Fálkinn - 04.04.1952, Side 4
4
FÁLKINN
Rannsóknir
á tvíburum
f Birmingham-háskóla hefir hópur
vísindamanna starfað að rannsókn
tvíbura síðustu þrjú árin, með aSstoð
fimmtán hundruS tvíburasystkina víSs
vegar aS, til þess aS komast aS hvort
ýmsir sjúkdómar gangi í ættir. En
fyrst og fremst hafa þeir orSiS aS
rannsaka allt sem snertir tvíbura sér-
staklega og hafa þegar komist aS niS-
urstöSum, sem ekki voru kunnar áSur.
Til dæmis:
Ef barnshafandi kona innan viS
þrítugt fæðir tvíbura, svein og mey,
getur hún oftast gengið að því vísu
að strákurinn fæðist fyrr.
En þessi regla gildir ekki ef móðir-
in er komin yfir þrítugt. Þá fæðist
tctpan alveg eins oft á undan. Það er
lika staðreynd að þegar tvíburarnir
eru báðir strákar eða báðir stelpur,
gengur fæðingin fljótar, en þegar sitt
barnið er af hvoru kyni. Þegar svo er,
líða oft margir klukkutimar, stundum
dagar, milli fyrra barnsins og þess
síðara.
Frétt frá Louisiana hermdi fyrir
nokkru að kona þar eignaðist barn
þrjá daga í röð. ÞriSjudag fæddist
strákur, miðvikudag stelpa og fimmtu-
dag önnur stelpa til.
Arfgengi. — En hvað koma tviburar
arfgenginu við? Öll sú rannsókn
byggist á einni einfaldri staðreynd:
Tvenns konar tvíburar eru til.
Eineggja tviburar verða tilá þann
hátt, að eitt frjóvgað egg skiptist í
tvennt skönnnu eftir að það fer aS
þroskast. Þannig verða tvö börn úr
einu eggi. Þau eru alltaf af sama kyni,
oftast nær mjög lik, og það sem meira
er: þau hafa alveg sama arfgengi.
Þau eru eigi aðeins hérumbil alveg
eins á hæð og líkamsvöxt, sama augna-
lit, sömu eyrnalögun — jafnvel fingra-
förin eru svipuð. Og andlegt atgerfi
beggja er. mjög svipað. ÞaS getur kom-
ið fyrir að eineggja tviburar hafa svar
að fyrirspurnaeyðublöðum alveg eins.
Og þau hafa erft sömu eiginleika að
þvi er snertir sjúkdóma og heilsu, svo
að ævi þeirra verður oft mjög svipuð.
Ef annar tvíburinn fær ákveðinn
arfgengan sjúkdóm þá er það jafn ör-
ugt að hinn fær hann líka, og að báðir
hafa sama augnalit.
En ekkert af þessu gildir um hina
tviburategundina, þá sem kallaðir eru
tvieggja. — Þeir eru vaxnir upp af
tveimur eggjum, sem hafa frjóvgast
samtímis. Tvíeggja tvíburar geta
verið hvor af sínu kyni og eru venju-
lega ekki líkari en systkin yfirleitt
eru. Og arfgengi þeirra er ekki eins.
Setjum nú svo að tveir eineggja
tvíburar fengju magasár, en aðeins
annar af tvíeggja tviburunum. —
Þetta væri bending um, að magasár
gangi í ættir.
Hugsum okkum ennfremur að 50 af
200 eineggja tvíburasystkinum fengi
magasár, en aðeins einir- tvíburar af
100 tveggja eggja. Þetta væru mjög
sterk rök fyrir því að magasárið
gengi í ættir.
Nú kemur vitanlega ýmislegt annað
til greina, léleg fæða, mildar reyking-
ar eða áfengisnotkun, geðshræringar
o. s. frv. ÞaS má ekki ganga fram hjá
því, að eineggja tvíburar, sem alast
upp við sömu kjör og hafa sömu venj-
Ganga völd STALINS i erföir?
ur, gætu báðir tveir hafa fengið maga-
sárið af þessari ástæðu.
Umhverfið. — Þess vegna verður að
gera samanburð við tvíeggja tví-
bura. Þeir alast Hka upp i sama um-
hverfi og við sömu kjör. Ef aðeins
annar þeirra fær magasár en alltaf
báðir tvíburarnir af hinni tegundinni,
þá bendir þetta til j>ess að þá sé ann
að en umhverfið, sem veldur magasár-
inu.
Hér kemur að merkilegri spurningu
í rannsóknunum. ViS þurfum að ganga
úr skugga um hvaða sjúkdómar það
eru, sem fyrst og fremst eru um-
hverfinu að kenna.
Ef t. d. eineggja tvíburi fær sjúk-
dóm, sem hinn tviburinn sleppur við,
má telja að þetta sé ekki erfS heldur
umhverfinu að kenna.
HvaSa konur eru Hklegastar til þess
að eignast tvíbura? ESa þribura, fjór-
bura eða fimmbura?
Konur á aldrinum 35—39 ára, sem
hafa eignast ótta börn áSur, eru lik-
legastar, næst konur á sama aldri,
sem hafa átt sjö, o. s. frv.
