Fálkinn - 30.01.1948, Page 10
10
FÁLKINN
VHCSSVU
LC/CHbURHIR
Hvað geymir hafið?
MeS þessari spurningu eigum við
ekki við söguna um Atlantis og liina
sokknu borg, og ekki heldur við alla
fiskana, livalina og selina, sem iifa
í sjónum, heldur blátt áfram við hrá-
efnin, sem eru í sjónum. Þið vitið öll
að sjórinn er saltur. í hverjum lítra
af sjó eru um 30 grömm af salti. En
þið vitið kannske ekki, að í sjónum
eru 32 frumefni, þar á meðal joð, hróm
kopar og zink — og þessvegna er
ekkert undarlegt þótt vísindamenn-
irnir brjóti heilann um livernig hægt
sé að vinna þessi efni úr sjónum.
Hugsum okkur ef hægt væri að ná
í þessi efni með litlum tiikostnaði.
í Ameríku er borað eftir olíu á
hafsbotni og við þessar boranir hefir
það komið fram að í leðjunni á hafs-
botni í 3000 - 4000 metra dýpi er rad-
ium, þetta undraefni, sem svo erfitt
er að vinna úr berginu á þurru landi.
í Noregi safnar fólk þangi og þurrk-
ar það. Síðan er því brennt og úr
öskunni er hægt að vinna það. Hver
veit nema að líka finnist einföld ráð
til þess að vinna hin efnin úr sjónum.
Viljið þið kannske reyna að finna
ráð til þess?
3/ CopyrigM P I B Bo* 6 Copenhagen
Þegar rukkarinn kemur.
Domino-gátan
Beiddu einhvern félaga þinn að taka
töflu úr dómínó-spili -—• það gildir
einu livaða tafla það er, sem hann
tekur. Þú átt nefnilega að geta sagt
honum hvaða tvær tölur eru á töfl-
unni! Og þetta er ofur einfalt, þegar
maður veit hvernig á að fara að þvi.
Setjum svo að kunningi þinn taki
töflu með 2 augum öðru megi og 5
augum inumegin. Þú þekkir ekki
þessar tölur, en hiður hann að marg
falda fyrri töluna með 5 (2x5 eru 10).
Beiddu hann svo um að leggja þrjá
við (10 + 3 eru 13). Síðan á hann að
margfalda töluna með tveimur (2x13
eru 26). Síðan á hann að leggja síðari
töluna (5) við (20 + 5 eru 31) og
segja þér svo hvaða tölu liann hafði
fengið út.
Hann svarar: 31. Nú dregur þú sex
frá í huganum (31 — 6 eru 25). Þá
geturðu svarað honum: Önnur talan
er 2 og hin er 5.
Við skulum taka annað dæmi, svo
að þú sjáir að þetta gildir um hverjar
sem tölurnar eru: tökum til dæmis að
augnafjöldinn sé 1 og 6.
1X5= 5
5+3=8 j
8 X 2 = 16
16 + 6 = 22
22 —6 = 16
svo að augnafjöldinn á töflunni er 1
og 6.
Hjólaráð
Gúmmíklossarnir, sem eru á stigun-
um á reiðhjólunum, slitna oftast nær
á undan málminum í stigunum, og þá
vill fóturinn skrika. Þetta má laga með
því að taka bút af gamalli hjólslöngu
og vefja utan um slitið, eins og sýnt er
á myndinni.
*****
— Framvegs ætla ég að taka var-
lega á hlutunum, sagði innhrots-
þjófurinn þegar læknirinn hafði
ráðlagt honum hvíld.
Biðillin var barmafullur af
þakklæti til tengdaföður síns til-
vonandi, sem hafði fallist á að hann
fengi dótturina. —- Ef ég skyldi
nokkurntima gera englinum henni
dóttur yðar raun, þá á ég ekki betra
skilið en pyntingar fyrir, sagði
hann.
—- Hún sér fyrir því, sagði gamli
maðurinn hinn rólegasti.
*****
Skrítlur
— Þarna sérffu, Kaspar, hvaff
einfalt það er!
— Þaö er alveg rétt hjá ijður,
frií Hansen. Klarínettinn hefir ekki
gott af því, en þetta er eina leiðin til
aff fá drenginn til að æfa sig.
— Eru ngju fötin mín komin
hvernig igst gkkur á þau?
— Háldið þér ekki að þér gætiið
náð þessum þjáningarsvip úr aug-
unum?