljest um I til 2 pund.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.