Þegar konan er orðin yfir 39 ára,
minnka horfurnar á þvi að hún eignist
fleirbura. Þessi niðurstaða liefir feng-
ist með því að rannsaka ætterni 3000
tvibura á aldrinum tveggja mánaða
til 83 ára.
Það hefir komið í ljós að tilhneig-
ingin til fleirburaeignar er eingöngu
móðurinnar megin. FaSirinn virðist
engu valda um þetta. Ef konan þin er
tvíeggja tvíburi, er ekkert ósennilegt
að hún eignist tvíeggja tvíbura. En þó
að faðirin sé tvíeggja tvíburi þá er
ekkert líkiegra að liann eignist sams
konar tvíbura en liver annar.
Hins vegar getur ]>essi arfur komið
fram hjá dóttur mannsins. Hún er Hk-
leg til þess að eignast tvibura eins og
lnin föðuramma liennar.
En eineggja tvíburafæðinaar eru
alls ekki arfgengar, hvorki frá föður
eða móður.
Fólk spyr stundum hve oft tvibura-,
þríbura og fjórburafæðingar komi
fyrir. Samkvæmt reglu, sem allir lif-
fræðingar þekkja (Hellins lögmálið)
eiga einir tviburar að fæðast á mót
hverjum 87 einburum, einir þriburar
fyrir hverja 87 tvíbura, og fjórburar
fyrir hverja 87 þribura. Rannsókn
hefir farið fram á þessu og sýnir að
ávalit er hlutfallslega fleira af tví-
burum en þriburum.
$Hæðuna til einseggja tvíbura telja
sumir þá, að eggið hætti að þroskast
skömmu eftir frjóvgunina. Eftir stutta
stund skiptist það í tvennt og síðan
fer hver helmingur að þroskast á ný,
og börnin verða tvö í staðinn fyrir
eitt.
Stundum kemur þessi stöðvun í þró-
uninni ekki fyrr en seint — of seint
til þess að tvíburarnir geti fullþrosk-
ast sem sjálfstæðir einstaklingar. Þá
verða samvaxnir tviburar úr egginu.
Sama gerist við þríbura- eða yfir-
leitt við fleirburafæðingar. ÞaS er
möguleiki á að sex börn verði til úr
einu eggi. Eg þekki ekki áreiðanlegar
skýrslur um fleiri. Stundum fréttist
að sjö eða átta börn hafi fæðst sam-
tímis, en oftast koma þær fréttir úr
svo fjarlægum stöðum, að ekki er hægt
aS ganga úr skugga um hvort þær séu
sannar.
Rannskónir hafa leitt í ljós að það
er alveg rangt sem ýmsir halda, að
stúlka sem fæðist tvíburi með svein-
barni sé oft ófrjó. Þetta kemur fyrir
lijá kúm en ekki fólki.
Engin hefir getað gefið skýringu
á því hvers vegna svo fáir tvíburar
verða frægir menn. AS þvi er mér er
Vasilij Stalin flngforingi tal-
inn líklegastur til aö verða
eftirmaöur fööur síns.
T mörg ár hafa stjórnmálablaða-
menn vesturveldanna verið að
glíma við að svara spurningunni
um hver verða muni eftirmaður
Stalins og voldugasti maður í Rúss-
landi þegar Josef Stalin fellur frá.
Oftast nær hafa spárnar verið byggð-
ar á því, hve mikil álirif viðkom-
andi menn hafi i opinbcru lífi sovjet
samveldisþjóðanna, eða hve mikið
álit Stalin sjálfur hefði á þeim.
Molotov og Malenkov hafa oft verið
nefndir sem líklegir og enda marg-
ir aðrir úr framkvæmdastjórn ráð-
stjórnarríkjanna. En fyrir skömmu
var farið aS tala um nýjan mögu-
leika: að Vasilij Josefovitsj Djukaasj-
vili-Stalin, flughershöfðingi og „hetja
sovjetsamveldisins“ yrði eftirmað-
ur föður síns.
Á vesturlöndum hafa menn yfir-
leitt lítið vitað um Vasilij Stalin.
En nú hafa tveir flugforingjar, sem
fyrir skömmu flýðu vestur fyrir
járntjaldið gefið ýmsar upplýsing-
ar um „hinn rauða zarsson", sem
hann cr stundum kallaður í Rúss-
landi. Þessir foringjar voru með
Vasilij á flugskólanum í Sevastopol
á sínum tíma.
Vasilij er fæddur 1922 og er son-
ur Stalins og annarrar konu hans
Nadesjda Allineva, sem var ritari
Stalins eftir októberbyltinguna. FaS-
ir hennar var bolsjeviki, sem eitt sinn
hafði bjargað lífi Stalins með þvi að
leyna honum þegar lögregla kcisar-
ans var að leita hann uppi.
VASILIJ ólst upp innan múranna í
Kreml og einu mcnnirnir sem liann
umgekkst voru liðsforingjar í lif-
verði föður hans og leynilögregl-
unni (GPU). Helsta tilbreyting lians
í bernsku var sú að liorfa á hinar
glæsilegu liersýningar á RauSatorgi.
