Fálkinn - 24.08.1951, Blaðsíða 7
FÁLKINN
7
VAGN LÚÐVÍKS XIV.
Mikið hefir gengið á undanfarið
í ParíSj, í tilefni af 2000 ára afmæli
borgarinnar. Meðál annars hafa
Parísarbúar fengið að sjá skraut-
vagn „sólarkonungsins“, Lúðvíks
xiv. í notkun. Honum hefir verið
ekið um göturnar og ekillinn var
vitanlega í sams konar búningi og
tíðkaðist áÁtímum konungsins. —
„SPÁNSK HEIMSÓKN".
Það er venjulegt að kalla stutta
heimsókn „spánska“ en þetta féll
vél saman, er 200 spánskir dans-
arar, karlar og konur, komu til
Parísar nýlega, því að þeir stóðu
styttri tíma við, en Parísarbúar
vildu. Hér sjást nokkrar af dans-
meyjunum dansa með „kastan-
jettur“ kringum Eiffelturninn. —
1 Bandaríkjunum er sífellt verið að þjálfa fólk í ýmsum þeim störf-
um, sem gegna þarf, ef til ófriðar dregur. Þessi mynd var tekin ný-
lega i New York, er 700 nýliðar i sjúkra-, lögreglu- og slökkviliðs-
þjónustu voru látnir vinna Marshall eið að því að vinna dyggilega.
Eins og allir vita saka Rússar Breta um að þeir æfi þýskar liðs-
sveitir undir hernað. Þetta hefir orðið til þess að Bretar hafa 'gert
grein fyrir þvi, sem gerist hjá þeim i málum þessum í V.-Þýska-
landi. Bretar eru nfl. um þessar mundir að æfa þýska varðsveit,
sem á að taka við ýmsum þeim verkum, sem setulið Breta hefir
annast hingað til. Hér sjást þýskir varðmenn vera á æfingu. —
KÖKU-SÝNINGIN
í París er kunn ýmsum erlendum
ferðamönnum. Þá eru hunangs-
kökur séldar hverjum sem er, og
nafn þeirra eða annarra, sem þeir
vilja senda kökuna, greypt í góð-
gætið með sykurleðju. Hér sjást
stúlkur afgreiða kökurnar, sem
eru i allra kvikinda liki.
SÓLKLUKKA.
Verksmiðja í Frankfurt a. M. hef-
ir búið til svonefnda „Universál-
sólskífu“. 6000 vinnutíma þurfti
til þess að gera gripinn. Á að vera
hægt að lesa á sólklukkunni með
fullri nákvæmni, hvað klukkan sé
á ýmsum stöðum í heiminum, þeg-
ar liún er t. d. 12 i Frankfurt a. M.
GÖTUSÝNING.
1 Neuilly, einni af útborgum Par-
ísar, hafa listamenn að vanda,
haldið sýningu í vor, en af því
að ékki var húsnæði tiltækt hug-
kvæmdist þeim að hálda sýning-
una á götunni. — Hér sjást tveir
af yngstu sýnendunum vera að
hengja upp listaverk sín.
STÓR - STÆRRI - MINNSTUR.
„Sugar“ Roy Róbinson fyrrver-
andi heimsmeistari i hnefáleík
(millivigt), aðstoðaði nýlega við
liknarskemmtun i París, og hitti
þar franska risann Atlas, og virt-
ist smámenni hjá honum. Hér á
myndinni sést Atlas til hægri,
„Sugar“ til vinstri og í miðjunni
arabískur snáði, sem er kjörsonur
„Sugars“.