Fálkinn


Fálkinn - 03.12.1948, Blaðsíða 8

Fálkinn - 03.12.1948, Blaðsíða 8
8 FÁLKINN Trúlofunargildið í Ábæ Eftir Jan Fridegard VERSTI durturinn í hreppn- um átti heima í Ábæ. Hann hét Gallsteinn og átti aðeins eitt barn með kerlu sinni, upp- kominn son, sem hét Andrés. Hann taldi sig ekki liafa efni á að halda vinnumann á ekki stærri jörð, enda hafði hann strákinn í vinnumanns stað. Honum þurfti hann ekki að borga kaup; hann sletti bara í hann tveimur krónum eða svo þegar gripasýning eða íþrótta- mót var í sveitinni. — Sóaðu þessu nú ekki í kvenfólk eða annan óþarfa, sagði hann um leið. — Þú þarft víst ekki að lioppa eða dansa, þegar þeir taka pen- inga fyrir livern dans. Það get- ur verið alveg eins gaman að horfa á. — Þú ert víst að liugsa um skósólana, pápi, svaraði son- urinn. -— Alltaf sami nurlara- hátturinn liér, maður má aldrei vera eins og annað fólk. Þegar karlinn hafði grun um að drengurinn væri i kvenna- hópi varð hann órólegur og hafði allt á hornum sér. Ekki nema það þó, — liann að vera að draga sig eftir kvenfólki, sem ekki hafði einu sinni hirðu á að skafa skítinn undan nögl- unum á sér. Og þá yrði hann annað Iivort vinnumannslaus eða munnarnir yrðu fleiri, sen; metta skyldi. Hvorltveggja var bölvað. í skógarásnum fyrir ofan Ábæ var litið kot, sem tvær kon ur áttu heima í. Það voru mæðg ur og höfðu ofan af fyrir sér karlmannslausar og sveitar- styrkslausar. Á vetrum ófu þær gólfdregla og gluggatjöld, VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM Ritstjóri: Skúli Skúlason Framkv.stjóri: Svavar Hjaltested Skrifstofa: Bankastr. 3, Reykjavik. Sími 2210 Opin virka daga kl. 10-12 og 1-6 "" - BlaðiB kemur út hvern föstudag Allar áskriftir greiCist fyrirfram HERBERTSprent þvoðu þvotta og gerðu hreint, og á sumrum tíndu þær her og hlóm, sem þær seldu inn í bæ- inn. Gamla konan hafði aldrei verið gift, en sagt var að harns- faðir hennar hefði verið flag- ari úr næstu sveit, sem síðan fór til Ameriku og forðaði sér þannig undan meðlaginu. Dóttirin var alls ekki falleg, eins og þær eru í flestum sög- um, en liún var vel vaxin og viðfelldin. Dálítið hlédræg, sem stafaði af uppeldinu og því hvernig liún var tilkomin. Hún hét Lína, en móðir hennar hét Finna. Einn vordag voru þeir feðg- arnir að herfa akurinn, sem lá upp að skógarási þeirra mæðgn anna, og Linu sást hregða fyrir á skurðbrúninni livað eítir ann- að. Kartöflugarður mæðgnanna lá upp að garði Gallsteins. Þau Andrés og Lína skiptust á nokkrum orðum í hvert skipti sem hún fór hjá, og karlinn hlustaði óvær og önugur á þetta, en gat ekki heyrt hvað þau sögðu. -— Andrés! hrópaði hann á soninn, sem stöðvaði hestana þegar stúllcan fór hjá, — Andrés, sérðu eklci að klár- arnir sofna hjá þér! En hann sá vel hvernig and- litin brostu hvort framan í ann- að þangað til liestarnir fóru að mjakast áfram aftur og stúlk- an greip kartöflukörfuna sína, sem hún liafði sett frá sér. Gallsteinn karlinn hafði aug- un lijá sér eftir þetta, og nú tók liann eftir að sonurinn var farinn að vatnskemba liárið fyrir framan spegilinn á laug- árdagskvöldum. Og bráðum á miðvikudagskvöldum líka. Svo gekk liann blístrandi og lét eins og ekkert væri út á stétt og stóð þar um stund. Hann tók ekki reiðlijólið sitt og fór á dansinn eins og fyrr, lieldur reikaði hann úti á engi meðfram görð- um og skurðum. Hann fór langa króka, en lenti alltaf ná- lægt kotinu í ásnum. Karlinn nöldraði og jagaðist sýknt og heilagt, en sonur hans tók því í-ólega. — Eg er nú orðinn svo gam- all og ég þykist mega ráða því ofurlitlu sjálfur, hvar ég geng, sagði hann. — Þú ert bölvaður kálfur, sagði faðirinn. — Gastu ekki snuðrað uppi éinhverja fátæk- ari gálu en liana þarna í kot- inu. Ekki