Fálkinn - 12.09.1941, Page 6
G
F Á L K I N N
Thayer Waldo:
Spádómurinn.
Pjetur 5igurðssDn:
Mí sa vjí ela r,
slórbrotnír menn,
lltVQttlirind,
IVÍISSKILJIÐ ínig ekki -— jeg hefi
þekt Dennis Donegal í tíu ár
og dcttur ekki í hug að neita, að
hann sje dálítið einkennilegur. Blátt
áfram eins og hálfviti, gæti niaður
freistast til að segja. En jeg veit að
hann var besta skinn og mjer dett-
ur ekki í hug að vera hræddur um
hann. Það er að segja -— datt það
ekki i hug þangað lil á.laugardaginn
var. Þá hringdi hann til mín um mið-
næltið.
— Farðu á fætur og flýttu þjer
hingað til min eins og þú getur,
öskraði hann í simann og- sleit svo
samhandið. Hann virtist vera talsvert
æstur.
Um leið og jeg borga bifreiðina
fyrir utan húsdyrnar hjá honum,
kemur litill mjóleitur maður til min
og gægist inn í bifreiðina. Það var
Michael gamli.
—Guði sje lof að þjer komuð! sagði
hann með skjálfandi rödd og augun
ranghvolfdust af geðshræringu.
— Hvað er eiginlega um að vera,
Michael. Hann er víst ekki veikur?
— Ekki veikur eins og þjer eigið
við, sir, en-----J)að er best að þjer
farið upp til hans og talið við unga
Dennis sjálfan. Jeg gat nú, hvað
sem öðru leið, ekki varist að brosa
að Michael. Dennis er þrjátíu og
tveggja ára, en gamli maðurinn held-
ur víst áfram að kalla liann unga
Dennis meðan hann lifir.
Dennis sat við arininn og eldur-
inn brann glatt. Hann starði inn í eld-
inn. Hann leit ekki einu sinni við
þegar jeg kom inn. — Fáðu þjer stól
og taktu þjer glas, sagði hann —
það var fallega gert af þjer að koma
svona fljótt.
— Hvað á þetta eiginlega að þýða?
spurði jeg. Hefir læknirinn komið
hingað?
Hann hvesti á mig augun eins og
hann ætlaði að reka mig í gegn.
— Hefir þú nokkurntíma heyrt mig
kvarta undan veikindum? spurði hann
hvasst. Nei! En þú ert málaflutn-
ingsmaðurinn minn. Geturðu sagt
mjer hversvegna þú ert svona dauð-
ýflislegur, þegar þú ert að vinna
verk, sem þú færð vel borgað? Þetta
er brjálaður heimur sem jeg er að
skilja við.
Það fór vel um mig þarna við eld-
inn og áfengið fór eins og ylur um
allan líkamann. Jeg brosti: — Hvaða
lieim liefir þú hugsað þjer að skilja
við?
— Jeg hefi verið að gera arfleiðslu-
skrána mína, sagði Dennis og ætla
að biðja þig um að verða skiftaráð-
anda. Hefir þú tíma til að taka það
að þjer?
—- Hvort jeg liefi tíma? Auðvitað
hefi jeg tima til þess.
— Jeg vil að þú takir allar mínar
fjárreiður að þjer frá deginum á
morgun og þangað lil búið er að
ganga frá öllu. Jeg er alveg rólegur
og með öllum mjalla, bætti hann við
þcgar hann sá áhygjusvipinn á mjer.
En -jeg á ekki nema tólf tíma ólif-
aða.
Jeg fann á mjer, að Dennis var
ekki að gera að gamni sínu núna,
eins og hann gerði stundum. Þess-
vegna stilti jeg mig og sagði rólegur:
— Viltu nú útskýra þetta?
— Hún gamla Toole frænka min
hefir spáð fyrir mjer.
Jeg misti stjórnina á mjer þegar
liann sagði þetta. — Hver fjand....
liefirðu nú verið að ráðfæra þig við
hana nýjan teik? Þú ert brjálaður,
Dennis Donegal!
Hann hló. — Mjer þótti vænt um,
að lnin kom í tæka tíð. Hugsum okk-
ur ef jeg hefði dáið án þess að gera
ráðstafanir fyrir húsi mínu og lieim-
ili. Annars skal jeg segja þjer, að
hún hefir sagt mjer fyrir alt, sem á
cíaga mína hefir drifið síðan jeg
fæddist — það hefir alt komið fram.
— Jæja, sagði jeg ergilegur. —
Og hvað sagði svo völvan?
Dennis tottaði pipuna lengi. —
Hún spáði í spilin og tautaði í sí-
fellu. Svo sagði hún alt í einu upp-
liátt: —- Á morgun er dagurinn upp-
runninn. Jeg sje ljóshærða, framandi,
frá landi sem er langt hjeðan. Og
það þýðir finish (endir) fyrir þjer,
Dennis Donegal.
