Fálkinn - 11.06.1948, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
Strasbourg er endurbyggð. —
Strásbourg varð fyrir miklum
eyðileggitigum í stríðinu en
Ameríkumenn hafa lánað ríf-
lega til þess að endurreisa borg-
ina, svo að nú er það vel á veg
komið. Hér sjást nú hús, sem
byggð lxafa verið í borginni, við
ána III, se.m rennur í Rín.
Leon Blum hvílir sig. — Franski
jafnaðarmannaforinginn Leon
Blum, sem oft hefir stýrt stjórn-
arfleytum Frakka á erfiðum
tímum, hefir nú tekið sér frí
frá stjórnmálum um sinn og
hvílir sig í bænum Stresa við
Lagio di Maggiore i Ítalíu. A
þessum rólega og fagra stað
safnar hinn gamli stjórnmála-
maður nú kröftum, fjarri stjórn
málaskarkalanum.
De Valera í New York. - Eamon
de Valera fyrrverandi forsætis-
ráðherra í Eire var nýlega
í heimsókn í New York, en
þar er hann fæddur. Myndin
er tekin í veislu, sem haldin
var fyrir hann, og sést hann
vera að kyssa á fingurgull
Fraricis Spellmcui kardínála.
Eins og flestir Irar er de Valera
kaþólskur.
Vefandi prestur. — Síra Geof-
frey Keable, sem á heima í Kent
í Englandi, hefir talsvert ein-
kennilega tómstundavinnu, af
presti að vera. Hann er sem sé
afbragðs vefari og spinnur líka
allt sem hann vefur. Vinnur
hann sjálfur á sig fötin. —
Hérna sést presturinn við vef-
inn heima hjá sér.
Ung sundhetja. — Ástralía hef-
ir eignast efnilega sundmær sem
er skólastelpan Marjorie Mc-
Quade, sem er aðeins 13 ára.
Hún hefir þegar mörg áströlsk
met og verður einn af þátttak-
endum Olympíuleikjanna af
Astrala hálfu. Hérna er Mar-
jorie litla á skólabekknum.
John Foster Dulles er einn af
hinum kunnari stjórnmála-
mönnum innan republikana-
flokksins í Bandaríkjunum.
Hann hefir beitt sér fyrir að
stofnaður verði félagsskapur í
Vestur-Evrópu með því mark-
miði að vinna á móti áróðri
kommúnista. Með öðrum orðum
einskonar „anti-kominform".
0%
%é>
Til vinstri:
Sjálfs er höndin hollust. - Ensk-
ur garðyrkjumaður, sem jafn-
framt er mesti hugvitsmaður,
hefir sjálfur smíðað sér arfa-
plóginn, sem sést á myndinni.
Er hann rekinn með bensíni og
kemur að miklum notum við
garðyrkjuna.
Hættusvæði. — Pað er ekki
undarlegt, þótt ensku liðsfor-
ingjarnir á myndinni séu dá-
lítið óttaslegnir á svipinn. Þeir
standa á börmum gryfju við
Southwark-dómkirkjuna í Lond
on. Verið er að grafa eftir
sprengjubrotum, sem talin eru
leynast þarna.
Indversk fallbyssa. — Indverski
f orsœtisráðherrann, Pandit
Nehru sést vera að virða fyrir
sér fallbyssu af stórri gerð, á
sýningu sem indverski herinn
hefir haldið í New Delhi, eftir
að hann tók sjálfur við hervörn
um landsins af Bretum.
Til hægri:
UNO til Parísar. — Trygve Lie
aðalritari Sameinuðu þjóðanna
sést hér benda á myndina af
Palais de Chaillot í París, sem
hann hefir valið fyrir fundar-
stað fyrir þing Sameinuðu þjóð-
anna á þessu ári. Franska stjórn
in annast fyrir eigin reikning
nauðsynlegar breytingar á hús-
inu, m. a. að koma þar fyrir
fundarsal með 30000 sætum.