Fálkinn - 24.05.1957, Blaðsíða 11
FÁLKINN
11
LITLA SAGAN
Blóm handa konum
GRIMETTI, prófessor í heimspeki,
liinn frægi sálfræðingur og kven-
þekkjari er kunnur og virtur langt
út fyrir sín eigin landamæri.
„Kvennabókin“ íhans hefir gefið
kvenkyninu gífurlegar birgðir af
vopnum í baráttunni um manninn.
Kvenfólkið tignar hann líka vegna
þess að hann hefir kennt þeim her-
brögð til að beita gegn ýmiss konar
karlmannategundum.
Sumar konur brostu að Grimetti
fyrst í stað, en þegar þær höfðu lesið
bókina lians sögðu þær með aðdáun:
Ó, þessi Grimetti! Honum getur mað-
ur sannarlega lært margt af.
Það væri ekkert gaman að þvi að
segja sögur af Grimetti, jafnvel þótt
stuttur væri, ef ekki stæði svo ein-
kennilega og ótrúlega á, að 'hinn
frægi kvenþekkjari kærir sig ekkert
um kvenfóllc.
Yinir hans, fyrrverandi kvenhatarar,
sem — svo var bók hans fyrir að
þa'kka — aliir höfðu lent i hjúskap-
arflækjunni, viidu hefna sín á pró-
fessornum fyrir þetta. Þeir gáfu ýms-
um fríðum konum „Kvennabókina"
og skoruðu á þær að veiða hinn ríka,
stæðilega piparsvein Grimetti, sem
enn var á besta aldri. En það reyndist
árangurslaust. Jafnvel konur, sem
voru vanar því að sigra karlmenn —
safna aðdáendum eins og haustvind-
arnir safna þurru laufi — gátu ekki
komið Grimetti til. Svo að það varð
orðtak að ekki dygði minna en Kleó-
patra, Pompadour eða Venus til þess
að sigra Grimetti.
Það fór svo langt að útbreitt mánu-
dagsblað, sem var alræmt fyrir
frekjuleg skrif, fór að skopast að
kvenfólkinu og sagði að það væri of
daufgert og skaplítið til þess að hrífa
hinn mikla Grimetti. Um leið var
efnt til samkeppni og heitið háum
verðlaunum hverri þeirri, sem gæti
töfrað prófessorinn. „En það kemur
sennilega aldrei til þess að þessi
verðlaun verði greidd, þvi að ...“
Ung, lagleg stúlka, sem lengi hafði
litið 'hýru auga til Grimetti i laumi,
las þessar linur og varð gröm. Hún
var orðin leið á þessum sifelldu
áfellisdómum um kvenfólkið — að
það væri að manga til við Grimetti,
en árangurslaust. Hún náði sér i hók-
ina, las hana lengi og vandlega og
velti henni fyrir sér á löngum and-
vökunóttum, uns hún komst að niður-
stöðu.
Hún gat hagað svo til, að hún fengi
að kynnast prófessornuin. Hann
brosti vinsamlega og vorkennandi.
En stúlkan lét ekki rugla sig í rím-
inu. Þau fóru að skattyrðast og rif-
ast, og prófessorinn hafði ekki nema
gaman af því, af því unga stúlkan
leit aldrei bliðlega til hans.
Þau hittust 'hvað eftir annað, þau
skömmuðust og rifust, og Grimetti
fékk samúð með stúlkunni.
Eftir viku fór Grimetti að verða
órótt. Honum fannst liann vera orð-
inn eitthvað óviss gagnvart henni.
Og eftir aðra viku til var hann sigr-
aður. Hann bað stúlkuna um að
kyssa sig. í stuttu máli, Grimetti var
ástfanginn upp yfir eyru .. .
Eftir að þau voru gift spurði einn
★ Tískum^ndir ★
------------------i
Svartur flauelskjóll með stífuðum
kraga og líningum. Chanel he'fir haft
hann í tvennu lagi, bol og pils, svo
hægt væri að nota hvort fyrir sig.
Undirpilsið er stíft.
Alveg hissa.