Jeg varð fokvondur. — Þetta er
fásinna. Hvernig getur ljóshærð
stúlka — — —-
— Stúlka? tók Dennis fram í. —
Þetta var ekki stúlka. Toole frænka
átti við leirljósu merina, sem jeg
ætia að reyna í hindrunarhlaupinu
á morgun. Það er deginum ljósara.
Mjer hafa fundist svartir vængir
flagsa kringum mig síðan jeg keypti
þessa meri.
— Hvaða bull er þetta? fnæsti jeg.
Ef þú ert hrædur um að merin verði
þjer að bana, þá er þjer best að
taka ekki þátt i hlaupinu.
— Ha? sagði Dennis fyrirlitlega.
— Þú ert írlendingur og samt ætl-
ast þú til að jeg reyni að flýja for-
lögin? Nei, h'jelt liann áfram hægari,
— það þýðir ekki að reyna að flýja.
Maður verður að horfast í augu við
forlögin og þessvegna bað jeg þig
um að koma. Annars befi jeg ráðið
liingað stúlku, sem á að verða ritari
þinn og lijálpa þjer. Jeg skal hiðja
Michael að láta hana koma inn til
okkar.
Dennis talaði hátíðlega um útför
sína og ýmislegt þesskonar og nú
kom stúlkan inn í dyrnar. Hún var
líti! og ljósliærð, en útlendingsleg.
í rauninni var hún bráðlagleg.
— Hjerna er jeg, mr. Donegal,
sagði bún. Dennis leit upp.
— I,agleg stúlka, bvíslaði jeg. —
Hvar hefir þú grafið liana upp?
Stúlkan kom til okkar. Dennis
starði á hana eins og hann hefði sjeð
opinberun.
I>að gekk ljós upp fyrir mjer. —
Donegal, lirópaði jeg og benli á
stúlkuna. — Sjerðu ekki — það er
hún sem er finnish (finsk).
— Toote frænka sagðist ætla að
senda mjer .......
— Já, sagði stúlkan, — frú Tooie
er frænka mín. Jeg kom með henni
hingað til Ameríku frá Finnlandi.
Dennis strauk sjer hökuna. — Hm,
sagði hann loksins. — Kanske þú
liefir rjett fyrir þjer. Fyrirgefðu
að jeg var að ónáða þig svoua um
miðja nótt. Góða nótt!
Viku síðar var jeg i brúðkaupinu
þeirra ásamt Toole frænku.
Er miðstöð verðbrjefaviðskiftanna.
Takmarkið er:
FÁLKINN
inn á hvert heimili.
Auðvitað bafa Ameríkumenn búið
til stærstu flugvjel lieimsins. Lengd
liennar er 122 fet, vængjatak 210
fet, hún hefir fjóra mikla hreyfla,
gengur fyrir tvö þúsund hestaöflum,
er 70 þungalestir, flytur 125 hermenn
auk áhafnarinnar sjálfrar, flytur 18
þungalestir af sprengjum og kostar á
þriðju mitjón króna. Fyrir slíka upp-
hæð mætti reisa meira en tvo há-
skóla eins og Háskóla Islands. I>etta
er aðeins ein flugvjel, og svo fram-
leiða þjóðirnar þær í tugum þúsunda,
þjóðir, sem þykjast þurfa að fara í
stríð til þess að geta fæll og ldætt
þegna sína.
Babelsmönnum tókst ekki að reisa
turn er næði upp til himins. I>að
fjekk þann endir, segir sagan, að
mennirnir skildu ekki liver annan,
en það varð til þess að skapa fjand-
skap og stríð. Þeir skildu ekki livor
annan. Það er hin mikla sorgarsaga.
Mennirnir eru altaf að keppast við
að komast sem hæst, annaðlivort í
einhverjum himinturnum eða risa-
flugvjelum, keppast við að yfirstíga
liver annan, en það endar alt í mis-
skilningi, tortryggni, fjandskap og
stríðum. Menn og þjóðir skilja ekki
hver annán. Það er þeirra mikla
mein. Og þjóðirnar skilja ekki sig
sjálfar. Þær þykjast elcki geta af-
stýrt fátækt, atvinnuleysi og skorti
j ýmsum myndum, ekki afmáð
skuggahverfi stórborganna, en að
láta mikinn hluta þjóðarinnar þjást
af þróttteysis- og vanfóðrunarsjúk-
dómum. En himnaturnum geta þær
hrúgað upp, og risavjetar kunna þær
að smíða til þess að flytja eld og
brennistein yfir á höfuð nágrannans.
Geta þjóðanna væri ekki lítil, ef góð-
vilji og siðgæðisþroski væri að sama
skapi, en þetta kemur vonandi tíka.
Okkur sundlar, er við heyrum birt-
ar binar háu tölur, sem þjóðirnar
leggja fram til hernaðar. Það sýnir
að af einhverju miklu er að taka,
jafnvel þó tekið sje um getu fram.
Nýlega sá jeg grein i Ameríku-
tímaritinu „Life“, um eitt riki í
Bandaríkjunum — Texas. Jeg hrip-
aði niður nokkrar tölur, sem koma
fyrir í lýsingu þessa auðuga ríkis,
en þær sýna af liverju er að taka, og
skilst þá betur hvílíkt afl þeir mem;
liafa að baki sjer til stórræða, sem
fara með völdin meðal liinna stærri
þjóða og ríkjasambanda.
