Fálkinn - 07.03.1952, Qupperneq 2
•J
FÁLKINN
KYSSTI ENGILINN.
í Dublin var stöðvun á allri um-
ferð um eina fjölförnustu götu borg-
arinnar í vetur. Ástæðan var sú, að
einbver náungi liafði klifrað upp í
Hkneski eitt mikið, sem stóð við göt-
una, og kyssti í sífellu mynd af
engli, sem þar var. Maðurinn var
kallaður fyrir rétt en neitaði því að
nokkur sök yrði hjá sér fundin. Það
væri hVergi bannað að kyssa engla
og engin ástæða fyrir fólk að safn-
ast í hóp á götunni, þó að það
væri gert. Maðurinn slapp.
Hinn 11. nóv. 1919 var samið um
vopnahlé í fyrri heimsstyrjöldinni
og er dagsins jafnan minnst með
öllum þjóðum, sem þátt tóku í
þeirri styrjöld — ekki síst með
Bretum. Er jafnan stór samkoma
við varða fállinna hermanna, „The
Cenotaphu i Whitehall í London.
Hér sést Eliísábeth drottningar-
móðir setja niður kross í minning-
arreit fállinna liermanna við West
minster Abbey síðastl. 11. nóv.
EYJU SKÝTUR UPP.
Á botni Kaspíahafs er eldfjall
sem gaus í vetur, með þeim afleið-
ingum að eyja myndaðist i hafinu,
]). e. toppurinn á fjallinu hækkaði
svo að hann stóð upp úr. Er eyjan
800 metra löng en 90 metra breið.
Arnþór Jakobsson varð sextugur
24. febr. s.l.
Eldgosið sást vel frá Baku, sem er
í meira en hundrað kílómetra fjar-
lægð.
HÁLFFERTUGA konan.
Miriam Hopkins kvikmyndaleikkona
hefir sagt það upphátt, að konur
megi helst ekki án karlmanns vera
úr því að þær eru orðnar 35 ára.
Hún er nú orðin 48 og liefir gifst
þrisvar. •— „Mér stóð alveg á sama
um karlmennina þegar ég var tvít-
ug, þvi að þá hafði ég um svo mikið
að liugsa, sem sé að komast á-
fram .... En maður getur orðið
skelfing ástfanginn þegar maður er
orðinn 35 ára. _Eg kæri mig ekkert
um menn, sem eiga mikla. peninga.
OgJieldur ekki sakleysingja, sem eru
viðvaningar í ástamálum!"
Ódýri bóknnrMrinn IWl
í Listamannaskálanum
Á annað hundrað bækur fyrir hálfvirði og minna. —
Hundruð bóka og smárita fyrir 3—15 krónur. — Ævi-
sögur, sagnaþættir og þjóðsögur, íslenskar skáldsögur,
ljóðabækur, barnabækur, þýddar skáldsögur, ferðabækur
o. m. fl. — Einnig’ nokkur eintök af uppseldum og eftir-
spurðum bókum. — Bókaskrá liggur frammi.
Gerið góð koup I Listamannashdlanum
t
♦
t
Ódýri békðmdrhiftnrinn 1951
*cG.u\,míó&
SmiRNlWO§OLIlJR
á landi — sjó ogr i lofti
Hafnarstræti 10—12. — Sími 6439.
Reykjavík.