Fálkinn - 14.01.1949, Síða 6
6
FÁLKINN
VITIÐ ÞÉR . . . . ?
- LITLA SAGAN -
O O -"H#.- o ■*«►' O -"Hfc- o o o
Tove Ditlevsen:
Einhver verður
að deyja
ÞAt) var peningalykt af honum,
er liánn gekk gegnum salinn, á und-
an ungu stúlkunni, sem meö lion-
um var. Þjónarnir viku til liliðar
og bentu honum auðmjúklega á
horðið iijá hljómsveitarpallinum,
sem hafði verið tekið frá handa
honum, og fólkið í veitingasalnum
livíslaði og horfði á eftir lionum.
Flest af því þekkti hann.
Unga stúlkan virtist feimin, hún
óskaði þess i huganum að liann
hefði valið stað, sem minna bar á.
Hún starfaði á skrifstofunni hans
og hafði sagt já þegar hann bauð
henni að snœða miðdegisverð með
sér, því að henni hafði liugkvæmst
að hann gæti hjálpað henni. Fátæka
fólkið heldur sem sé að allt sé hægt
að gera með peningum. Og svo
þekkti hann lika menn i stjórnar-
ráðinu og talaði um krónprinsinn
eins og þeir hefðu verið saman í
skóla.
Hann var í besta skapi, heilsaði
kunningjum og bað um lambakóte-
lettur og jarðarber, þó að þau væru
varla komin á markaðinn. Og svo
renndi liann fingrinum niður eftir
vínlistanum og nam staðar við allra
dýrustu frönsku vínin, með óal-
gengustu nöfnunum. — Við þriðja
glasið studdi hann lófunum á hand-
arbak stúlkunni og horfði í augu
henni: Augun yðar eru fimmtán ára,
sagði hann.
STÚLKAN brosti og svaraði ekki.
Hún var að luigsa um bróður sinn,
en var hrædd um að einhverjir
mundu heyra, ef hún færi að tala
um hann. -— Hann lyfti fjórða glas-
inu og sagði upphátt: Skál fyrir
Royal Air Force! Fólkið á næstu
borðum kinkaði varlega kolli til að
taka undir skálina. Já, hann var
maður sem ekki villti á sér heim-
ildir, heill og ósvikinn.
Unga stúlkan leit angistarfull kring
um sig og hvíslaði biðjandi: —
Farið varlega, hér geta verið snuðr-
arar! Snuðrarar? sagði liann og
blóðþorstinn skein út úr andlitinu
er hann hallaði sér að henni, — það
ætti að gelda alla snuðrara — það
er verra en dauðinn, það er yfir-
leitt það versta sem liægt er að gera
nokkrum karlmanni. Trúið þér því
ekki?
— Jú, sagði hún og færði sig dá-
litið undan er liann hlammaði sér
i sófann lijá henni, með handlegg-
inn á hreyfingu frá sófabakinu og
niður að herðunum á henni. Hún
fór að efast um hvort hann gæti
hjálpað bróður hennar.
Vínþrunginn andardráttur hans
færðist frá eyra hennar og niður
kinnina, svo að hún sneri andlitinu
undan. Augu hans voru sokkin i
fituskvapinu. Svo sagði hún lágt og
hratt: — Það er hræðilegt að dauða-
dæma spellvirkjana; haldið þér
ekki að það sé mögulegt að koma
þvi til leiðar að þeir verði náðaðir?
HANN hnyklaði brúnirnar og
kipraði munninn til að sýna að
hann væri áhyggjufullur, en þetta
var í svo litlu samræmi við andlits-
fallið að það var hjákátlegt: — Eg
er hræddur um ekki, sagði hann með
semingi og þóttist klökkur, — þeir
vilja sjá blóð, þorpararnir!
Svo færði liann sig ofurlítið fjær
lienni og sagði: •— Veistu hvað þeir
gera við þá til að fá þá til að með-
ganga? Hann færði sig nær lienni
aftur og hvíslaði einhverju að henni
og hún náfölnaði, jafnvel varirnar.
— Það er ekki satt, hvíslaði hún,
það er — það hlýtur að vera. •—
Svo þagnaði hún, því að hún sá
stóran blóðpoll fyrir framan sig,
sem rann ofan i rákirnar milli gólf-
borðanna. Þeir höfðu ekkert gert
henni, þeir liöfðu aðeins yfirheyrt
hana í klefanum, jjar sem blóðpoll-
urin var að seitla niður á gólfið.
Hún varð að stíga yfir hann þegar
hún fór út. — Það fór hrollur um
hana og luin fákk svima og ýtti
diskinum frá sér, þvi að liún gat
ekki þolað að liorfa á blóðrauð
jarðarberin.
— Svona nú, sagði maðurinn. •—
Taktu þetta ekki nærri þær. Þið er-
uð svoddan veimiltítur, ungu stúlk-
urnar.
