Fálkinn - 09.03.1951, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
BÍLSTJÓRINN, SEM VARÐ'
VARAFORSE^TI.
J. W. Barklcy, hinn nýi varafor-
seti Bandarikjanna er 71 árs. Fædd-
ur i Graves County í Kentucky og
sonur tóbaksræktunrmanns, sem
var svo fátækur, aS Barkley varð
að vinna fyrir sér sjálfur á stúdents-
árunum sem bílstjóri og þjónn. Um
skeið var hann málaflutningsmað-
ur og 18 mánuðum áður en fyrri
heimsstyrjöldin hófst var hann kos-
inn i öldungadeildina. Varð hann
hrátt lielsta máttarstoð demokrata-
flokksins og Roosevelts. Hann varð
formaður þingdeildarinnar og varð
sérstaklega vinsæll í þeirri stöðu.
Löngu fyrir árásina á Pearl Harbor
varaði Barkley við Hitler og var
einn þeirra, sem ákveðnast kröfðust
þess að Bandaríkin létu af hlutleys-
inu og gengju i lið með Vesturveld-
unum, Hann var einn af frömuðum
láns- og leigulagamja. Eftir að Tru-
man tók við embætti studdi Bark-
ley dyggilega flest þau frumvörp,
sem liann bar fram.
Jafnvœgislistamennirnir tveir, sem vekja geysilega nndrun og aðdáun.
Þeir munu vera bestir í sinni grein á Norðurlöndum.
Lord og Reeves, leiktráðar sem v'ekja mikla hrifningn með skrípalát-
um og töfrabrögðum.
Kdbarett sjómdnndddgsrððs
Sjómannadagsráð sjómannafélag-
anna i Reykjavik og Hafnarfirði sér
um hátíðaliöld þau, sem haldin eru
hér á sjómannadeginum á ári liverju.
Ágóðinn af skemmtunum sjómanna-
dagsins rennur í sjóð dvalarheimil-
is aldraðra sjómanna, sem i ráði er
að koma á fót. Auk þess aflar sjó-
mannadagsráð svo tekna til sjóðsins
með öðrum skemmtunum o. fl.
Nú hefir sjómannadagsráð fengið til
landsins allmarga erlenda trúða og
fimleikamenn til þess að gcfa Reyk-
vikingum og nærsveitamönnum kost
á nýstárlegri og góðri skemmtun og
•til þess að afla sjóðnum tekna.
Val skemmtikrafta hefir tekist
með ágætum, og eru ýmis atriðin
það besta, sem sést hefir hér á
landi á þessu sviði. Munu áhorfend-
ur geta lokið upp einum munni um
ágæti þessarar skemmtunar. Æski-
legt er, að sem flestir gætu séð
kabarettsýningu þessa, því að þarna
eru á ferðinni fimlcikamenn og
trúðar úr hópi hinna bestu á Norð-
urlöndum.
Af skemmtikröftunum má nefna
jafnvægislistamennina tvo, sem gera
hinar ótrúlegustu æfingar, enda
taldir hinir bestu á Norðurlöndum,
flugfimleikamennina þrjá (þar af
ein stúlka), sem stökkva djarflega,
töframanninn og skopkarlinn (klovn
ann), sem skemmta áhorfendum liið
besta með skripalátum sínum og
brögðum, og linudansarana tvo með
apann. Auk þess syngur Haukur
Mortens og liljómsveit Kristjáns
Kristjánssonar leikur nýjustu dans-
lögin. Kynnir er Baldur Georgs með
Konna.
Það þarf víst ekki að hvetja fólk
til þess að fara á kabrettsýningu
þessa, því að þegar hefir mikið orð
farið af henni um bæinn, svo að
vafalaust á eftir að verða húsfyllir
í Austurbæjarbíó mörg kvöld ennþá.
„Augnabankinn“ bjargaði. —
Henrik Both, þrítugur maður
frá Johannesburg í Suður-Af-
ríku hefir verið blindur í tíu ár,
en nú hefir „augnabankinn“ í
New York gert hann sjáandi
aftur. Hornhimna, tekin úr
manni, sem hafði verið dauð-
ur í klukkutíma, var sett í aug-
að á Botha. Han nsér vel nú,
en augun þola ekki sterkt Ijós,
svo að hann notar deyfandi
gleraugu.
Fjórburar. — Frú Cole, sem er
27 ára, eignaðist nýlega fjór-
bura á spítala í London. Sést
hún hér með dæturnar fjórar,
eftir að þær voru teknar úr
bómuUarumbúðunum, sem þær
voru í fyrsta kastið.
Auriol Frakklandsforseti efndi
nýlega til dýraveiða í Rabouill-
etskóginn við París fyrir alla
erlenda sendiherra í borginni.
Forsetafrúin tók þátt í veiði-
förinni og sést hún hér með
byssuna viðbúna.
Forsetafrú á veiðum. —
V incecnt