Fálkinn - 06.03.1942, Blaðsíða 2
F Á L ÍC Í N N
■■■■■■■■■■■■■■■■■laaaaaaM«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Nýkomið:
Golfgarn
Crepe garn
Káputau
Ullarkjólatau
Ullar erepe
Dragtarefni, svört.
Cheviot í kalrm. og fermingarföt.
Ásgeir G. Gunnlaugsson & Co.
Austurstræti 1.
VEGGLAMPAR
HENGILAMPAR
HANDLUKTIR
VASALJÓS
nýkomið í
GiEYNIB H.F.
veiðarfæraverslun
Handíðnar- og myndasýning
- GAMLA BÍÓ -
BROADWAY MELODY.
Hinar íburðaniiklu sýningar Met-
ro-Goldwyn Mayer, sem frægar eru
orðnar fyrir dans og hljóðfæraslátt
ásamt skrautlegasta útbúnaði á
sviði, scm amerikönsk lcvikmynda-
fjelög geta fengið fyrir hugkvæmni
og peninga, eru orðnar vinsælar
meðal allra kvikmyndagesta víðs-
vegar um heim. Þær bregða upp
myndum úr skemtilifinu i New
York, eins og það er á bestu gleði-
fundahúsum þar, og sýna það sem
Ameríkumönnum finst vera hámark
allrar skemtunar.
I-Iinn eiginlegi viðburðarþráður
liinnar síðustu myndar í þessari
grein, sem hingað hefir komið, er
eiginlega talsvert fyllri og greinilepri
en í fyrri myndum sömu tegundar.
Vitanlega er dansinn aðalatriðið og
]>essvegna eru aðalleikendurnir
dansfólk. Ber þar fyrst að nejfna
dansmærina Clare Bennet (Eleanor
Powell), sem kemur þarna fram i
ýmsum* dönsum og ýmsum myndum,
og kemst i slæma klípu, vegna þess
að dansarinn, sem hefir átt að koma
fram á móti henni er hálfgerður
vandræðagepiil og þykir betra í
staupinu en góðu hófi gegnir. Hann
heitir King Shaw og er leikinn af
George Murphy. En sá sem bjargar
þessu við er Johnny Brett, sem eigi
er lakari dansari en King, enda er
það sjálfur Fred Astaire sem leikur
Johnny.
Þá kemur mikið við sögu maður
sem heitir Bob Casey og er leikinn
af Frank Morgan. Hann er kunnur
söngleikahöfundur og hefir sjeð
Johnny dansa og vill ráða hann i
söngleik eftir sig, en af ástæðum,
sem hjer verða ekki raktar, visar
Johnny honum á King og því er
hann ráðinn til að dansa á móti
Clare Bennet, eins og áður er sagt.
En það leynir sjer ekki, að Clare
])ykir meira varið í Johnny en
King, því að auðvitað lætur ástin
•/ig ekki án vitnisburðar í Broad-
way Melodi.
En það eru fleiri en þau sem
nefnd voru, er gera garðinn frægan
í þessari slcrautlegu mynd. Þar er
til dæmis hópur 40 dansmeyja og
þar eru Jan Hunter og Florense
Bice. Og dansarnir eru beinlínis
heilt námskeið í fegurð og stíl og
hljómlistin Iieillandi, svo að hún
gleymist ekki í bráð. Þetta er fyrsta
kvikmyndin, sem |)au leika saman
aðálhlutverkin i Fred Astaire og
hin undurfagra Eleanor Powell Það
danslagið, sem mest j>ykir varið i
úr myndinni er ..Begin the Beguin*'
eftir Cole Porter.
