Fálkinn


Fálkinn - 16.10.1942, Blaðsíða 14

Fálkinn - 16.10.1942, Blaðsíða 14
14 1' A L K 1 N N GENERALMAJÓR MESSERVY brynsveitaforingi, ræður fyrir skrið- dreka- og bryndrekasveit í áttunda her Iireta við Austur-Miðjarðarhaf. Hefir hann getið sjer mikinn orð- sfír í bardögunum þar. í Drekkið Egils-ðl J Verslun 0. Ellingsen h.f., Reykjavík Loft-þrystidælur ómissandi í hverjum mótorbát. Sitt af hverju frá Noregi Gólfteppi og dreglar frá Austurlöndum Alt handunnið Á. Einarsson & Funk Tryggvagötu 28 BjLATRYeG'NGAR B • „nrfélaq lsl«n(lsf 3jóvátryqq'n1or‘e 9 Það hefir frjetst frá Noregi, að þýska stjórnin muni leggja 3% milj- ón króna „sektir“ á Oslóbúa fyrir loftárásina, sem Bretar gerðu á Osló þegar Quisling var að halda „ríkis- stjórnarafmæli“ sitt. Áður liafði það frjetst, að nazi-fylkismaðurinn Sten- ersen hefði lýst því yfir, að hann teldi flugárás þessa gerða í samráði við norsku stjórnina .í London, í þeim tilgangi að skelfa og myrða saklaust fóllt í Osló. Og fylkismað- urinn heldur áfram: „Þó að Norð- menn hafi fylst viðbjóði á þessum atburði, er samt enn til í Noregi fólk, sem hefir samúð með stjórn- inni i London. En þelta fólk má eiga það víst, að skaðabóta verður krafist af því, úr því að j>að hefir gerst samsekt um tjón þa;ð og eyði- leggingu, sem árásin hefir valdið. Þetta fólk verður knúð til þess að útvega húsnæði þeim, sem mist hafa það vegna loftárásarinnar, og það verður lálið vinna að hreinsuninni í rústunum.“ — Þessi boðskapur Stenersens var birtur i öllum norsk- um blöðum á fimtudaginn. En sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum hafa 32 fjölskyldur og 51 einhleypur orð- ið húsnæðislausar við loftárásina. Frá Bergen hefir frjetst, að þegar strandhöggið var gert í Dieppe hafi Bergensbær verið settur í hervarn- arástand. Ennfremur fóru Þjóðverj- ar þá að setja upp ný varnarvirki við höfnina þar. f Stavanger og Egersund hefir fjöldi manna verið fangelsaður. Hófst þetta athæfi i júlí og lieldur áfram enn. í ágúst og fyrri hluta isi-ptember hafa um 700 manns verið nandteknir og settir í fangabúðir í Auglandi á Oddarnesi, um 10 km. fyrir norðan Kristiansand. Fangels- ið í Kristiansand er fnlt fyrir löngu. í Stavangerbæ einum liafa yfir 400 manns verið fangelsaðir. Við Majavatn í Naumudal, milli Nansós og Mossjöen, hafa Þjóð- verjar tekið 30 gisla í september- mánuði, vegna þess að þýskur her- maður fanst dauður á þeim slóðum. Og 11. september voru 40 manns settir í fangelsi í Fredrikstad. Eftir handtökuna safnaðist fjöldi fólks við fangelsisdyrnar. Þýska herliðið ljet þetla fólk standa i kveðjustelling- um, á hermannavísu, í lieilan klukku- tíma. Nýjar frjettir liafa borisl af hin- um ómannúðlega fangaflutningi frá fangabúðunum í Grini til Kvænang- en i Tromsfylki, i byrjun ágústmán- aðar. 400 föngum var kakkað sam- an i vöruvagna á brautarstöðinni í Osló, 38 í hverjúm vagni, og sett ein fata lianda þeim, sem þurftu að ganga örna sinna á leiðinni, en járn- brautarferðin stóð í 35 tíma. í Trondheim voru fangarnir settir um borð í eimskipið „Bodö“, en ]ietta skip má ekki