Fálkinn - 12.05.1950, Blaðsíða 1
FRA VESTMANNAEYJUM
Nú eru komin vertíðarlok í verstöðvum suðvestanlauds og í Vestmannaeyjum. Lokadagurinn, 11. maí, var til skamms
tíma mikill hátíðisdagur í sjávarþorpunum. Sjómennirnir gerðu sér glaðan dag, skemmtanir voru haldnar í öllum sam-
komuhúsum og óvenjumikil umferð var um göturnar. Hátíðarbragur var á öllu, þó að einhverjir kunni að hafa fengið
sér einu staupi of mikið til þess að stuðla að því, að svo mætti verða. En hátíðin var þó jafnan tregabundin að öðrum þræði.
Vertíðarmennirnir voru á förum og þeirra var oft saknað á heimilunum. Viðbrigðin urðu svo mikil. — Mynd þessi er frá
Vestmannaeyjum. Ljósm.: Þorsteinn Jósepsson.