Fálkinn


Fálkinn - 07.03.1952, Side 9

Fálkinn - 07.03.1952, Side 9
FÁLKINN 9 Svo sátu þeir áfram á steininum og biðu. Hinir verkamennirnir voru í livarfi hinú megin við veginn. Allt mundi hafa gengið vel — hjá öllum nema kannske Corrigan — ef Tony hefði ekki farið að signa samsærið eitthvað með likum hætti og menn drekka bræðraskál. Úr skyrtuháls- málinu dró hann langan, svartan dýrðlegan vindil og rétti Burney. „Heyrðu .... fáðu þér reyk með- an við biðum!“ Burney greip vindiiinn með áfergju og þeit af honum, svona hér um bil eins og grimmur hundur bitur rottu. Hann lagði hann að vörum sér eins og langþráða og heittelskaða unn- ustu. Þegar reykurinn birtist dró hann djúpt andann og burstirnar á grárauða yfirskeggiinu lögðust niður að vindlinum eins og vængir á erni. Hægt og hægt liurfu rauðu gárarnir úr hvítunni í augunum á honum. Hann beindi dreymandi augnaráð- inu að ásnum hinu megin við ána. Hvar var hann? í Paradis? Hann var að minnsta kosti ekki á jörð- inni. Mínúturnar komu og fóru. „Nú er mál að fara,“ sagði Tony. „Komdu, við skulum láta þennan bölvaðan Corrigan fara veg allrar veraldar." Burney vaknaði af draumi, urr- andi. Hann leit við og liorfði undr- andi á félaga sinn. Tók vindilinn hálfa leið út úr munninum, en stakk honum undir eins upp í sig aftur, smjattaði á honum og talaði út um annað munnvikið meðan liannn tott- aði vindilinn: „Hvað ertu að segja, bröndóttur heiðinginn? Ertu með launráð gegn manni, sem telst til liins upplýsta og ráðandi kynflokks jarðarinnar? Reyndu að telja hann Martin Burney á að taka þátt í fúlmannlegu ráða- bruggi skitins dagós? Þú ert að hugsa um að drepa foringjann, sem gefur þér bæði mat og peninga! Þetta skaltu fá frá mér, samvisku- lausi launmorðingi!“ Og maðurinn sem ætlaði að skera á landfestarnar fékk ónotalegt spark og lirökk af steininum. Tony stóð upp og flýði. Hann hljóp eins og fætur toguðu fram hjá skipinu, þorði ekki að hægja á sér — þorði ekki einu sinni að'líta við. Burney þandi út bringuna og liorfði á samsærismann sinn hverfa. Svo stóð hann upp og ranglaði af stað .... i áttina til Bronx. Hann gekk i skýi af eitruðum, kæfandi reyk, sem fæhði hjarta hans frið og sælu og rak fugla og flugur af veg- inum og lengst inn í skógarþykknið. VILJA EKKI GIFTAST. Umsetnustu piparsveinarnir i New York hafa stofnað félagsskap til þess að verjast áleitni kvenna, sem vilja ná i þá. Hafa þeir samið „svartan lista“ yfir kvenfólk, sem einkum þarf að vara sig á. Líka hafa þeir samið „öruggan lista“ yfir kven- fólk, sem óhætt er að bjóða lieim og umgangast án þess að eiga á hættu að þær verði of áleitnar. Formaður félagsins er ríkur pipar- sveinn sem heitir Jack Blatt. „Við erum alls ekki neinir kvenhatarar," segir hann. „En við viljum ráða því sjálfir hverri við giftumst og hve- nær. En í New York er sægur af kvenfólki, sem er alltaf reiðubúið til að giftast og tekur öllu sem að kjafti kemur.