Fálkinn - 14.01.1949, Blaðsíða 2
2
FÁLKINN
KVIKMYNDIR —
Kvikmyndin „Scott Suðurheims-
skautsfari“ (Scott of The Ant-
artic) talin einhver merkasta
kvikmynd, sem gerð hefir verið.
Hinn 29. nóvember s.l. vccr hin
nýgerða enska kvikmynd, „Scott
of The Antartic“, sýnd fyrir
kommgsfjölskylduna og útvalda
hj.örð leikara auk nokkurra
annarra. Hefir myndin hlotið
mjög góða dóma og ýmiss kon-
ar hátíðahöld verið í sambandi
við fyrstu sýningarnar. Kvik-
myndin sjálf er elcki mjög löng
(innan við 2 kl.st.), en á kon-
ungssýningunni var auk þess
sýndur 50 mínútna þáttur á
leiksviði, og Johti Mills, sem
fer með hlutverk Scotts í kvik-
myndinni var kynnir. 1 sam-
bandi við sýninguna var tjaldi
Scotts, sem fannst árið 1910,
komið fyrir í anddyri kvik-
myndahússins. Allir þeir, sem
komust lífs af úr Scott-leiðangr-
inum, og hægt var að ná til,
voru kynntir fyrir konungsfjöl-
skyldunni við þetta tækifæri
svo og ættingjar Scotts sjálfs.
Amerískir leikarar voru all-
margir viðstaddir sýninguna,
t. d. Robert Taylor, Ann Sheri-
dam, Roland Reagan, Cary
Grant, Myrna Loy, Alan Ladd
o. fl. Margir enskir leikarar
voru einnig viðstaddir, t. d. Sir
Laurence Oliver, Vivien Leigh,
John Mills, Jean Simmons, Stew
art Granger, Margaret Lock-
wood, Pat Roc, Ann Told, Jean
Kent, Dennis Price og Alec
Guinness, auk nokkurra fleiri,
sem getið hafa sér góðan orðstír
í kvikmyndum. 1 sambandi við
frumsýninguna var einnig sett
upp sýning á heimsskautsferða-
útbúnaði um borð í fyrsta rann-
sóknaskipi Scotts, sem heitir
„Discovery“ og lá í London um
þessar mundir. Myndin er af
þessu fræga skipi flaggskreyttu
við hafnarbakka í London.
LEIKARAR (
Myrna Loy, ameríska kvik-
myndaleikkonan, með móður
sinni,frú Dellu Williams. Mynd-
in er lekin nýlega, þegar leik-
konan kom á æskustöðvar sín-
ar í fyrsta skipti, síðan hún
byrjaði að leika í kvikmyndum.
Fjársöfnun í Hollywood. Þessi
indverska prinsessa er engin
önnur en hin fræga leikkona,
Greer Garson, sem tekur hér
þátt í hátíðahöldum, sem geng-
ist er fyrir til þess að safna fé
í sjúkrasjóð kvikmyndastarfs-
manna.
MIKIL NÝRÆKT.
í Austur-Afríku hefir verið byrj-
að á að rækta lVn miiljón hektara
lands til þess að framleiða þar
jurtafeiti og oliur. Tilgangurinn
með þessu er tvennur: að útvega
infædda fólkinu atvinnu og bæta
Jifskjör þess, og i öðru lagi að fram-
leiða meira lianda fólki sem liður
neyð. Þarna verða aðallega rækt-
aðar jarðhnetur og soyabaunir og
FAO — landbúnaðarnefnd UNO —
sem að þessu stendur gerir ráð fyr-
ir að þarna fáist um 800.000 smá-
lestir af jarðhnetuin á ári. — í
Vestur-Afríku hyggur franska stjórn-
in á ýmislegar búnaðarframkvæmd-
ir og ráðgerir að sotja þar upp 300
fyrirmyndarbú.
Aga Khan, hinn forríki leiðtogi
indverskra Múhameðstrúar-
manna, sem er aðalsprautan í
nýstofnuðum kvilcmyndahring
í Evrópu. Talið er að þetta muni
verða risafyrirtæki.
Frægur vindill. Jean Simmons,
hin unga enska leikkona, sem
flestir munu kannast við, reykti
fyrsta vindilinn rétt fyrir ára-
mótin. I>að var í blaðamanna-
veislu. Jean tók ekki marga
reyki, og gaf síðan einum blaða
manninum vindilinn áletraðan
með nafni sínu til minningar.
Vafalaust verður þetta verð-
mætur gripur og eftirsóttur.
HYGGINDI OG HJÚSKAPUR.
í „Winnipeg Tribune“ stóð þessi
klausa nýlega undir hjúskaparaug-
lýsingardálkinum: „Bóndi, 38 ára
gamall, óskar að kynnast duglegri
stúlku, sem er ekki yfir þrítugt en á
Þannig dansaði hún nýja árið
inn. Það tíðkast í flestum
löndum, að nýárinu sé fagnað
með dansleikjum, þar sem ó-
venjuleg kátína ríkir, og sums
staðar er dansklæðnaðurinn
hafður sem fáránlegastur. ís-
lendingar hafa komið þeirri
venju á að nota samkvæmis-
ktæðnað við þetta tækifæri, en
venja er að hafa allskonar
kynjahúfur á höfði til þess að
setja sérstakan blæ á somkom-
una. — Þessi enska stúlka hér
á myndinni er að fara á nýárs-
dansleik, og búningur hennar
er mjög einkennilegur og frum-
legur.
IVMOVA'A'
dráttarvél. Ætl.ar sér að giftast licnni
ef traktorinn er ógallaður.Sendið vin-
samlegast. mynd af vélinni með svar-
inu.“
3946 5725
6287 og 80196
eru símanúmer
Skommtnnarskrifstofn rikisins
m