Fálkinn - 11.06.1948, Blaðsíða 11
FÁLKINN
11
LEIKARAM YNDIR — LEIKARARABB
c~
L—-
Nýlega var nýjasta mynd Eleanor
Parker, „The Voice of Ihe Turtle“,
frumsýnd i London. Brá leikkonan
sér þangað til að vera viðstödd
sýninguna. Myndin er tekin af
henni í veislu, sem hún hélt ensku
vinfólki sinu í Savoy-hótelinu.
Eleanor Parker.
Ein af nýrri stjörnunum i Holly-
wood er Eleanor Parker. Hún verð-
ur 26 ára gömul 26. júní næstkom-
andi, og þá eru rétt 7 ár liðin frá
því að liún gerði fyrsta samning
sinn við kvikmyndafélag, Warner
Bros.
Eleanor er fædd í Cedarville,
Ohio, dóttir stærðfræðikennara. í
bernsku átti hún víða heima, því
að foreldrarnir flökkuðu milli borga.
Um skeið bjugg'i þau í Cleveland.
Á fermingaraldri fékk Eleanor ó-
stjórnlega léikaradellu, og fyrir þrá-
beiðni sína fékk liún leyfi foreldra
sinna til að sækja leikskóla. Eitt
sumar var hún afgreiðslustúlka á
veitingahúsi, og fór þa að fara orð
af fegurð hennar. Þegar hún fór í
leikhúsið einu sinni, gaf sig á tal
við hana ókunnur maður, sem reynd
ist vera útsendari Warners, og 2
dögum seinna, 26. júni 1941, á 19 ára
afmælisdaginn hennar, var hún ráð-
in til reynslu hjá Warner Bros.
Þá var heitasta ósk liennar orðin
að veruleika. Hún var orðin leik-
kona. Tvær aðrar heitar óskir kvaðst
hún hafa alið i brjósi sér frá barn-
æsku: Að eignast bús handa for-
ehlrum sínum og pels, þegar hún
væri orðin stór. Hvorttveggja er nú
fyrir löngu komið.
Fyrsta inikilvæga hlutverkið, sem
Eleanor Parker lék, var dóttir Davis
sendiherra í „Mission to Moscow“
Síðan hafa komið myndir eins og
„The Very Thought of You“,
„Human Bondage'", „The Woman in
White“ og síðast en eklci sist „The
Voice of the Turtle“, sem Eleanor
telur marka tímamót í leikferli sín-
um. Það er eina hlutverkið, sem
hún sjálf er ánægð með.
Eleanor giftist 1946 Bert Friedlob,
kaupsýslumanni. Ekki voru þau þó
neitt samvistum fyrr en i maí 1947.
Þá fékk Eleanör 5 mánaða frí frá
leikstörfum, og fóru þau þá brúð-
—---------—.---------j
kaupsferð til Evrópu. Þegar úr
henni kom, tilkynnti Eleanor, að
lnin ætti von á barni í mars 1948.
Eleanor þykir ákveðin i skoðun-
um og framkomu. Fólk, sem um-
gengst liana í salarkynnum kvik-
myndafélaganna kallar hana oftar
ungfrú Parker (eða frú Friedlob) en
Eleanor. Annars eru leikarar yfir-
leitt kumpánlegir hverjir við aðra.
Ekki sakar líka að geta þess, að
hún liefir sérstakt yndi af hnefa-
leikum og' glímu (sem áhorfandi
náttúrlega).
Eleanor er af írsku og' ensku
bergi brotin, hefir ljósbrúnt hár og
grágræn augu.
* * * * *
Besta mynd ársins.
Á kvikmyndahátíð, sem lialdin
var í Kaupmannahöfn nýlega, var
enska myndin „A Matter of Life and
i)eatli“ valin besta evrópiska mynd-
in 1947. Aðalleikendur eru: David
Niven, Raymond Massey, Roger
Livesey og Kim Hunter,
***■»*
Queen’s Park Rangers,
knattspyrnuliðið enska, sem hér var
í fyrra, hefir nýlega flust úr 3 deild
upp í 2. deild. í tiléfni af þvi var
15 leikmönnum þeirra boðið til
Gainsborough’s Studios og haldið
þar samsæti af ýmsum frægum leik-
uruin t. d. Mai Zetterling, Mervyn
Johns og Susan Shaw.
*****
„Kvenhatarinn“.
Síðla febrúarmánaðar var byrjað
að gera Two Cities myndina. „Kven-
hatarinn“, sem nú er beðið í Eng-
landi með mikiíli óþreyju. Stewart
Granger leikur kvenhatarann Dat-
cbett lávarð, en franska leikkonan
Edwdge Feuillere fer með aðalkven-
hlutverkið. Mun margur kvikmynda-
húsgesturinn liér vilja sjá Feuillere
oftar, þvi að leikur hennar i mynd-
inni „Ástir hertogafrúarinnar", sem
sýnd er i Nýja Bíó um þessar mund-
ir, hefir hrifið fók.