Þar sá hann fólkið hylla „sinn elsk-
aða leiðtoga“ — Stalin. Hann skildi
fæst af því sem fram fór, en vissi að
faðir hans var voldugur maður og
að skylda hans var að gefa fyrirskip-
anir, sem allir urðu að hlýða.
Hinn 6. nóv. 1932 lifði Vasilij
hræðilega nótt i Kreml. Moskva var
skreytt þúsundum af flöggum, allt
var búið undir að lialda hátið-
legt Í5 ára afmæli byltingarinnar.
En þessa nótt varð ógurlegur árekst-
ur milli Stalins og konunnar lians.
Nadesjda Allineva setti sig á rnóti
þvi að hinni fyrirheitnu náðun
stjórnmálafanga, sem frestað hafði
verið einu sinni, yrði skotið á
frest aftur. Við þetta tækifæri kvað
kunnugt um hefir það ekki komið fyr-
ir nema tvisvar til þrisvar sinnum.
Þetta er gáfnafarinu alveg óviðkom-
andi, því að enginn munur er á því og
hjá einburum.
Ef til vill HSa tvö til þrjú ár þangað
til þessum rannsóknum er lokið, en
tvímælalaust verða þær læknavísind-
unum að miklu gagni. Ef takast á
að fyrirbyggja eða lækna sjúkdóm,
skiptir það afar miklu máli að þekkja
öll atriðin, sem sjúkdómnum kunna
að valda.
Stalin hafa barið konu sína. Um
morguninn fannst hún dauð á gólf-
inu. Stalin var inni i sömu stofu
og skammbyssa lá á gólfinu. Stalin
vottaði að konan liefði framið sjálfs-
morð.
ENGINN veit með vissu livað gerð-
ist i Kreml þessa nótt. Nema Vas-
ilij, þvi að liann var viðstddur ....
Eftir dauða móður sinnar var hann
eins og vængbrotinn æður. Hann
var fremur lélegur til náms i skól-
anum og hafði ekki áhuga á
neinu nema knattspyrnu. Þegar
hann var 18 ára tók hann próf í
Kremlskólanum „fyrir syni æðri
starfsmanna“ og nú fór liann að
fá áhuga ú flugi.
FaSir hans sendi hann á flug-
skólann í Sevastopol. Þar var farið
með liann scm son síns volduga
föður. Hann mataðist ekki i borS-
salnum með hinuffi nemendunum;
bjó i sérherbergi og hafði nokkra
þjóna og hafði einkaflugvél til æf-
inga. Lauk hann námi árið 1941.
— Þá var Sovjetsamveldið komið
i stríð við Þýskaland. Félagar Vasi-
ilji frá Sevastopol tóku þátt i loftorr-
ustnum yfir Moskva, en Vasilii
ekki, og hafði hann þó verið gerð-
ur að ofursta árið eftir að hann
fór úr skólanum. Það var ekkert
lcyndarmál að Vasilij lifði gleðilífi
einmitt þegar verst horfði fyrir
Rússum.
En árið 1942 tók hann svo til
starfa, því að Stalin mun ekki hafa
viljað láta athafnaleysi sonar síns
baka sér óvinsældir.
Nú var farið að nefna nafn Vasilij
í dagskipun og hann lilaut hæstu
nafnbætur fyrir hreysti. En svo
hvarf hann aftur úr opinberu lífi
og var ekki nefndur fyrr en 1944,
að hann er talinn „ágætur afreks-
maður í hcrnaði“ í tilkynningu frá
föður lians. Síðan fékk hann Suvor-
ov-orðuna og var skipaður yfirmað-
ur 1G. flugdeildarinnar. Hann sett-
ist að við Dallgov-flugvöll og fékk
þar hús með 30 herhergjum og bjó
með Lelju, dóttur Timosjeskos
marskálks.
1 mars 1940 var Vasilij skipaður
„brigader-general“ og nú leyfði
Stalin blöðunum i fyrsta sinn að
birta mynd af Vasilij. Þar mátti sjá
gamla sovjet-hershöfðingja standa
bísperta með höndina upp að húf-
unni til að sýna virðingu Vasilji
Stalin, sem var aðeins 24 ára.
Myndin vakti óánægju hjá fólki
og skömmu síðar lækkaði Stalin
son sinn í tigninni, líklega til að
sýna lýðnum réttlætiskennd sína.
Vasilij varS ofursti aftur. Ástæðan
var talin sú að hann hefði barið
flugmann með keyri.
Þessi ráðstöfun Stalins bar til-
ætlaðan árangur, og nú efaðist eng-
inn um „hið fullkomna réttlæti“
valdhafans. En Vasilij var ekki lengi
í ónáðinni. Skömniu síðar var hann
skipaður hershöfðingi á ný og i dag
er hann yfirmaður flugsetuliðsins
i Moskva.
Rússneskir flóltamenn segja margt
af göllum Vasilij og viljaþrekleysi.
En samt halda þeir margir, að liann
sé líklegur til að taka við af föður
sinum. Nafnið eitt er mikils virði.