Fálkinn


Fálkinn - 05.06.1953, Blaðsíða 13

Fálkinn - 05.06.1953, Blaðsíða 13
FÁLKINN 13 Hún hallaði höfðinu á honum upp að hnénu á sér og dró brennivínspela upp úr pilsvasa sinum. Don Juan opnaði augun og starði for- viða á hana og lagði þau svo aftur eins og syfjað barn. 'Hún þrýsti stútnum að bláum vörunum á honum, en þegar hann fann brennivínsbragðið hristi hann höfuðið og beit saman tönnunum. —Hefir herra Webster ley-ft þetta? hvíslaði hann. — Eg gaf honum drengskaparorð um .... að drekka .... ekki .... nema 'hann .... leyfði það .... Hann var .... svo góður .... Kjálkarnir löfðu máttlausir og höfuðið rann niður af hnénu á Mömmu Jenks. En áður en don Juan gaf upp öndina 'hafði hann sýnt trú- mennsku sína við húsbóndann. Hann hafði haldið loforðið sitt. Mamma Jenks brölti á fætur og nú fyrst sá’hún að Dolores var að reisa upp manninn, sem don Juan hafði legið ofan á. Jenks hjálp- aði henni því að hún sá að þetta var hvítur maður líka. Hún þurrkaði af andlitinu á hon- um með vasaklútnum sínum .... og þekkti hann aftur. Og Dolores þekkti hann lika! —Ó, kalífi, veslings, góði pilturinn minn! Hún grét. Hún gat komið handleggnum undir höfuðið á thonum og reisti hann upp þannig að hann sat. Og Dolores dró 'höfuð hans inn að sér, lagði kinn við kinn og hvíslaði viðkvæm ástar- orð í eyra 'honum. Hún grátbændi hann um að opna augun, um að segja að hann væri lifandi. Hún tók ekki eftir neinu sem gerðist kring- um hana fyrr en sterkar 'hendur tóku 'hann frá henni. Hann var lagður á sjúkrabörur, sem höfðu verið gerðar úr fjórum rifflum og hún elti inn um hallahhliðið, en þar var hann lagður undir pálma í garðinum. Hár ungur maður, íturvaxinn kom og leit á hann. Það komu tár í augu hans þegar hann laut niður að Webster og klappaði honum á kinnina. — Vinur minn, sagði hann. — Göfugi, eðal- lyndi vinur, John Webster! Þú gerðir mér kleift að hitta þig hérna í kvöld — og svo þurftu samfundir okkar að verða svona. MEÐAN don Riohardo stóð þarna yfir • Webster meðvitundarlausum, höfðu nokkrir af mönnum hans riðið upp að sjúkra- húsinu til að sækja sjúkrabörur. Webster og don Juan voru lagðir á þær og bornir upp í hinn skrautlega móttökusal í höliinni, en þar hafði Sarros Ihaldið dýrðlega veislu fyrir höfð- ingjana í Buenaventura kvöldið áður. Mömmu Jenks hafði tekist að róa Dolores ofurlítið. Þær eltu báðar sjúkrabörurnar en í salardyr- unum stöðvaði varðmaður þær. — Sá rauðhærði er dáinn, sagði varðmað- urinn. — Ef þið viljið fá líkið þá er það víst FELUMYND Hvar er eigandi bátsins? hægt. Það liggur þarna, sagði hann og benti á þær börurnar, sem höfðu verið settar út við vegginn. —En hvað er um hinn manninn? spurði Mamma JenkS. — Hann er ekki almennilega dauður enn- þá, en hann á víst ekki langt eftir. Læknarn- ir eru að eiga við hann. Eruð þið kunningjar hans, kannske? Dolores kinkaði kolli. — Því miður má ég ekki hleypa yður inn, ungfrú, sagði vörðurinn, kurteislega. — Hers'höfðinginn hefir bannað að nokkrum manni sé hleypt inn hingað fyrr en læknarnir hafa lokið skoðuninni. Þið getið beðið hérna í hliðarstofunni, og svo