Fálkinn - 28.10.1949, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
—
Fyrrum þýskt. — „Eagle“ heitir
þetta fallega þrímastraða bark-
skip, sem einu sinni var þýskt
skólaskip.en nú er eign amerísku
flotamálastjórnarinnar, er not-
ar það sem æfingarsldp handa
strandvarnaliðinu. Myndin er
tekin í enskri höfn, er skipið
var í heimsókn þar nglega.
Marion Anderson, hin fræga
söngkona gerir lítið að því að
taka sér frí, en þó brá út af því
nýlega. Hún hefir verið í sumár-
fríi í París undanfarið til að
safna kröftum undir veturinn.
Furðulegt jarðlíkan. — Enska
filmdísin Phyllis Calvert gerir
sér það til gamans að safna
ýmsum hlutum, sem standa i
Emir Said Idris el Senussi heit-
ir hinn nýi hæstráðandi Araba-
ríkisins Cyrenaice, sem m. a.
Bretar hafa viðurkennt sem sjálf
stætt ríki.
Jakib Kaiser heitir ulanríkisráð-
herrann í hinni nýju stjórn
Vestur-Þýskalands. Undir hann
heyra öll „alþýsk“ málefni.
Burt úr borgarstyrjöldinni. —
Einn af helstu mönnum Kína,
fyrrverandi forsætis- og utan-
ríkisráðherra E. V. Soong, lýsi
ekki á blikuna í Kína núna eftir
sigra kommúnista og hefir flúið
land og farið til Ameríku. Hér
sést hann stíga á land í flug-
höfninni í New York.
Sir David Kelly sendiherra Breta
í Moskva var fyrir nokkru falið
að leita hófanna hjá Stalin um
að taka þátt í nýjum utanríkis-
ráðherrafundi stórveldanna, sem
Bandarikin höfðu stungið upp á
að kalla saman í New York 22.
september, til að koma sér sam-
an um friðarsamninga fyrir
Austurríki. Var áformað að vara
utanrikisráðherrar hinna fjög-
urra stórvelda mættu þar. Stalin
félls á að senda utanríkisráð-
herra sinn á fundinn — Visjin-
sky sjálfan — með því skilyrði
að Bevin og Dean Acheson
rnættu þar sjálfir en sendu ekki
varaskeifút fyrir sig.
einhverju sambandi við kennslu.
Hérna sýnir hún einn af dýr-
gripum sínum: hundrað ára
gamalt jarðlíkan, sem er hægt
að leggja saman og þenja út
eins og regnhlíf. Þegar jarðlík-
anið er þanið út sjást öll lönd
jarðarinnar í fögrum litum —
en lögunin er ekki alls staðar
nákvæmlega réttl
Rétta leiðin. Vitanlega er
þægilegt að aka dýrum bifreið-
um, en til þess þarf miklar
tekjur. Þessi þýski verkfræðing-
ur í nýjasta bílnum sínum, seg-
ist vera á réttri leið til að finna
bíl handa öllum. Bifreiðin á
myndinni er ódýr, með diesel-
vél (98 rúmcm) og fer 50 km.
klukkustund.
Neðst til hægri:
Uppþot út af götunafni. — í júni
stóð til að skira götu eina í
París eftir Leclerc hershöfð-
ingja, sem frelsaði borgina úr
klóm Þjóðverja og nú er látinn.
Athöfnin fór líka fram og stjórn
aði henni Pierre de Gaulle borg-
arstjóri bróðir hins alkunna
hershöfðingja. En samtímis þvi
sem skírnarathöfnin fór fram
hélt hershöfðinginn útifund á
næstu grösum til þess að minn-
ast þess að níu ár voru liðin frá
því að hann stofnaði andstöðu-
hreyfingu frjálsra Frakka.
Kommúnistar töldu þetta óvirð-
ingu við Leclerc og að de Gaulle
misbrúkaði nafn hans til fram-
dráttar flokki slnum. Efndu
þeir því til mólmælasamkomu,
sem varð til þess að utanríkis-
ráðherrann bauð út 20.000
manna lögregluliði og mörg þús-
und mönnum úr öryggisliðinu.
— Hér sjást tveir af þessum
20.000 vera að handtaka komm-
únista.
Ekki fyrir rusl! — Nýjasta tísk-
an er sú að bera ekki töskuna
sína í hendinni heldur sem bak-
poka. Þægilegt er þetta ekki
því að í hvert skipti sem fara
þarf í töskuna verður fyrst að
ná henni af bakinu á sér. En
auðvitað vekur „bakpokinn“ at-
hygli, og þrifnir borgarar, sem
ckki vilja fleygja bréfarusli á
götuna, kynni máske að freist-
ast til að stinga því ofan í þess-
ar labbandi ruslakörfur.