Fálkinn


Fálkinn - 01.12.1939, Page 12

Fálkinn - 01.12.1939, Page 12
12 F Á L K I N N SUNDRUÐ HJORTU Skáldsaga eftir Blank Eismann |Q^BF='"----=1t===^ 5. . ,^l__|t=^=====iBEEEg©| vel áðui' en við höldum áfram. Hann talaði í svo djörfum skiþunarróm, að náungarnir hörfuðu undan, án þess að malda í móinn. Natasja varp öndinni er þau voru komin inn í herbergið, sem veitingakonan liafði búið banda þeim á efra loftinu. Boris setti hana varlega á stól og sagði við konuria, sem liafði fylgst með þeim upp: — Þjer ætlið svo að sjá um, að jeg fái nýja hesta, sem allra fyrst. — Já, sjálfsagt, maður minn. Jeg má engan tíma missa, og jeg' skal horga yður ríflega aukaþóknun, ef þjer verðið fljót að úlvega hestana. — Jeg skal sjá um það alt, þjer megið reiða yður á það. Hvílið þið ykkur bara á meðan. Á jeg ekki að koma með toddy? Mjer sýnist konunni yðar ekki veita af ein- hverju til að hlýja sjer á — hún skelfur af kulda, veslingurinn. Eða kanske hún sje hrædd ? — Hvað ætti hún svo sem að hræðast? spurði Boris og gerði sjer látalæti. — Þetta eru róstutímar, og eiginlega finst mjer mega segja með sanni, að það sje varla forsvaranlegt, að aka svona langa leið i sleða með barnunga konuna sína i svona kulda og um miðja nótt. Boris var að missa þolinmæðina yfir öllu þessu masi kerlingarinnar. — Látið okkur þá fá þetta toddy! Og látið þjer hestana koma fljótt. Konan skondraði til hans augunum og tautaði: — Þið munuð vera á brúðkaupsferð, er ekki svo? Og eruð óþolinmóð eftir að fá að vera ein? Ojú, ætli jeg þekki það ekki. Jeg hefi líka verið nýgift einu sinni, þó að það sje nú orðið Iangt síðan. Boris reyndi sem hann gat að láta ekki sjást, hvað hann var vandræðalegur. — Ivonan — hm — mín hefir víst gott af heitu toddy, en við þurfum að lialda á- fram sem allra fyrst. Hann tók varlega i handlegginn á gömlu konunni og ýtti henni út úr dyrunum. Þegar hurðin hafði lokast varð vandræða- leg þögn inni hjá þeim Boris og Natösju, l>angað til loksins að hún spurði: — Hvað á þetta alt eiginlega að þýða, Boris ? Hann forðaðist að líta á hana, en svaraði loðmæltur: — Við urðum að gefast upp á flóttanum, barónessa. — Erum við ekki komin vfir landamærin ennþá? spurði hún lirædd. — Nei, hestarnir gáfust upp. Tveir þeirra duttu og gátu ekki staðið upp aftur. Hún spratt upp og greip í handlegginn á Boris. — Þá er úti um okkur? — Nei, harónessa. Hjerna þekkir enginn okkur. Fólkið lieldur að við sjeum hænda- hjón á leið í kaupstaðinn. Ef okkur tekst að leika þann leik á enda, þá tekst okkur von- andi að komast vestur yfir landamærin fyrir sólarupprás, þrátt fyrir þessa töf- En ef þeir uppgötva, að við erum flóttamenn? Það er undir okkur sjálfum komið, hvort þeir uppgötva það. Hvað áttu við? Hann þagði vandræðalegur: Þjer verð- ið, barónessa, að sætta yður við, að jeg leiki hlutverk umhyggjusams eiginmanus úl í æsar, jíegar aðrir eru viðstaddir. Vonandi verður þetta ekki nema svo sem tvo tíma. Við höklum áfram undir eins og við fáum aðra hesta. Veitingakonan kom inn áður en Natasja gat svarað — eftir að hafa drepið laust á dyrnar — og var með tvö glös af rjúkandi tockly. Boris tók við þeim úr höndunum á henni, og er konan dokaði við á þröskuld- inum, sagði hann kumpánlega við Natösju: Drektu þetla, Olga þú hefir gott af því. Natasja kinkaði kolli. — Þakka þjer fyrir, Boris minn. Hún teygaði