Jahoda heitir prófessor einn við
háskólann i Ghana í Afríku. Hann
hefir lagt ýmsar spurningar fyr-
ir svertingja, til þess að komast
að hvaða álit Iþeir hafa á hvítum
mönnum. Einn negrahöfðinginn svar-
aði þannig: „Hvítir menn tilbiðja
kvenfólkið. Það eitt ætti að vera næg
sönnun fyrir því að þeir eru naut-
heimskir.“
—O—
Þegar Erroll Flynn dvaldi í London
i fyrra varð hann fyrir leiðinlegu
óhappi. Um miðja nótt hringdi sim-
af vinum Grimettis ungu frúna i
laumi hvernig hún hefði farið að þvi
að sigra hinn staðfasta kvenhatara,
Grimetti.
Hún brosti og sagði:
— Það var eiginlega ofur auðvelt!
Ég las kvennabókina lians gaumgæfi-
lega, og gerði svo allt þveröfugt við
það, sem hann hafði ráðlagt. Átti ég
að reyna að sigra hann með hans
eigin vopnum, eins og allt annað
kvenfólk hafði reynt? Það var óhugs-
andi. Það hefði verið að gefa bakara-
barninu brauð. *
ÝMISLEGT SMÁVEGIS. — Þa er fyrst
köflótt regnhlíf og klútur, rauð nell-
ika í dökkt hárið, yndislegur gim-
steinn, stór málmklemma og perlu-
saumað fiauelsband, hár kragi úr
kanínuskinni bundinn með böndum
úr sama efni og kjóllinn og fyrir þær
sem eru í skyrtublússum, hnappar í
ermarnar og útsaumur á líningarnar.
Að lokum málmarmbönd með skraut-
hengi við lásinn.
inn á herberginu lians — það var
landssíminn frá Róm. Errol þreif
simann fokvondur og öskraði: „Ég
vil ekki láta trufla mig! Og auk þess
er konan mín sofandi hérna i næsta
rúmi.“ En svo óheppilega vildi til
að það var rétta konan hans, Pat
"Wymore, sem var i simanum.
—O—
Eisenhower forseti fær kringmn
18000 hótunarbréf á ári. Þau eru les-
in með mikilli gaumgæfni af hlutað-
eigandi lögreglustofnun, sem telur að
kringum þúsund bréfanna séu skrif-
uð i alvöru, en 17.000 „meinlaust
grín“.
—O—
Stærstu vöruskemmur i heimi eru
í Collingwood Dock í Liverpool. Þær
eru 14 hæðir, og gólfflöturinn samtals
1.440.000 fermetrar.
—O—
Hæsti reykháfur í 'heimi er hjá
Anaconda koparbræðslunum í Mont-
ana í Bandaríkjunum. Hann er hlað-
inn úr múrsteini og er 180 metra hár.
—O-
Vitið þér...?
að milljónir fjölskyldna eru í
húsnæðisvandræðum?
Mannfjölgunin í heiminum er ekki
eina ástæðan til húsnæðisvandræð-
anna, heldur iíka hitt, að svo margir
flytja úr sveitum til borganna. Aldrei
hefir verið byggt meira en nú. Árið
1938 voru 85 milljón tonn af sementi
notuð til húsabygginga, en síðasta ár
yfir 190 milljón tonn.
að indverski fíllinn er að ganga
fyrir ætternisstapa?
Ástæðan til þessa er hvorki sú að
þessi fílategund sé að úrkynjast né
að hann tímgist ekki eins og áður,
heldur lireint og beint sú, að fíllinn
er smám saman hrakinn burt úr rnestu
rigningarsvæðunum, þar sem hann
fékk nóg að éta, þvi að mennirnir
leggja þessi svæði undir sig og rækta
þau. Þessir stórgripir, sem þurfa mik-
ið fóður, hafa þvi hrakist til þurrari
svæða, en þar fá þeir ekki fylli sína.
að kínverskir læknar fá enga
þóknun þegar sjúklingar eru
veikir?
í flestum löndum er læknis vitjað
þegar maður er veikur, og fær lækn-
irinn þá borgun fyrir starf sitt. En
i Kína hefir fólk húslæknir og borgar
honum ákveðið kaup svo lengi sem
allir á heimilinu eru heilbrigðir. En
verði einliver veikur fær læknirinn
enga borgun fyrir þann tíma, sem
sjúklingurinn er veikur.