Fálkinn - 07.03.1952, Page 10
10
FÁLKINN
1111» ÞÉR . . .?
að mótorinn í jet-flugvél er
fljótari a ðeyða eldsneyti en
vélarnar í stóru herskipi?
Þegar jetmótorinn i svona flugvél
gengur með fullum hraða dælir hann
í sig eldsneyti, sem svarar til 25,500
litrum á klukkustund.
að þegar borgarhluti brennur
verður lofteyðslafi svo mikil,
að súgurinn af brunanum verð
ur að stormi í nágrannahverf-
unnm?
Þegar bruninn mikli varð í Ham-
borg 1943 eftir eina loftárásina varð
13 ferkm. svæði í borginni alelda
á svipsundu. Reykurinn komst upp
i 7 km. hæð og vindhraðinn að eld-
inum varð um 200 km. á klukku-
stund (tvöfalt meiri en venjulegt
fárviðri). 35,000 manns missti lífið í
þessum eldsvoða.
að komi maður á Kappakst-
ursbíl með 325 km. hraða að
brekku eins og sýnd er á teikningunni,
gæti bíllinn hoppað yfir liæst hús í
heimi, Empire State Building, sem er
yfir 300 metra há.
FLORENCE NIGHTINGALE
Framhaldssaga.
6. Florence varð einstaklega lag-
leg er hún óx upp. Hún var há og
grönn. Hárið var jarpt og þétt en
fremur stutt. Hún hafði hátt enni
og gráblá augu. Augun voru einkar
gáfuleg en gátu líka verið glaðleg
og glensfull. Hún átti yndislegt bros,
og þegar hún hló þá slcein i hvitar
og fallegar tennur.
Systurnar tvær komu á margar
skemmtanir og dansleiki, bæði úti í
sveitinni, á stórbýlunum og við hirð
ina i London. Þeir voru margir
ungu mennirnir, scm vildu giftast
Florence, en hún var ekki á þvi.
Hana langaði aðeins til eins: hún
vildi verða hjúkrunarkona.
7. Foreldrum hennar þótti það
mjög miður þegar hún sagði þeim
að hún ætlaði að verða hjúkrunar-
kona. í þá daga þótti það heldur
auvirðileg atvinna. Flestar hjúkr-
unarkonur höfðu lítið eða ekkert
lært í hjúkrun, og margar voru drykk
felldar svo að hjúkrun þeirra var af-
ar bágborin. — Foreldrarnir hugg-
uðu sig við að Florence mundi bráð-
lega snúast hugur. En það varð ekki.
Því að þetta var engin dægurfluga
lijá henni. Henni fannst það vera
köllun sin! Hún þóttist viss um að
guð hefði ætlað henni þetta starf:
að hjúkra þeim sem lijúkrunar þurfa.
8. í fyrstu hjúkraði Florence að-
eins sjúklingum á heimilunum í land-
areign föður síns. Hún kynntist neyð
og eymd af eigin sjón, en alls
staðar kom liún með huggun og
hjálp inn í hreysi fátæklinganna.
Sjúklingarnir gleymdu þjáningum
sínum þegar hún sat við rúmið
þeirra og las hátt eða söng fyrir þá.
Florence lijálpaði lika prestinum.
Hún hafði biblíutíma fyrir fólkið í
sókninni og hélt sunnudagaskóla
fyrir ungar stúlkur úr verksmiðju-
bæ, sem var þarna skammt frá.
Hún reyndi að gleðja þær með söng
og hljóðfæraslætti, því að henni
fannst þeim ekki veita af tilbreyt-
ingu frá störfunum i verksmiðjun-
um. — Hún varð góðvinur skóla-
barnanna, lieimsótti þau í skólann
og bauð þeim í „Lea Hurst“.
9. Florence hafði gaman af að
halda skemmtanir fyrir aðra, en þeg-
ar liún átti að fara á dansleik eða
í samkvæmi sjálf þráði hún alltaf
mest að komast heim til vinnu
sinnar aftur. Hún gat alls ekki skil-
ið, að fólk gæti skemmt sér og ver-
ið kátt, þegar svo margt fólk átti
bágt i fátækrahúsum, fangelsum og
sjúkrahúsum og þurfti hjálpar við.
Foreldrar hennar reyndu þrásinn-
is að fá liana til að lifa sams konar
lífi og ungar stúlkur af hennar ætt
gerðu. Tvisvar sendu þau hana í
fcrðalag til útlanda. Fyrst var hún
nokkur ár í Róm, með lijónum, sem
voru vinir fjölskyldunnar. Síðan fór
hún til Egyptalands og Grikklands
og til Þýskalands líka.
10. í bænum Kaiserwerth í Þýska-
landi kom hún á hjúkrunarstofnun,
þar sem allt var fullkomnara en hún
hafði séð i Englandi. Hjúkrunar-
konurnar voru nunnur, frómar kon-
ur, sem unnu guðsþakkarverlc með
því að hjúkra sjúklingum. Þær
fengu ekkert kaup fyrir vinnu sina,
heldur aðeins fæði, húsnæði og
fatnað. Á hverju ári fengu þær tvo
nýja bómullarkjóla og tvær svuntur
og fimmta livert ár fengu þær bláan
ullarkjól og svarta svuntu.
Áður en þær byrjuðu störfin lærðu
þær algeng innanhússtörf. Þær
lærðu að elda mat, þvo og strauja,
til þess að geta hjálpað til á fátækl-
ingaheimilum, sem þær heimsóttu.
— Gerið þér svo vel — viljið þér
kvitta hérnal
— Þér verðið að afsaka hve seint
við komum. — Við ætluðum að
koma miklu fyrr, en konan mín
fór ekki a.ð búa sig fyrr en i gær.
— Ef þú vilt endilega lesa ævin-
tijri fyrir mig þá verðurðu að flýta
þér að Ijúka við það, því að bráð-
urn hyrjar glæpaleikritið í útvarp-
inn!
Þegar náltúran verður náminn
rikari.