skal ég gera ykkur orð undir eins og hægt er. Don Richardo stóð eins og milli heims og helju við skurðborðið sem Webster hafði ver- ið lagður á, en doktor Pacheco og sobrantina- læknir voru að klippa fötin af særða mann- inum. —Hann dregur að minnsta kosti andann, sagði don Richardo. — Er nokkur von? Doktor Pacheco yppti öxlum. — Eg er hræddur um að hún sé lítil. Byssus'tingssárið til vinstri hefir að vísu ekki snert hjartað, en hlýtur að hafa farið gegnum lungað. — En það virðist ekki 'hafa blætt mikið úr sárinu? —Blæðingin er innvortis. Og jafnvel þó að ekki sé bein hætta að blóðsöfnun í lunganu í svipinn, þá lifir hann þetta naumast af, jafn máttfai’inn og hann er. Ha . . . . er byssusting- urinn brotinn í sárinu? Hér er stál .... en það er ekki byssustingur! Það er skammbyssa! Hann bretti jakkanum frá og fann leður- reim um brjóstið, með hylki undir vinstri handlegg. Læknirinn skar á ólina og hélt leð- urhylkinu á lofti. I því var ein af skammbyss- um Websters. Don Richardo tók hylkið og sá lítið þrístrent gat á því. Hann tók skamm- byssuna úr. Á henni var löng rispa eftir hvass- an odd. Nú kom glampi í augun á doktor Pacheco. — Eg hefi gert mér óþarfar áhyggjur, hershcfðingi, sagði hann. — Vinur okkar hef- ir verið Iheppinn í allri óheppninni. — Hann er hundaheppinn, það er hann, Pacheco sæll! sagði don Richardo. Hann beygði sig niður að Webster og skoðaði byssustingssárið vinstra megin á brjóstinu. — Leðurhylkið og skammbyssan hafa dregið úr laginu, byssustingurinn hefir ekki farið gegn- um rifið en aðeins sært holdið. Doktor Pacheco kinkaði kolli. — Og önn- ur kúlan hefir aðeins snert öxlina á honum, en hin hefir farið gegnum höndina án þess að skemma 'hana tilfinnanlega. Stungan í mjöðmina er alvarlegasti áverkinn. Þeir klipptu öll fötin utan af Webster og rannsökuðu hann grandgæfilega. Á hnakk- anum Ihafði blætt allmikið úr sári og þar var líka stór kúla. Doktor Pacheco létti. — Hann er þá alls ekki alvarlega særður? spurði don Riehardo. —Eftir mánuð verður hann orðinn gall- hraustur, svaraði doktor Pacheco. — Líttu á brjóstið, hershöfðingi .... og á magann. Maðurinn er afar hraustbyggður. Það er höggið á hnakkanum, sem hefir rænt hann meðvitundinni, en ekki blóðmissirinn. Eins og til að sanna ummæli læknisins dró Webster andann djúpt í þessum svifum, bar höndina upp að andlitinu og hreyfði höfuðið hægt. I næstu tíu mínútur gaf hann ekki frek- ari lífsmerki frá sér. Læknirinn þvoði og sótthreinsaði sárin og batt um þau. Og nú sagði Webster á góðri ensku: — En hvað mér þótti vænt um að þér skylduð koma hingað, doktor. Eg meiddi mig svo skrambi illa. — Jack Webster, þér eruð fantur að vera að gera okkur lafhrædda, kallaði don Ric- hardo og þreif óiþyrmilega í hann. — Þér ætt- uð að vita hve hræddir við vorum um að þér væruð dauður! — Gleður mig að heyra að þér skulið bera svona mikla umhyggju fyrir mér, vinur minn, tautaði Webster. — En ég er svo þreyttur. Hver eruð 'þér annars? — Eg er Richardo. AOAMSON Adamson ferðast til Suðurhafseyja — í huganum.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.