Fálkinn - 30.08.1946, Page 4
4
FÁLKINN
Um miðjan júlí síðastliðinn
gerði Knattspyrnufélag Reykja-
vikur út tólf manna úrvalsflokk
fimleikamanna í sýningarför til
Norðurlanda og Englands. Var
lialdið af stað frá Reykjavík 10.
júní, flugleiðis til Rergen og
þar var fyrsta sýningin haldin.
Hafði aðeins verið ráðgerð ein
sýning, en vegna mikillar að-
sóknar var liúji endurtekin.
Þarna sýndi flokkurinn ásamt
sænskum kvennaflokki og norsk-
um drengjaflokki.
Flokknum var tekið forkunn-
ar vel í Bergen og þá ekki sið-
ur á Voss, en þar var næsti sýn-
ingarstaðurinn. Var þar enn
sýnt ásamt sænska kvenflokkn-
um og við ágætan orðstír. Síð-
an var haldið til Oslo, 14. júni,
en svo stóð á að þá voru liðin
25 ár síðan Oslo Turnforening
hafði sýnt á íþróttavellinum í
Reykjavilc í fyrsta sinn, við
meiri aðsókn áhorfenda en ver-
ið liafði á vellinum nokkru
sinni fyrr. Var því mikill við-
búnaður undir þessa komu Is-
lendingana, af hálfu Oslo Turn-
þeir sem þá áttu, en kl. 5 var
móttaka hjá Stefáni Þorvarðar-
syni sendiherra. Og kl. 7% sátu
íþróttamenn boð íslendingafé-
lagsins í London. Var það liald-
ið á Mayfair Hotel, einu fræg-
asta hóteli borgarinnar.
Daginn eftir, þ. 28. júní var
ekið til hinnar frægu og fornu
hallar í Hampton Court og skoð-
uðu gestirnir liana og söfnin
þar. En um kvöldið liélt flokk-
urinn sýningu fyrir blaðamenn
og íþróttamenn í Tooting, og
gátu þeir komið þangað sem
vildu. Þelta var einskonar kynn-
ingarsýning undir sýninguna
daginn eftir, og komu þarna
ýmsir kunnir áhugamenn í i-
þróttum og íþróttaþjálfarar.
Daginn eftir, laugardag 29.
júní tók borgarstjórinn i Lond-
on á móti íþróttamönnunum.
Var það hin hátíðlegasta athöfn.
Klukkan þrjú var enn lialdin
sýning fyrir fimleikakennara
sér í lagi og loks fór aðalsýn-
ingin fram kl. 6 í hinum stóra
Polytechnic-sal i Regent Street.
Jarlinn af Rothes, forseti enska
Utanför fimleikaflokks K. R.
forening', sem vitanlega annaðist
móttökurnar með hinrii mestu
prýði. Meðal annars má geta
þess, að í Sportsmannen birtist
ávarpskveðja á íslensku til
flokksins.
Laugardagurinn 15. júni var
svonefndur Oslodagur haldinn
hátíðlegur í Oslo. Þann dag voru
íþróttamennirnir boðnir til
Sundöya við Tyrifjord í hílferð
og um kvöldið var lialdið boð
fyrir þá á Hotel Bristol. Ann-
ars bjuggu þeir uppi á Holmen-
kollen á liinu alkunna gistihúsi
þar.
Kvöldið 17. júní var sýningin
svo haldin. Vegna þess að veður
var ekki gott, varð því að hætta
við að hafa liana úti, en þess
í stað var hún haldin í Turn-
hallen, fyrir troðfullu húsi og
svo mikinn fögnuð áhorfenda,
sem dáðu aðgerðir flokksins og
æfingar, er íoru fram með eiri-
stakri reglu og stílfegurð undir
hinni öruggu stjórn Vignis And-
réssonar. Hann hafði æft flokk-
inn undir förina og stjórnaði
lionum, en Bjarni Guðmunds-
son hlaðafulltrúi var fararstjóri
alla leið til London i heimleið-
inni. Þá varð hann að fara til
Parisar, en Björn Björnson stór-
kaupmaður tók við og annaðist
fararstjórn úr því.
Frá Oslo var haldið til Stokk-
hólms. Þar sat flokkurinn boð
Vilhj. Finsens, sendifulltrúa. —
22. júní var sýnt á Skansinum
við mikla hrifningu um 10.000
áhorfenda. Áætluð ferð til Finn-
lands fórst fyrir. Síðan var
lialdið til Gautaborgar og Kaup-
mannahafnar og sýnt á báðum
stöðum. En 26. júní flugu í-
þróttamennirnir til Lundúna.
Þar hafði verið gerður marg-
háttaður undirbúningur undir
komu þeirra. Þeir bjuggu á
Imperial Hotel, sem m. a. er
frægt fyrir hin miklu tyrknesku
böð sín.
Um kvöldið var þeim boðið
af rausnarlegum landa, sem
ekki vildi láta nafns síns getið,
að horfa á Monte Carlo Ballett-
en, sem er eitt það besta á því
sviði sem til er í Englandi, og
þar á eftir til veislu að Hotel
Courmes.
Daginn eftir var fyrri hluta
dagsins varið til að skoða horg-
ina og heimsækja kunningja,
fimleikasambandsins, stjórnaði
samkomunni, en Parker ofursti
mætti þarna fyrir hönd fræðslu-
málaráðuneytisins og ávarpaði
íþróttamennina. Um kvöldið
sátu íþróttamennirnir boð Fim-
leikasambandsins á Café Royal.
Snemma morguninn eftir var
haldið úr borginni til hins fræga
baðslaðar Brighton og til East-
bourne og dvalið þar um hríð
og farið í sjó. En síðdegis var
flokkurinn boðinn til Purley, til
Björns Björnsson til tedrykkju.
Mánudagsmorguninn kl. 10
gengu íþróttamenn að minnis-
merki því fyrir fallna hermenn
fyrri heimsstyrjaldarinnar, sem
stendur í Wliitehall og nefnist
„The Cenotaph" og lögðu blóm-
sveig á fótstallinn. Að afliðandi
hádegi liéll fimleikaflokkurinn
liádegisverð á Mayfair hótelinu
og kvaddi þar þá, sem einkum
höfðu greitt götu flokksins í
London. Þar var öllum iþrótta-
mönnunum afhentir minnisbik-
arar frá enska fimleikasam-
bandinu og stjórnanda flokks-
ins slcjal og merki, sem veittu
honum full kennararéttindi í
Englandi. Margar ræður voru
fluttar.
Þar með lauk hinni fjölþættu
dagskrá, sem gerð hafði verið
fyrir dvölina í London. Á þriðju-
Fararstjórinn afhentir borgarstjóranum í London íslenska fúiutnn að gjöf