Texas er stærra en þessi fimm ríki
— Nýja England, New York, Penn-
sylvania, Oliio og Illinois — til sam-
ans. Það er tólfti hluti flatarmáls
allra Bandaríkjanna og hefir laga-
legan rjett til að skifta sjer í fimm
ríki, hvert með rúmar sex miljónir
íbúa. Fimti hluti atlrar Baridaríkja-
þjóðarinnar býr i Texas, og sam-
kvæmt þessu verða öll hlutföllin þar
stór. Þetta er hin mesta auðsupp-
spretta og nægtanna land. Fram-
leiðsla ríkisins er risavaxin og bú-
skapurinn í stórum stil. Alls eru þar
7,245,000 gripir, þar af 714,000 tamd-
ir hestar, og 10,000,000 sauðfjár.
Stærsta býtið er 1,250,000 ekrur. Það
er eins stórt og fjórir fimtu hlutar
af ríkinu Daleware. í Texag eru
35,000,000 ekra af skóglandi, og olíu-
framleiðsla ríkisins er 590,500,000
dollara virði árlega. Þetta er 40%
al' allri olíuframleiðslu ríkjanna. Ár-
ið 1938 var bómullarframléiðsla þess
130,000,000 dollara virði. Það flytur
út 1,000 járnbrautarvagna af kalkun-
um árlega. Meira en helmingur af öll-
um námaunnum brennisteini heims-
ins er frá Texak. Þar er stærsta
brennisteinsnáma heimsins. Texas
framleiðir árlega 2,000,000 þungalest-
ir, eða 30,500,000 dollara virði al’
brennisteini. Ávaxtaræktun rikisins
er einnig gifurlega mikil.
Texasbúár vita að þeir tilheyra
míklu og góðu landi. Þeir eru sjálf-
stæðir í hugsun og borginmannlegir.
Sagt er að þeir noti stór orð og
sterka drykki. Þeir lít.a á alla aðra
menn sem útlendinga. Þeir liafa
nægilegt olnbogarúm og geta ekið i
bíl sínum 200 enskar mílur til þess
að fá sjer hádegisbita. Skammbyssan
hefir jafnan verið á lofti hjá Texas-
búum og enn ganga menn þar með
skammbyssur. Skólakerfi landsins er
eitt hið fullkomnasta í Bandaríkjun-
um. I>ar eru um 25 mentaskólar og
háskólar.
Texas framleiðir tvo fimtu hluta
allrar steinolíu í Bandaríkjunum, og
öll iðnaðarframleiðsla ríkisins nem-
ur 1,590,000,000 dollara virði árlega
og cr ellefti liluti alls iðnaðar Banda-
ríkjanna. Síðan 1937 liefir verið líf
og fjör í öllum iðnaði ríkisins og
byggingar farið þar lang fram úr
öllum hinna ríkjanna.
Þetta eru aðeins örfáar tölur við-
víkjandi einu ríki Bandaríkjanna. Nú
er þetta volduga ríkjasamband, með
alla sina auðlegð, alla sína tækni,
risavjelar og stórhuga og starfsfúsu
syni, orðið þátttakandi að nokkru
leyti í liinum ógurlegu átökum þjóð-
anna um framtíð og afkomu mann-
kyrisins á jörðu. Hvað mun það leggja
til úrslitanna? Betur að það hefði
lagt sinn skerf til þess að afstýri
slysinu, því að það var Bandaríkj-
uniim mögulegt, en eftir því sem nú
er komið, skiftir mestu hversu vel
þeim ferst vinnubrögðin, er reisa
skal hinn nýja lieim, að öllu niður-
rifinu loknu, sem lagt hefir gamla
bæinn í rúst. Þrátt fyrir alt skrítið,
sem ofl er sagt um Ameríku, og oft
af lítilli þekkingu, má vænta góðs það-
an, ef Ameríka vaknar upp til með-
vitundar um það, að nýjan bæ þurfi
að byggja. Ameríka er ekki aðeins
land auðkýfinga, fátæktar og glæpa-
manna, þar er einnig ótrúlega mik-
ið af mannúðlegum, kristilegum og
heilbrigðum hugsunarhætti og far-
sælu mannviti.
Heimurinn er enn í smíðum.
„Hamarshöggin glymja". Ameríka er
með — stórlniga menn og stórbrotnir,
auðmagn það, sem er afl þeira liluta
er gera skal, afl, serri er vanfarið
með, en máttugt til endursköpunar,
ef hyggilega er áhaldið, og einhvern-
tíma verða börnin fullorðin. — P. S.
Þjóðverjar eru iðnir við að flæma
Gyðingana úr Póllandi. Þannig voru
um 70.000 Gyðingar í Krakau áður
en Þjóðverjar tóku Pólland, en nú
eru aðeins 15.000 sagðir vera eftir.