Fálkinn - 14.03.1941, Blaðsíða 1
16 sfður
Reykjavík, föstudaginn 14. mars 1941.
XIV.
60 aura
»ÚTILEGUMENN í ODÁÐAHRAUN«
I vikunni, sem leið, flutti Ólafur Jónsson framkvæmdastjóri Ræktunarfjelags Norðurlands, einkar fróðlegan fyrirlestur, með
fjölda ágætra mynda, á skemtifundi Ferðafjelagsins. Ólafur er sjálfur einn í hópi þeirra ágætu áhugamanna, sem hafa stofn-
að sjerstaka deild fyrir Norðurland, og á þann hátt hefir heildarsamtökunum bæst ómetanlegur styrkur. Fyrirlestur ólafs,
sem áður er getið, fjallaði um ódáðahraun — þann hluta landsins, sem samkvæmt nafni sinu þykir einna óvistlegastur að-
komu, þeim sem í fjarlægð búa. Hann sagði frá undrum þessa svæðis, frá þeim margvíslegu náttúrufyrirbrigðum, sem þar
eru, en einn var þó leiðarsteinninn: Herðubreið, sem skagar upp yfir allar dyngjur. Myndin er tekin úr einni af fyrstu ferð-
um Ölafs — því þær eru orðnar margar — og er eftir Edv. Sigurgeirsson, förunaut hans, og sýnir Herðubreið þannig, að
snjókollurinn, sem ekki sjest nema frá sumum hliðum, er mjög greinilegur á myndinni.