toddyið og varð notalegt inn- vortis, er hún fann, hvernig það hitaði. Bros Ijek um varir liennar. Eftir allar þær skelf- ingar, sem hún hafði upplifað síðustu tím- ana fanst henni nú, að sig væri að dreyma. Alt í einu rifjaðist það upp fyrir henni, þegar hún og Boris voru að leika „pabba og mömmu“ við brúðurnar hennar, þegar þau voru börn. Nú ljeku þau sama leikinn, en i þetta sinn var það til að hjarga lífinu. Brúð- urnar voru á bak og burt og telpan og drengurinn voru orðin fullvaxla. Og þau voru ekki að leika sjer á Franzowahöllinni, stóru og ríkmannlegu, heldur i sveitakrá, þar sem njósnarar lágu í leyni, rciðuhúnir til að skjóta þau, ef þau ljeki ekki nógu vek Ilvað lífið getur leitt manninn út á ein- kennilegar brautir! Undan hálfofnum augnalokunum sá Natasja æskuleikbróðir sinn, og nú sá liún fyrsta skifti, að hann var fríður maður og áreiðanlega mundi mörg stúlkan hafa heillast af honum. En þegar hún tók eftir að hann horfði á hana líka, þá kom einhver kynleg óró yfir hana. Hún horfði kvíðandi til allra hliða. Þarna í lágu stofunni með skræpóttu gluggatjöld- unum, álli hún þá að dvelja ein með hon- um næstu tvo — þrjá tímana.... Hún var svo þreytt, að hana langaði mesl til að fleygja sjer upp í breiða rúmið, sem náði mikið til meðfram langveggnum En einhver undarleg feimni varnaði henni að gera það. Hvað var það, sem liafði gerst í sál henn- ar? Hversvegna barðist hjarta liennar svo ákaft þegar hún horfði á Boris? Hvers- vegna roðnaði hún, þegar liann talaði við hana og stjanaði kringum liana? í ár og <iaga, frá því að hún var smákrakki, hafði hún sjeð hann daglega og aldrei verið feimin við hann. Og nú það lá við, að hún væri hrædd við að vera ein með hon- nm ráðsmanni föður síns! Hún reyndi að reka þessar heimskulegu hugsanir á brott með því að brosa, en það vildi ekki takast. Hún gat ekki varist að hugsa til þess, sem hún hafði lieyrt Sonju Jegorowna segja við hann í gærkvöldi. Skyndilega sá hún æskuvin sinn í alveg nýju Ijósi. Það var eins og orð Sonju hefðu rifið hindi frá augunum á héhni og komið henni lil að lnigleiða það, sem henni liafði aldrei dottið i liug áður að Boris Petro- vitsj elskaði hana. Já, hann — bóndinn, sem stóð svo miklu lægra en hún — hann elskaði dóttur hús- bónda síns. Það var ástæðap til, að hann flýði ekki, eins og alt hitt fólkið, ástæðan til þess að hann varð eftir í höllinni, þrátt fvrir liótanir Sonju. Af ást var það, sem hann lagði líf sitl í hættu til að frelsa hana! Og nú var lum ein með honum innan um þetta fólk, sem hjelt, að þau væru hjón! Muridi hann nota þetta tækifæri til að tjá henni ást sína? Nei, það mátti aldrei ske! Hann var þjónninn — hún var tigin kona. Hann hóndi, liún af liáum aðli. Og hún var heit- bundin manni úr sinni stjelt, harón Dimitri von Platenoff. Farðu út og athugaðu, hvort liest- arnir eru ekki komnir. Veitingakonan gerir okkur aðvart þegar þeir eru tilhúnir. — Það gengur máske fljótara, ef þú ert sjálfur viðstaddur. Það mundi vekja grun og tortryggni, ef jeg ræki um of á eftir. Við sitjum hjer og eyðum dýrmæt- um tíma. Þjer skuluð vera róleg, harónessa, jeg skal gera alt sem unt er til þess að vinna upp tímann, sem við höfum mist. En fyrs l um sinn er ekki annað að gera en biða. Hann hjelt hendinni um mittið á Natösju o<\ gekk til dyra.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.