Fálkinn


Fálkinn - 07.03.1952, Page 1

Fálkinn - 07.03.1952, Page 1
Morgunn við Reykjavíkurhöfn Nú stöðvast íslensku togararnir Iwer af öðrum, og þeim fer fjölgandi, sem liggja bundnir í höfn vegna verkfalls þess, sem nýlega er skollið á. Það er von íslensku þjóðarinnar og bráð nauðsyn fyrir þjóðarbúið, að verkfall þetta verði leyst sem fyrst, því að íslendingum er fátt nauðsynlegra en að sækja afla á miðin og flytja út fiskafurðir. íslensk framleiðsla er ennþá tiltölulega fábreytt og lítil líkindi til stökkbreytinga á því sviði á næstunni. Margl þarf því að flytja inn, ef við viljum reyna að halda lífs- venjum okkar óskertum. íslenska þjóðin á meira komið undir utanlandsviðskiptum sínum en flestar aðrar þjóðir og minni fiskafli,þýðir að jafnaði minni útflulningur og rýrari lífskjör. Langvinnt togarverkfall rýrir því lífskjörin ekld einungis hjá þeim mönnum, sem missa atvinnuna og fyrirtækjunum sem rekstur raskast hjá, heldur óbeint lxjá allri þjóðinni vegna minni innflutnings sem er venjulega óhjákvæmileg afleiðing Islenska þjóðin á því þá ósk heitasta að togaraverkfallið leys- ist hið bráðasta. Ljósm. Þorst. Jósepsson.

x

Fálkinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.