Fálkinn


Fálkinn - 01.12.1939, Síða 13

Fálkinn - 01.12.1939, Síða 13
F Á L K 1 N N 13 □ laíur viö Faxaíen: Um bækur og rithöfunda Á að telja ísland til Ameríku? Grœnland er nú á öllum landa- brjefum talið til Ameríku, en svo hefir ekki altaf verið. Fyrir 30 til 40 árum var það jafnan lalið hluti af Evrópu, og sáust hjer engin landa- hrjef, að það vœri ekki talið svo. Man jeg hve forviða jeg varð í fyrsta skifti, er jeg lieyrði þess getið, að sumir vildu telja það til vesturheims, og af ]iví jeg hafði vanist hinu, þótti mjei' það þá einkennileg fjarstæða. Jcg var fyrir löngu búinn að gleyma þessu, en því skaut upp í liuga mjer, er jeg sá rilgerð í amer- ísku timariti, eftir Yilhjálm Stefáns- son landkönnuð, en þar laldi hann ísland með hinum nýja heimi — Ameríku. Kom mjer þctta þá viðlika mikið á óvart, eins og frásögnin um Grænland fyr. En nú hefir Vilhjálmur ritað bók um ísland á ensku, og her luin nafn- ið: ísland. Fyrsia ameriska lýðveld- ið.') Hefir hún vakið meiri eftir- tekt í hinum enskumælandi heimi, en nokkur ftnnur bók, er rituð hefir verið um Island á síðari tímum, og ef til vill meiri, en nokkur bók um landið okkar. Flytja Bandaríkjablöð- in mjög lofsamlega ritdóma um liana, og sum þeirra birta jafnframt myndir frá íslandi. í sjerútgáfu stórhlaðsins New York Herald Tribune um bæk- ur, birtist þannig grein um þessa bók á fremstu síðu, og nær fyrir- sögnin jivert yfir blaðið, og einnig mynd frá íslandi, er nær yfir alla dálkana. Er myndin úr hókinni, og sjest á lienni fjárrekstur, en í bak- sýn er Akureyri, sjeð yfir Pollinn. Segir ritdómarinn, að þegar Vil- hjálmur Stefánsson riti bók, þá sje húist við livorttveggju, að bókin sje skemtileg, og að efni hennar sje þess vert, að því sje gaumur gefinn — og svo sje um ]iessa hók. Flytur greinin ýms lofsamleg ummæli um ‘) Iceland. The First American Bepuhlic. New York 1939. Kostnað- armenn: Douhleday, Doran & Go. Verð 3% dollar. íslendinga, og endar á þvi, að Vil- hjálmur hafi gert fyrsta ameríska lýðveldinu (íslandi), og stærsta amer- íska lýðveldinu (Bandaríkjunuin) verulegan greiða með því að rita þessa bók. Aðrir ritdómar, er jeg liefi sjeð, eru í aðalatriðúm mjög líkir þessum dómi. Bókin er 275 hls. að stærð, og er allur frágangur hennar liinn prýði- legasti, og það þó miðað sje við hinn enskumælandi heim. — Um tuttugu myndir eru i henni, og taka þær að vali fram flestum myndum, sem verið hafa i bókum um ísland. Vilhjálmur Stefánsson. Formála fyrir bókinni hefir ritað Theódór Hoosevell Theódórsson for- seta, ]iess er var Bandaríkjaforseti á árunum 1901—1909, og var einn hinn merkasti í hinni löngu röð af merk- um mönnum, er gegnt hafa forseta- starfi í ]iessu stærsta lýðveldi heims- ins. Var hann auk þess, er hann var í stjórnmálunum, jafnvígur livort eð heldur var til slórræða, svo sem hernaðar og ljónaveiða, eða til vís- inda- eða hókmentaiðkana, og mun hann liafa átt fáa sína jafnoka á vor- um tímum. Átti ísland góðan vin, ]iar sem hann var, svo sem sjá má meðal annars á æfisögu Bryce lá- varðs, þeirri, er hann sjálfur ritaði. En þessi Theódór yngri Roosevelt, yirðist hafa mjög hinn sama hug til íslands. Bókin flytur kafla um sögu lands- ins, bókmentir vorar nú á dögum, fræðslumál, heilbrigðismál, sam- vinnuhreyfinganna, iðnað, verslun o. s. frv. En aftan við hana eru ýmsar töflur til skýringar. Fyrsta kaflann byrjar höfundurinn á því, að segja, að honum finnist