Fálkinn


Fálkinn - 29.10.1954, Side 3

Fálkinn - 29.10.1954, Side 3
FÁLKINN' 3 Hdlfmr ildor nfmitlí shartgripa- verslinar Jéns Sigmundssonar Um þessar mundir eru liðin 50 ár frá því að Jón Sigmundsson lióf gull- og silfursmíði í Reykjavik, og hefir Skartgripaverslun Jóns Sigmundsson- ar gefið lit veglegt afmælisrit í því tilefni. Jón Sigmundsson. í ritinu cr skráð ævisaga Jóns Sig- mundssonar og saga fyrirtækisins, sem hánn lagði grundvöllinn að og starfar enn við góðan orðstír hér i Reykjavik. Auk þess er ritgerðin „íslenskt gull- smíði“, sem Björn Th. Björnsson hefir samið. Þá eru fjölmargar myndir af listmunum úr Þjóðminjasafni Islands og Nationalmuseum i Kaupmannahöfn. Allur frágangur ritsins er mjög vand- aður. Jón Sigmundsson var af breiðfirsk- um ættum sonur Sigmundar bónda Grímssonar að Skarfsstöðum i Hvammssveit og Steinunnar Jónsdólt- ur konu hans. Hann fæddist 1. júli 1875. Ungur réðst hann til gullsmíða- náms á ísafirði og tók sveinspróf árið 1897. Þegar hann hóf starf sitt í Reykjavík 29. okt. 1904, voru sjö starf- andi gullsmiðir í bænum, sjö úrsmiðir og einn leturgrafari. Jón fékkst jafnt við gull- og silfursmíði sem úrviðgerðir. Fyrsti samastaður fyrirtækisins var í Grjótagötu 10. Síðar flutti hann starfsemina að Laufásvegi 8 og brátt kom hann á fót fullkominni skartgriþaverslun jafnhliða vinnustof- unni, og er hún rekin enn þann dag í dag, eins og bæjarbúar og aðrir lands- menn kannast við. Jón Sigmundsson kvæntist árið 1903 Ragnhildi Sigurðardóttur frá Neðra- nesi í Stafholtstungum. Áttu þau hjón- in fimm börn, 1 son og 4 dætur. Ritgerð Björns Th. Björnssonar. „íslensk gullsmíði", sem er um 50 bls. að lengd, er skipt í eftirtalda kafla: Heiðið skart, Ormur og dreki, Róm- anskir kaleikar og helgiskrín, Gotneskt kirkjusilfur, Víravirki og loftskorið verk. Síðan fylgir stutt ágrip á ensku. Ritgerðin er hin fróðlegasta í hvívetna. Myndirnar, sem ritið prýða, eru þrjátiu og tvær auk titilmyndar. Gunn- ar Rúnar Ólafsson gerði myndirnar af gripunum í Þjóðminjasafninu, en Niels Elswing, Ijósmyndari við Nationalmuseum í Kaupmannahöfn, gerði Ijósmyndirnar af gripunum þar. Kaleikur úr Svalbarðskirkju. Róm- anskur stíll. Frá því um 1200. Róm- anskir kaleikar, sem til eru, munu nálega allir vera íslenskir. Þórshamar úr silfri frá 10. öld. Jarðfundinn skammt frá Fossi í Hruna- mannahreppi. Fegurstu stúlkur i heimi Nýlega voru þessar þrjár stúlkur valdar sem þrjár fegurstu stúlkur í heimi í keppninni um titilinn „Miss World“. I miðið er „ungfrú heimur", cgypska stúlkan Antigone Constanda, til vinstri sú, sem hlaut annað sætið, anperíska stúlkan Karin Hultman, og til hægri gríska stúlkan Efi Mela, sem varð nr. 3. Penny Edwards leikkona í Holly- wood liefir tilkynnt að liún sé hætt Brúðarkóróna úr gylltu að leika en ætli framvegis að fórna silfri. Á spöngina er grafið: sér fyrir trúmálin eingöngu og „starfa Halldóra Sigurðardóttir á fyrir drottin“. Hún segist hafa mig. Hún var dóttir Sig- stundað Biblíulestur í heilt ár og muni urðar Jónssonar, sýslu- starfa í Sjöundadags-Adventistasöfn- manns á Reynistað og gift- iðinum ásamt manni sínum, Ralph ist Þorbergi Hrólfssyni, Winters, sem er forstjóri sjónvarps- sýslumanni haustið 1603. stöðvar.

x

Fálkinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.