Fálkinn


Fálkinn - 15.06.1951, Blaðsíða 10

Fálkinn - 15.06.1951, Blaðsíða 10
10 FÁLKINN „Maður kcnmr manns í staö.“ —Æ, ég iSrast eftir að við kcypt- um rúm með svona háum stólpum! Töfrasvanurinn Einu sinni voru þrir bræður; hét sá elsti þcirra Jakob, sá næsti Frið- rik og sá yngsti Pétur. Yngsti bróö- irinn, Péttir, varð fyrir skammar- legri meðferð af hálfu eldri bræðra sinna. Ef eitthvað fór aflaga var skuldinni skellt á Pétur og í hans hlut skyli falla að kippa hlutunum í iag afttur: Hann varð að þola þenn- an yfirgang sökum þess, að hann var veikburða og viðkvæmur og ó- fær um að verja hendur sinar gegn eldri bræðrum sínum, sem voru miklu sterkari. Dag nokkurn þegar hann var staddur úti í skógi við að tína smælki i eldinn, kom gömul, lítil kona til hans og hann tjáði henni öil sín vandræði. „Hlustaðu nú á, drengur minn góður,“ sagði sú gamla þegar hann hafði rakið liarmatölur sinar fyrir lienni, „er veröldin ekki nógu víð? jLeggðu land undir fót og freistaðu jgæfunnar annars staðar. - Pétur lét sér orð gönm konunnar *-“ið kenningu verða og kvaddi hús föður síns dag einn snemma morg- uns. En honum var mjög þungt um hjartaræturnar af að þurfa að yfir- gefa heimili sitt, þar sem hann var fæddur og uppalinn, og hafði að minnsta kosti eytt hamingjurikum bernskudögum. Hann settist því nið- ur á liæð einni og horfði bliðum augum enn einu sinni yfir æsku- stöðvarnar. Allt í einu stóð litla, gamla konan frammi fyrir honum. klappaði hon- um á öxlina og sagði: „Allt i lagi, svo langt sem það nær, drengur minn. Hvað ætlastu nú fyrir?“ Pétur hafði ekki hugmynd um hverju hann átti að svara, þvi að hann hafði alltaf verið þeirrar skoð- unar, að hamingjan myndi falla sér jafn auðveldlega i skaut og full- þroskað kirsuber. Gamla konan er renndi grun í hugsanagang hans, brosti vingjarnlega og sagði: „Eg skal segja þér hvað þú skalt gera, því að ég hefi fengið dálæti á þér. Eg er viss um að þú munir minnast mín þegar lukkan hefir tekið að leika við þig.“ Pétur hét henni því í einlægni, og gamla konan hélt áfram: „Um sólarlagsbil i kvöld skaltu ganga yfir að þcssu perutré, sem stendur þarna við vegamótin. Undir þvi muntu finna mann, sem liggur þar sofandi, og bundinn við tréð, rétt hjá hon- um er stór og fagur svanur. Gættu þess vel að vekja manninn ekki, en leystu svaninn og farðu með hann Þegar fuglinn veinaði, kallaði Pétur: „Svanur! Haltu fast!“ með þér. Hver einasta manneskja ínun verða lieilluð af fjaðraskrauti hans, og þú verður að leyfa hverj- um, sem hafa vill, að fá sér fjöður. En samstundis og svanurinn finnur hinn minnsta fingur snerta sig mun hann gefa frá sér hljóð. Þá skalt þú segja: „Svanur, lialtu fast!“ Hönd þeirrar manneskju, sem hefir snert svaninn mun þá verða föst og ekk- ert megnar að losa liana, nema þú snertir hana með þessum sprota, sem ég ætla að gefa þér. Þegar þú þannig hefir klófest he.ilan hóp manna á þennan hátt, skaltu teyma lestina á eftir þér. Leið þin mun liggja til stórrar borgar, þar sem konungsdóttir nokkur á heima, en konungsdóttir þessi hefir aldrei hlegið svo vitað sé. Ef þú aðeins getur komið henni til að hlæga þá er framtið þinni borgið. Og þá vona ég að þú munir eftir gömlu vinkonunni þinni.“ Pétur hét því aftur að Iiann skyldi minnast hennar, og um sjlarlags- bilið fór hann að trénu, sem gamla konan hafði getið um. Maðurinn lá þar í fasta svefni, og stór, fagur svanur stóð þar bundinn með raúðu bandi við tré lijá lionum. Pétur leysti svaninn og teymdi hann á burt með sér án þess að vekja hinn sofandi liúsbónda hans. Dálitinn tima gekk liann um með svaninn og kom að lokum í garð, þar sem nokkrir menn unnu kapp- samlega. Þeir urðu allir frá sér numdir af aðdáun að hinu fagra fjaðraskrauti svansins. Einn fram- ur sveinn, sem var ataður auri frá hvirfli til ilja, hrópaði upp: „Ó, en hvað ég væri hamingju- samur ef ég ætti bara eina af þess- um fjöðrum!“ Fra,mhald í nœsta blaði. Örlög heklaða hálsbindisins. — Nú hefi ég skrifað hérna upp öll Ijót orð, sem þú mátt ajdrei segja, frændi lilli. — Ekki veit ég hvernig maður ætti að komafit af án simans! <>íA>£A Sunnudagsgleði gullfísksins.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.