Fálkinn


Fálkinn - 08.10.1954, Side 3

Fálkinn - 08.10.1954, Side 3
FÁLKIN N 3 ll’sti islenshi íluðfarMiiin Guðrún Guðbrandsdóttir sést hér við komuna til Reykjavíkur í fylgd með hjónunum frá Hrófá, sem hún hefir dvalist hjá. Njáll Símonarson afhenti henni blómvönd frá Flugfélagi íslands. Ljósmynd: Pétur Thomsen. GuSrún Guðbrandsdóttir frá Hrófá í Slrandasýslu mun vera elsti íslend- ingurinn, sem fer'ðast hefir með flug- vél. Ilún tók sér far með „Skýfaxa" Flugfélags íslands frá Hólmavík til Reykjavíkur hinn 1. október si'ðastlið- inn. Guðrún er 98 ára gömul og mjög ern. Hún flytst nú búferlum hingað suður með Þorgeiri Þorgeirssyni, bónda á Hrófá og fjölskyldu hans, en þar hefir liún verið til heimilis um langa hríð. Guðrún hefir aldrei kom- ið til Reykjavíkur áður, svo að þennan dag hefir margt nýstárlegt borið fyrir augu liennar. Forráðamenn Flugféiags íslands tóku á móti Guðrúnu við komuna til Reykjavíkur. Yar henni færður fagur blómvöndur og tilkynnt, að hún fengi ókeypis flugfar sem elsti íslendingur- inn, sem ferðast hefði með flugvél. Það má lika vafalaust fullyrða, að sjaklgæft sé, að jafn gamalt fóik taki sér ferð með flugvél, þótt meðal ann- arra þjóða sé, sem hafa skipulagt flug- samgöngur sínar vel. Skákmótið í Amsterdam Þegar íslenska skáksveitin kom til Kaupmannahafnar í flugvél Loftleiða á leið til Amsterdam, færði þriggja ára sonardóttir Elíasar Ó. Guðmundssonar for- manns skáksambandsins Friðriki Ólafssyni blómvönd. Fremstur er Friðrik Ólafsson, þá Guðmundur Arnlaugsson, Guðmundur Ágústsson, Guðmundur Pálmason, Guðmundur S. Guðmundsson og Ingi R. Jóhannsson. í septembermánuði biðu íslendingar að jafnaði með óþreyju eftir fréttum af skákmótinu i Amsterdam, þau sem flestir bestu skákmenn heímsins voru saman komnir. íslensku skákmenn- irnir stóðu sig þar með prýði. í und- ankeppninni urðu þeir þriðju í sínum riðli, fyrir neðan Rússa og Hollend- inga, en fyrir ofan Austurrikismenn, Finna og Grikki, og það tryggði þcim sæti í A-flokki aðalkeppninnar. Meðal þeirra 12 þjóða, sem kepptu Jóhannes Kjarval heldur málverkasýningu Það þykir jafnan mikill viðburður, er Jóhannes Kjarval heldur sýningu á verkum sínum. Síðastliðinn laugardag var opnuð sýning á málverkum eftir hann — flestum nýlegum — og hefir mikill fjöldi gesta komið til að skoða hana. Engin sérstök athöfn var við opnun sýningarinnar, og listamaðurinn sjálfur var þar ekki viðstaddur, en eigi að síður láta gestirnir sig ekki vanta. — Mynd- in hér að ofan er af Jóhannesi Kjarval. Indónesisk-indversk vinátta Forsætisráðherra Indónesíu, dr. Sastroamidjojo, fór nýlega í heimsókn til Nýju Delhi, höfuðborgar Indlands. — Á myndinni sést dr. Sastroamidjojo veifa til mannfjöldans, sem tók hjartanlega á móti honum á Palam flugvellinum. Við hlið hans sést Pandit Nehru, forsætisráðherra Indlands. í A-flokknum, voru flestar bestu skák- þjóðir heimsins, og meðal keppenda margir stórmeistarar. Það var því eng- in von til þess, að íslendingar kæm- ust langt i þeirri keppni, enda hrepptu þcir neðsta sætið, með nokkru færri vinninga en Svíar, Bretar og Búlgarir. Samt sem áður má árangur íslending- anna teljast mjög góður. Framhald á bls. 14.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.