kóminn tími til, að Bandaríkin og Kanada uppgötvuðu þjóðina, sem fyrst uppgötvuðu meg- inland Ameríku. En þegar ísland fanst, var að lians dómi fundin Amer- íka, eða hinn nýi heimur. Margt seg- ir hann að sje líkt (þó margt sje einnig ólíkt), með fyrsta lýðveldi Ameriku og því stærsta — íslandi og Bandaríkjunum. Bendir hann á, að þó Bandarikin liafi nú staðið í hálfa aðra öld, hafi íslenska lýðveldið, sem leið undir lok 1262, þó staðið 180 árum lengur en Bandarikin eru húin að vera til. Dó margir niunu líta á ísland eins og einskonar stiklu milli Norðurálfu og Veslurheims, segir Vilhjálmur, að enginn vafi sje á, að rjettilega beri að telja það til hins siðarnefnda, og segir, að landfræðingar geri það, og telur fram mörg rök því lil stuðn- ings. Eitt er það, að ekki eru neina 180 sjómílur milli íslands og Græn- lands, en milli íslands og Skotlands 500 sjómílur. Telur hann ekki ó- sennilegt, að stundum kunni að sjást af háfjöllum milli landanna, og að liað hafi verið íslensk börn, sem af fjöllum á Vestfjörðum, fyrst hvítra manna litu Grænland. Hefir ]iað lengi verið trú manna, hjer á landi, að sjá mætti bæði löndin i einu, ef ver- ið væri á skipi milli þeirra. En ef það væri hægt, ætti eins að vera hægt, að sjá efstu fjallatinda Græn- lands megin af fjöllum lijer. Það mun þó ekki vera rjett, að þetta sje liægt. Til þess að bunga jarðarinnar skyggi ekki sýn á þessari 180 sjómílna leið, þyrftu fjöllin livoru megin, að vera lirefalt til fjórfalt liærri en Esjan, eða að samanlögðu háðu megin, sjö þúsund metra. En þau eru hjerna megin ekki nema 500—1000 metra, og Grænlands meg- in 2300 metra. Þetta er ekki einu sinni helmingur af þeirri hæð, sem þarf. Hæð Snæfellsjökuls og Forels- fjalls í Grænlandi eru að samanlögðu nokkuð meira eða á fimta þúsund metra, en milli þeirra er helmingi lengra, en þar sem styst er, svo að þar kemur enn síður til mála að sjáist á milli. En svo eru hillingarnar. Það er ekki gott að fullyrða, að ekki geti sjest á milli í hillingum, og vist er, að Skrælingjar i Loðnuveiðahjeraði á Austur-Grænlandi, vissu, þegar hvít- ir menn komu fyrst til þeirra, um iand er var í þá átt, er ísland lá frá þeim. Kölluðu þeir það Akúvílnekk (áhersla á síðasta atkvæði, sagði mjer Knútur Rasmussen). Orðið kvað þýða landið hinumegin við haf- ið, og hafa Skrælingjar nefnt fleiri lönd þetta. Vilhjálmi liefir tekist ágætlega að sýna bæði landið og lijóðina frá þeim hliðum, sem best lætur, án þess að fara með ýkjur. Víst má telja, að svo reyndur visindamaður, sein Villijálmur er, þá fari hann með cnga tölu rangt, móti hetri vitund. En á einum stað fer hann með hundraðs- tölu, eins og hún væri hluti úr þús- undi, og mun þetta liafa orðið óvart. En með þessu fækkar hann óskilgetn- um börnum á landi voru úr fimta- hluta niður í fimtugastahluta, og er hætta á, að nokkur grunur falli á liann að hann liafi með þessu verið að bæta þarna, í þágu ættlands síns, það, sem þeir íbúar stærsta lýðveldisins kynni miður að líka, eða þeir af þeim, sem ekki líta á þessi mál með sama liisp- urleysi og við hjerna i landi fyrsta lýðveldisins. Sá kafli bók- arinnar, sem merkilegastur er frá sjónarmiði okkar íslendinga sjálfra, er um fund íslands, og ferðir hingað fyrir daga Ingólfs. Má nú fullvíst telja, að ísland hafi verið fundið mörg um öldum fyr en alment er talið. Hefði þarna mátt vera frásögn um róm- versku peningana frá þriðju öld, er fundist