skuluð þið fá eyri hjá mér! — Hafðu aurana þína sjálf- ur, svaraði sonurinn. Við kunn- um að vinna, og gálu skaltu ekki kalla hana oftar i mín eyru. Bráðum fóru þau að sýna sig saman á almannafæri, og gamli maðurinn varð fýldari og fýld- ari. Svo var það eitt kvöldið, þegar hann vissi að þau voru úti saman, að liann sagði við kerlingu sína: — Eg ætla að labba út á ak- ur og líta eftir hvernig vorsæð- ið þrífst. ■— Já gerðu það, svaraði kerla. Gallsteinn gekk langan krók og kom niður að áskotinu að húsabaki. Hann gekk inn án þess að drepa á dyr. Finna sat í vefstólnum þó að þetta væri á laugardagskvöldi. Gólfið var nýþvegið, eldur i hlóðunum og kaffiketillinn yfir. Kötturinn sat á gólfinu og sleikti sig. -— Gott kvöld, urraði Gall- steinn. — Gotl kvöld svaraði konan og leil forviða á liann. — Mér var nauðugur einn kostur að koma og tala við þig, úr þvi að þú sýnist ekki hafa glirnur i hausnum sjálf. Sérðu ekki að stelpan þín hefir gert liann Andrés vitlausan i sér? — Víst hefi ég séð það, en mér er ekki þetta mál skyldara en þér. Eklci get ég sagt krakka- greyjunum að þau séu hálf- systkin. Annars skammast ég mín fyrir að meðganga, að ann- ar eins drumbur og þú ert skuli vera barnsfaðir minn. — Skilurðu ekki, manneskja, að þetta er óðs manns æði, grenjaði Gallsteinn. Það liggur tugthúsvist við því að systkini giftist. — Segðu þeim þá frá því, svaraði Finna og kastaði höfði. — Gerðu það, hleyðan þín! Ekki skil ég í að mér skyldi nokkurntíma lítast á þig. Eg þagði eins og steinn þegar telp- an fæddist, og lét bóndasoninn minn sleppa, vitanlega. Og hvernig hefir mér verið þakkað það? — Vertu ekki að nöldra um gamla daga, urraði Gallsteinn. — Eg er ekki hingað kominn til að láta skamma mig eins og hund heldur til að ráðgast við þig. Hvað eigum við að gera við krakkana? Eg geri ekki nokkurn skapaðan hlut. Þeim þykir svo vænt livoru um annað, að það er ekkert annað en þessi leið- inlegi sannleikur, sem getur skil ið þau að. Og liann verður þú að segja þeim, svo framarlega sem þú heíir kjark í þér til að sjá þau harmþrungin. Hann fór og skellti hurðinni á eftir sér. Finna gægðist á eft- ir honum mili blómanna í glugganum og steytti hnefann. Svo róaðist hún og fékk sér kaffibolla. Gallsteinn skálmaði lieim sótsvartur af vonsku. Ef það fréttist að ég er faðir slelpunn- ar í Áskotinu, fær fólkið eitt- livað að tala um, hugsaði hann með sér. En það kemur í sama stað niður, því að allir hafa skömm á mér fyrir. En ég er hræddur um að krakkarnir verði lágkúruleg þegar þau lieyra tíðindin. Skyldu þau ekki hætta að hanga livort ut- an i öðru, ha? Honum kom ráð i hug á heini leiðinni, ráð sem honum fannst svo gott að hann fór að hlæja og augnatýrurnar í honum Ijómuðu. Þegar hann kom heim spurði hann kerlinguna sína hvort hún vissi. að það væri eitthvað á milli Andrésar og Áskotsstelpunnar. Já, sú gamla vissi það. — Og hvernig líst þér á? — Ja, hvað skal segja? Stúlk- an er myndarleg og vinnusöm og eins góð og hver önnur. Það er ekki allt komið undir pen- ingunum. Hafi kerling búist við að karlinn fengi ofsakast, þá brást lienni það. Hann muldraði bara i skeggið: — Jæja við sjáum nú til. — Kannske að hann fari að sjá að sér með aldrinum, hugs- aði kcrla ánægð með sér. En ef hún hefði séð augnaráðið hans þá stundina, hefði hún ekki látið sér detta neitt slíkt í hug. Svo var það eitt kvöldið að Andrés kom inn, hnyklandi brúnir og bitandi á jaxl, svo að það var auðséð að hann var i vigaliug. Meðan þau voi’u að snæða kvöldmatinn sagði hann þurrt og þyrrkingslega: — Við Lína í Áskoti höfum komið okkur samajn, og svo getið þið sagt hvað sem þið viljið. Heyr á emdemi, sagði

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.