flytja nema 200 manns. Þýsku varðmennirnir tóku klefana á 1. farrými handa sjer, en föng- unum var troðið í lestina. Þegar til Kvænangen kom voru allir koninir að niðurlotum og einn fanginn var ardaður. Samkvæmt frjettum frá Osló lief- ii norska ríkislögreglan nú fengið nýtt verkefni: að léita uppi ýmsa „hirðmenn“ Quislings, sem hafa flú- ið heimili sín til þess að komast lijá að verða sendir á austurvig- stöðvarnar. í skógunum við sænsku landamærin og í Norðmarka, skóg- unum upp af Osló og viðar, er ríkis- lögreglan nú á þönum, að leita uppi’ þessa gömlu aðdáendur Quislings, sem nú hafa fremur kosið að leggj- ast út en að þjóna foringjum sínum. Arthur Larsen Hellerud og Sigurd Larsen Hellerud, tveir alræmdir bræður i Sandvika við Osló gengu inn í Quislinesflokkinn „Nasjonal Samling“ liausið 1940 og gerðust „liirðmenn". Strengdu þeir þess íieit að „hreinsa til“ i Bærum-sveit og liö.fðu þá eiginleika, sem lil þess þurfti. Arthur hafði áður fengið tukthúsvist fyrir þjófnað og sið- ferðisbrot en Sigurd fyrir ofdrykkju. En ,,tilhreinsunin“ komst á jiað stig, að nú hefir ,Nasjonal Samling" neyðst til að gera þá flokksræka. Þjóðverjar hafa skipað nýjan kirknaumsjónarmann í Osló, og heit- ir sá Haakon Findalil, og var áður vefnaðarvörukaupmaður. Það helsta sem hann hefir unnið til þessa em- bættis er að verða gjaldþrota fjór- um sinnum og ganga i „Nasjonal Samling“. Þjóðverjar taka ríflega ágóða- þóknun á vörum þeim, sem þeir flytja inn til Noregs. Á vínum, sem flutt eru inn frá Frakklandi, verður Áfengisverslun ríkisins að greiða svo liátt verð, að Þjóðverjar fái um 1000% hagnað. Og svo eiga Norð- menn að borga brúsann með fiski eða öðru, sem þeir hafa brýna þörf fyrir sjálfir. Norsku blöðunum hefir verið bannað að birta auglýsingar sem bera það með sjer, að einhver hafi orðið húsviltur eða verið rekinn úr liúsnæði sínu. Þjóðverjar halda sem sje áfram -uð „löglaka“ húsnæði í Osló og öðrum bæjum, og jió að norskar fjölskyldur flytji saman i ibúðir þá fara húsnæðisvan’dræðin stórum vaxandi. Það er kurr í þýska herliðinu i Noregi. Nýlega bar það við, að þýsk herlögregla var kvödd að barnaskólanum á Rodelökken í Osló, þar sem þýskir hermenn hafast við. Lokuðu þeir götunni og margir fóru inn og tóku skothvellir að heyrast úr húsinu. Þýskir hermenn, sem áttu fri, fengu skipun um að- hverfa til æfingastaða sinna þegar í stað. — Skipið „Bodö“, sem flutti fangana frá Grini norður í Tromsö kom með þýska, fangelsaða hermenn til baka. í byrjun september voru margir alkunnir meðlimir „Nasjonal Sam- ling“ fangelsaðir i Troinsö, vegná stórþjófnaða, sem þeir höfðu framið í matvörugeymslum i Norður-Nor- egi. Hafa þýskir liermenn svo keypt matinn af þjófunum og sent liann ættingjum sínum i Þýskalandi eða selt hann á „Svarta börsinum“ í Noregi. Meðal þjófanna er OÍe Ty- liolt oddviti í Tromsö, Gisvoli í- þróttastjóri nazista á sama stað, og sennilega einnig ristjóri blaðsins „Tromsö“, Lovra að nafni. Nafn hans hvarf alt i einu af blaðinu, og nýr ritstjóri kom í staðinn.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.