“ STJÖRNULESTUR Eftir Jón Árnason, prentara. Sólmyrkvi 25. febr. 1952. ALÞ JÓÐA YFIRLIT. Sagt er að afleiðing þessa sól- myrkva sé að ár þorni upp og sjáv- arstrendur verði hættulegar umferð- ar. — Maður, sem hefir á hendi stjórn sjúkrahúsa, betrunarhúsa, vinnuhæla og góðgerðastofnana mun deyja. myrkvinn sterkur um mitt Atlantsliaf og er þar i austursjón- deildarhring. Mars í Sporðdreka er mjög sterk jarðskjálftaafstaða eða goss. Mætti búast við að áhrif þessi gerðu vart við sig fyrir vestan Tokyó eða á þeirri lengdarlinu. Lundúnir. — Sólmyrkvinn i 11. liúsi. — Þingvinna og þingmál munu mjög á dagskrá og veitt almenn at- hygli. Koma hér margs konar áhrif til greina. Óvænt snurða i utanrikis- málum, en annars eru áhrifin i mörgum greinum fremur góð. -— Júpiter í 1. húsi hefir slæmar af- stöður. Athugaverð afstaða meðal almennings. Á hún rót sína í utan- ríkismálum og meðferð þeirra og samgöngumálum. ■— Venus í 10. húsi. Sæmileg afstaða stjórnarinnar, en eigi þróttmikil. — Neptún í 7. húsi. Utanríkismálin undir m>' g at- hugaverðum og óvæntum ai^töðum sem gætu orðið afdrifarikar. — Úran í 3. liúsi. Sprenging gæti átt sér stað í flutningatæki eða í flugvél. Berlín. — Sólmyrkvinn i 11. liúsi. Þingmál undir mjög náinni athug- un og þeim veitt eftirtekt. Ætti heill að vera með framgangi þeirra. -— Venus í 10. húsi. Giftingar meðal háttsettra manna og opinber hátíða- höld. — Mars, Satúrn og Neptún í 6. húsi. Barátta, urgur og tafir með- al vinnandi lýðs og heilsufarið mjög slæmt. — Úran i 3. húsi. Slæm af- staða fyrir samgöngur og sprenging gæti átt sér stað i samgöngutæki. — Júpíter í 12. húsi. Slæm afstaða í sjúkrahúsmálum og góðgerðastarf- semi. Útgjöld aukast. Moskóva. —- Sólmyrkvinn í 10. húsi. Allt sem stendur i sambandi við ráðstjórnina og gerðir hennar mun veitt mjög mikil eftirtekt. — Júpiter í 11. húsi. Slæm afstaða fyr- ir störf æðsta ráðsins og trúarlegar deilur gætu komið til greina. •— Úr- an i 1. húsi. Hætt er við undangrefti og leynilegum áróðri meðal almenn- ings. ■— Satúrn ræður 5. húsi. Slæm afstaða fyrir leikhús og leiklistar- störf og tafir gætu átt sér stað í lramkvæmdum i þeim greinum. — Venus i 9. lnisi. Utanlandssiglingar ættu að gefa góðan arð og viðskipti góð. Tokyó. — Sólmyrkvinn er í 6. húsi. Verkamenn og málefni þeirra munu mjög á dagskrá og vcitt at- hygli. ■— Ættu áhrif þessi að vera að ýmsu leyti góð og vinnandi lýð hagstæð. — Satúrn í 2. húsi. Þetta er slæm afstaða til fjárhagsmála, tekjur minnka og verðbréfa- og pen- ingaverslun dregst saman. Neptún hefir mjög óábyggileg áhrif á með- ferð þessara mála. — Mars i 3. húsi. Hefir slæm álirif á flutninga, sér- staklega járnbrautarstarfsemi og rekstur þeirra, og eldur gæti komið upp í flutningatæki og valdið tjóni. Óánægja meðal járnbrautarstarfs- manna. Úran í 11. húsi. Slæm á- hrif á gang þingmála og meðferð þeirra og óþægileg atvik gætu átt sér stað gagnvart stjórninni og að- stæðum hennar. Washinyton. — Sólmyrkvinn er i 2. liúsi. Fjárhagsmálin eru mjög á dagskrá og veitt mikil athygli. Ættu þau að vera undir sæmilegum áhrif- um og tekjur aukast. —. Venus