hafa á tveim stöðum á Aust- urlandi, en það er of langl mál að fara út í hjer, þó mjög sje það hug- næmt. Enginn vafi er á því að þessi bók verður stórum til þess að auka þekk- inguna á íslandi og fslendingum. Boris andvarpaði og settist á stól við gluggann, dró gluggatjaldið til liliðar og starði út í myrkrið. Dað leið löng stund án þess að þau mæltu orð. Natasja kúrði í öðru horninu á löng- um og hörðum legubekk. Þó hún streitt- ist á móti þá hlundaði hún nokkrar mín- útur. Þegar hún vaknaði og hrökk upp mætti hún augnaráði Boris. Hann horfði á hana stórum, dökkum augum. ()g lijarta hennar fór aftur að slá, svo hart, að hún fann livert slag. Til þess að reyna að róast fór hún að liugsa um unn- iista sinn, en það varð ósjálfrátt til þess, að hún bar liann og Boris saman. Hún reyndi sem hún gat að hrista þessar hugsanir af sjer, en þegar það tókst ekki skipaði liún í annað sinn: Farðu niður og híddu þar þangað lil liestarnir eru komnir fyrir sleðann, Boris Petrovitsj - jeg vil vera ein. í sama bili óx bávaðinn og lætin í veil- ingastofunni og klunnalegt fótatak lieyrðist í stiganum. Það var barið bylmingshögg á dyrnar og kallað hásri röddu fyrir utan: Opnið þið þarna, inni og sýnið mjer vegalirjefið ykkar. Ef þið eruð ekki bænda- fólk þá sendum við yður til helvítis. Við liöfum ekkert að gera við flóttamenn og aðals illþýði í þessu liúsi. Natasja starði óttaslegin á Boris, sem stóð í rniðju herherginu og hnyklaði hrún- irnar. Hann svaraði enn engu og hún gat ekki komið upp orði fyrir hræðslu, en hljóp og hjúfraði sig upp að lionum. En liann tók utan um liana, þarna sem Inin liriðskalf, og hvislaði: Verið ekki hrædd. Jeg skal vera vörð- ur yðai' sem hingað til. Það er aðeins um að gera, að leika leikinn áfram og ]iá kom- umst við undan. En ef þeir trúa okkur ekki? Þeir geta ekki annað. Hann hjelt hendinni um mittið á Natösju og gekk til dyra. Það hreyfðist ekki nokk- ur taug í andlitinu á honum, er íiann stóð andspænis heilum hóp drukkinna manna. Hann var jafn rólegur og nokkur maður getur verið, þegar hann spurði: Hvað eruð þið að lirópa og gala? Er jeg ekki búinn að segja ykkur, að jeg er á leiðinni i kaupstaðinn með komma mina? Hún er ekki konan þin, lirópuðu drykkjurútarnir allir í senn. Augu Boris Petrovitsj skutu neistum. Hver ykkar þorir að endurtaka þá staðhæfingu? Einn af drjólunum kom fram, lagði und- ir flalt og mældi Natönsju frá hvirfli til ilja og sagði með hásri brennivínsraust: — Jeg hefi sagt fjelögum mínum lijerna, að Nikita Ahraliamits Osinski liafi orðið að gefast upp við að elta eitthvað aðalshyski, sem flýði, vegna þess að hann misti hest- ana sína ofan um ís, og honum og hans fólki var bjargað með naumindum. Hann varð mállaus af hræðslu, en með ýmsum bendingum og brettum sagði hann mjer að reka flóttann áfram. Hann gaf mjer stefn- una og henni liefi jeg haldið þangað til jeg kom hingað á veitingahúsið. Jeg þori að bölva mjer upp á, að þú og kvenmaður- in þarna eru þessir flóttamenn. Osinski hef- ir lofað mjer sjerstökum verðlaunum, ef jeg get skilað ykkur til hans. Boris fann, að Natasja skalf í höndunum á honum og sá að liún varð náföl. Til þess að bændurnir sæju þetta ekki bevgði liann sig yfir hana og sagði lilæjandi: — Hef- irðu nokkurtíma lieyrt þvílíka vitleysu, Olga Feodorowna? Þeir salca okkur um að vera flóttamenn og meira að segja ríkt að-

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.