Ilún starði framundan sér og ósk-
aði þess af alhuga, að þeir dræpu
bróður hennar á þessu augnabliki.
Kalda skammbyssu að gagnauganu,
.og svo mundi veslings ungi líkam-
inn ekki kveljast lengur.
Maðurinn rétti úr sér í sætinu
og hámaði í sig jarðarberin. — Lög-
in eru ströng um þessar mundir,
sagði hann hátíðlega. Einhverjir
verða að deyja til þess að við get-
um lifað.
HANN RATAÐI.
Stýrimaður á skipi, sem var að
afferma í London ætlaði eitt kvöld-
ið að heimsækja kunningja sinn, en
villtist í þoku. Hann ráfaði lengi um
göturnar og reyndi að átta sig á
hvar liann væri en gafst upp á því
og var orðinn ramvilltur. Loks kom
hann inn í þröngt sund og þegar
því lauk tóku við steintröppur nið-
ur. Hann hafði stigið tvö þrep nið-
ur þegar hann mætti manni og spurði
hann til vegar. „Getið þér sagt mér
hvert þessi þrep liggja?“ spurði
liann. „Certainly!" svaraði maður-
inn í þokunni. Ef þér haldið áfram
farið þér beint ofan í Themsá. —
Eg rata, því að ég er að koma
þaðan!“
GAMALT JÁRN VANTAR.
í Evróu er um þessar mundir
afarmikil eftirspurn eftir brotajárni.
Hagfræðinefnd UNO telur að þörf
sé fyrir 3% milljón smálestir. Án
þeirra geta járnsteypur og stálsuð-
ur ekki náð þeirri lágmarksfram-
leiðslu, sem er nauðsynleg til að
koma endurreisninni áfram. Verður
innan skamms byrjað á almennri
brotajárnssöfnun um alla Evrópu.
Þar er viða mikið af skotnum flug-
vélaskrokkum, járnbrautarvögnum
og ýmiskonar hergögnum, sem liggur
enn eins og hráviði þar sem það
var eyðilagt. í Líbyu er afarmikið
að þesskonar rusli, en ekki er hættu
laust að sanka því saman því að
enn er mikið af jarðsprengjum þar.
Verður að eyðileggja þær áður en
farið verður að safna járnaruslinu.
að með uúverandi olíunotkun
endast olíunámurnar, sem nú
eru í heiminum ekki nema
fimmtán ár?
En þcið er ústæða til að halda
að feiknin öll séu enn til af
olíunámum, sem ekki hafa
fnndist, og ennfremur gera
fræðimenn tilraunir með að
framleiða olíu úr kolum, svo
að tæplega er ástæða til að ótt-
asl olíuþurrð. Og eftir fimmtán
ár verður kannske farið að
nota kjarnorkuna, sem rekst-
ursaf I.
að Kirgísar hafa yak-uxa sem
húsdýr, og hann getur „nærri
því allt nema orpið eggjum“.
Hausinn á honum er eins og á
nauti, en í stað rófu hefir hann
tagl, og liann rijtir eins og svín.
Taðið úr honum er notað til á-
hurðar. Hann er góður til reið-
ar og getur borið þungar ldyfj-
ar, og er mjög þægur. Myndin
er af Kirgísa á Yak-uxa.
Til Reno, bæjarins, sem fólkið fer
til þess að fá hjónaskilnað, kom níu
ára drengur ekki alls fyrir löngu.
Erindi hans var að fá skilnað við
foreldra sina.
Iíann (er að þjarka við konuna
sína): — Innri rödd segir mér ....
Him: — Hjálpi mér! Hefirðu nú
innri rödd líka?
að þessari konu líður líklega vel
ef hitinn er yfir 10 stig, en mið-
ur ef hann er lægri?
Líðanin er sem sé ekki að-
eins undir hitastiginu komin
heldur jafnframt undir því hve
loftslagið er rakt. Við tilraunir
hafa menn komist að þeirri
niðursttöðu að líðanin breyt-
isl oftast við 10 stiga markið.
En manni finnst þurrt, kalt loft
hlýrra en rakt loft með sama
hitastigi ef þuð er undir 10
stigum, en öfugl ef hiiinn er
yfir 10 stig.
að varðan sem Peary hlóð fyrir
43 árum, er hann var að reyna
að k/mast á norðurheimskaut-
ið, er nú fundin?
A meríski verkf ræðingurinn
Robert E. Peary gerði eftir alda
mótin margar tilraunir til að
komast á norðurheimskautið.
Árið 1905 komst liann til Kap
Sheridan, sem er læplega 100
km. frá heimskautinu og hlóð
þar vörðu og skildi eftir ferða-
sögu sína. Nú hefir amerískur
leiðangur, sem notaði skip og
heliokopterflugvél, komist til
Kap Sheridan og fundið vörð-
utia. — Árið 1908 tókst Peary
að komast á heimskautið. Var
hann þar sólarhring og setti
upp fána Bandaríkjamanna.
Hér sést Peary við vörðuna.