Olafur Auðunsson, trjesmiður,
Kárastíg Í4, verður 60 ára í dag
(6. þ. m.).
var opnuð af enska setuliðinu um
siðustu helgi í stórum hermanna-
skála suður á Melum, milli kirkju-
garðsins og iþróttavallarins. Það
sem j)arna er sýnt er aðallega
handavinna enskra setuliðsmanna,
sem.þeir hafa iðkað í tómstundum
sinum og ber mest á myndum alls-
konar blýantsteikningum, pastel-
vatnslita- og olíumyndum, ýmist af
landslagi, innimyndum og andlits-
myndum. Þarna eru myndir eftir
æfða menn í lislinni en líka eftir
byrjendur, sem aldrei liafa reynt
að teikna mynd fyr en eftir að
þeir komu hingað. Enska K.F.U.M.
(Y.M.C.A.) hefir stöðvar hjer fyrir
hermennina, eins og kunnugt er,
og hafa m. a. menn á ljeirra vegum
sjeð þeim sem óska fyrir tilsögn í
undirstöðuatriðum dráttlistar og
notkun lita, og er árangurinn af
þeirn kenslu eftirtektarverður, þvi
að þarna eru ljómandi fallegar
myndir eftir byrjendur, innan um
myndir kunnáttumanna.
Þá ber sýningin þess einnig vott,
að ýmsir eru þeir hjer í bretska
setuliðinu, sem eru vel að sjer í
handiðnum. Þarna eru t. d. likön
ýmiskonar af amboðum og — eink-
um — flugvjelum, mismunandi hag-
lega og nákvæmlega gerð. Sum úr
málmi, t. d. Ijömandi fallegur lítijl
steðji og flugvjel sömuleiðis. Önn-
ur flugvjel er þar úr einskonar gler-
líkingu sem „perspect" er kölluð,
og notað er í rúður á ftugvjelum
o. fl. hluti, sem verða að þola
hnjask betur en gler gerir. Önnur
líkön eru þarna úr trje og má þar
einkum nefna likan af fornu skipi,
sem er gert úr eintómum — eld-
spitum.
Fleira mætti nefna nýstárlegt á
þessari sýningu, sem til er orðin
fyrir starf nefndar, undir forystu
Captain L. G. Johnson. Eru orðin
síðustu forvöð að sjá sýninguna,
því að henni verður lokað annað
kvöld. Hjer er mynd af sýningarskál-
anum að innan. Ljósm. Sig. Guðm.
DREKKIÐ E6IL5-0L
Eyjálfur J óhansson, rakara-
meistari, varð fimtugur 3. márs.
„BRIDGE"
Árið 1884 lærðu tvær enskar fjöl-
skyldur að spiia spil það austur í
Konstantínopel, sem gekk þar al-
mennt undir nafninu „rússnesk
whist." Ensku fjöjskyldunum þó(ti
gaman að spilinu, og eftir að þær
komu heim til Englands aftur, hjeldu
þær áfram að spila það í frístund-
um sínum. — Þessar fjölskyldur
bjuggu sín hvoru megin við læk
eða á og urðu að fara yfir hrú til
að geta heimsótt hvor aðra. Vegna
þess að brúin var bæði ónýt og
auk þess erfitt að komast yfir hana,
kom fjölskyldunum saman um að
kalla spilið „brú,“ og þannig er
enska orðið „bridge" til komið.
Það var hin heimsfrægi land-
könnuður, Portúgalinn Ferdinaml
Magellan, — sá sem sundið við
suðurodda Ameríku er kent við —
sem fyrstur fann Filippseyjar. En
leiðangur hans var kostaður að
nokkru ieyti af Karli V. keisara á
Spáni, og þegar hann fjekk fregnina
af fundi þessara eyja ákvað hann
að nefna þær eftir Filippusi syni
sínum, þeim er síðar varð Spánar-
konungur undir nafninu Filippus II.
En þau urðu afdrif Magellans að
hann var skotinn til bana á Filipps-
eyjum og lauk þar sögu hans. En
skip hans komst leiðar sinnar heim
til Spánar og var þar með lokið
hinni fyrstu siglingu kringunt hnölt-
inn, sem Magellan er orðinn frægur
fyrir, þó að sjálfur kæmist hann
ekki alla leiðina.
Er miCstöð verðbrjefaviOskiftanna.
Útbreidið „Fálkann"