*****
Carmen Miranda
er nýkomin til London til þess að'
leika þar i mynd. Það var erfiður
dayur fyrir lögregluþjóna borgar-
innar, því að almenningur þusti að
bíl hennar og ætlaði bókstaflega
að „gleypa hana með húð og hári“r
eins og þar stendur.
John Bull verðlaunin
bresku fyrir bestu myndina árið
1947 hafa verið veitt Joseph Rank
fyrir „Bush Christmas“, sem tekin
var í Ástralíu.
*****
„Cristopher Columbus“.
Gainsborough er um þessar mund-
ir að vinna að mynd um Columbus,
og verður mikið lagt fram til þess
að gera hana góða. Yfirumsjón með
töku myndarinnar hafa þeir Syd-
ney Box og David MacDonald. Hinn
siðarnefndi stjórnaði töku myndar-
innar „Bræðurnir", sem nýlega var
sýnd á Tjarnarbió og sömuleiðis
myndinni „Sigur á eyðimörkinni“
(Desert Victory), sem sýnd var liér
fyrir noklcuð löngu.
Til þess að leika Columbus liefir
Fredric March verið valinn, en hann
hefir nú unnið Oscar-verðlaunin í
annað sinn, og í þetta skiptið fyrir
Ieikinn í „The .Best Years of Our
Lives“, sem sýnd var hér í vetur.
ísabellu drottningu á Spáni leikur
Florence Eldridge, kona March, og
Juana de Torres, ráðgjafi drottn-
ingarinnar er leikin af liinni góð-
kunnu Flóru Robson, sem er ný-
komin frá New York, þar sem liún
hefir leikið á Broadway í „Macbeth“,
sem Michael Itedgrave liefir sett þar
á svið. Hjákonu Golumbusar, Bea-
trice, leikur hin undurfagra Linden
Travers, Derek Bond leikur Diega
de Arana ungan mann, sern sérstak-
lega reyndist Columbusi vel í vest-
urför hans. Sonia Holm leikur Phil-
ippu, konu Columbusar. ■— Hilly
Mendelssohn, dökkhærð spönsk lista-
kona, hefir málað mikið af vegg-
málverkum í myndina, og eru þau
öll i 14-aldar stil. Hilly málaði einn-
ig fyrir myndirnar „Caesar og Kleo-
patra“ og „Glæsileg framtíð“. —
Myndatakan var nú um mánaða-
mótin komin svo langt, að Columbus
var stiginn á land í Vesturheimi.
Urðu nokkrir erfiðleikar í sambandi
við kvikmynduu landtökunnar, því
að liún er brimlending.
VARIÐ YKKUR Á NYLON!
Nokkrir saklausir enskir ljósmynd
arar, sem alls ekki höfðu neitt illt
í huga, uppgötvuðu fyrir nokkru,
að á myndum sem þeir höfðu tekið
sást allsbert eða hálfnakið kvenfólk.
Þeir mundu alls ekki eftir að hafa
tekið neinar myndir af svona létt-
klæddu kvenfólki. Þarna stóð til
dæmis Bevin á.einni myndinni og
brosti út undir eyru framan í kven-
mann, sem ekki var i öðru en einni
bolrýju, og var myndin þó tekin
úti á viðavangi Loks upgötvaðist
hvernig í öllu lá. Myndirnar voru
teknar i afar sterku Ijósi og döm-
urnar böfðu verið i kjólum úr —
nylon, en það eru ekki nema sum-
ar tegundir þess, sem Ijósmyndast
á venjulegar plötur. Menn g’eta ekki
gert grein fyrir ástæðunni en við-
urkenna að sumar nylontegundir,
sérstaklega þær, sem notaðar eru i
nærföt og baðföt, séu ekki sem best
fallnar til að láta ljósmynda sig i.
Egils ávaxtadrykkir
Vitið þér .. ?
að kínverski múrinn á norður
og norðvesturlandamærum hins
eiginlega Kína, samsvarar vega-
lengdinni frá París til Ankara?
Þessi múr, sem upphaflega
var gerður til þess að verjast
árásum Mongólíuhúa, en hefir
lengi ekki haft neina hernað-
arlega þýðingu, er orðinn 2100
ára gamall, það sem elst er af
honum, en á lð.—17. öld var
hann endurbættur milcið. Hér
sést spotti af múrnum, við
Nanlcow.
að amerískir ávaxtaræktendur
nota brennandi olíu til þess að
verja ávaxtatrén næturfrostum?
A ávaxtaekrunum eru hita-
mælar á víð og dreif, í raf-
magnssamhandi við bjöllur,
sem hringja þegar lofthitinn
kemsi riiður fyrir álcveðið stig,
svo að bændurnir vakna og
kveikja á olíubrennurunum.
Það þarf 25—50 brennara á
hvern hektara.
----oOo----