í 1. húsi. Bendir á friðsælt tímabil meðal almennings og framtak i þágu kven- þjóðarinnar. Satúrn og Neptún i 9. húsi. Tafir og örðugleikar i utan- landssiglingum, slys, dauðdagar og verkföll. Ágreiningur milli trúar- legra leiðtoga. Mars í 10. liúsi. Stjórnin á i örðugleikum ýmsum og gæti átt við verulega styrjaldarhættu að etja. — Júpíter í 3. húsi. Hefir slæmar afstöður og er því hætt við auknum kostnaði við flutningakerf- ið og kemur það frá auknum kröf- um verkamanna í ýmsum greinum. — Úran í 6. húsi. Slæm afstaða fyr- ir verkamenn og þjóna, undirróður og æsingar geta átt sér stað. ÍSLAND. 12. hns. —■ Nýja tunglið er í húsi þessu. — Betrunarhús og vinnuhæli, sjúlu-ahús og góðgerðastarfsemi veitt yfirgnæfandi athygli og lagfæring- ar gætu át sér stað i þessum grein- um. 1. hús. — Júpiter i húsi þessu. — Hefir slæmar afstöður sem benda á örðugleika vegna viðskipta við önnur ríki og er afstaða þessi veru- lega sterk og áberandi, einnig örðug- leikar nokkrir í sambandi við leik- hús og skemmtanalíf og því líka starfsemi. 2. hús. — Merluir ræður húsi þessu. — Fjárhagsmálin, bankastarf- semi og aðstaða þess opinbera und- ir breýtilegum áhrifum og lagfær- ingar gætu ef til vill átt sér stað og umræður um slik mál í aðsigi. 3. hús. — Merkúr ræður hýsi þessu. — Samgöngur og fréttaflutn- ingur undir breytilegum áhrifum og umræður gætu átt sér stað um bók- menntir og barnafræðslu. 4. hús. — Tungl ræður húsi þessu. — Æ tti að vera sæmileg af- staða fyrir bændur, en mun ef til vill benda á breytilegt veðurfar. 5. hús. Úran er i húsi þessu. •— Sprenging gæti átt sér stað í leik- húsi eða skemmtistað. Óvænt atvik gætu komið til greina i þeim grein- um. 6. hús. — Plútó er í húsi þessu. Misgerðir gætu komið i Ijós í sam- bandi við málefnameðferð verka- manna sem nú eru hulin almenn- ingi og hjartasjúkleikar áberandi. 7. hús. — Satúrn í húsi þessu. — Þetta er mjög örðug afstaða íil utan- rikisviðskipta og mála. Langvarandi tafir og örðugleikar koma í Ijós i meðferð utanrikismála. 8. hús. — Júpiter ræður húsi þessu. — Bendir á dánardægur kunns fjármálamanns eða banka- stióra. 9. hús. — Júpíter ræður húsi þessu. — Bendir á ágreining i trúar- legum málefnum og mjög aukin út- gjöld i utanlandsviðskiptum og op- inberum rekstri. 10. hús. — Satúrn ræður Iiúsi Þessu. — Stjórnin á í miklum örð- ugleikum og tafir og takmarkanir verða mjög á vegi hennar og koma áhrif þessi úr ýmsum áttum: Frá al- mcnningi og afstöðu hans, frá — Öll undanbrögð eru gild. .... má ég trufla skipstjórann rétt sem snöggvast. — Hvers vegna eruð þér á miðri c.kbrautinni. Gangstéttin er þarnal —• Fyrirgefið þér — en ég er á reiðhjóli. — Þú þarft ekki að flýta þér mín vegna. skemmtanalífi og skemmtanastarf- semi og óvæntar misgerðir birtast frá utanríkisviðfangsefnum. 11. hús. — Satúrn ræður húsi þcssu. — Tafir á framkvæmd þing- mála og ákvæðum þingsins. Stjórn- in má hafa gætur á sér, ef vel á að fara. Ritað 24. febr. 1952.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.