Fálkinn


Fálkinn - 15.11.1957, Síða 11

Fálkinn - 15.11.1957, Síða 11
FÁLKINN 11 LITLA SAGAN ífbrydi Amos Duncan var sjúkur af afbrýði og gerði bæði sér og Betty Hurst unn- ustu sinni lífið að kvöl. Síðan þau kynntust fyrst bafði hann njósnað um bvert liennar spor og oft hellt úr skálum reiði sinnar yfir hana, fyr- ir engar sakir. Betty þótti vænt um Amos, og lang- lundargeði Ihennar var það að þakka, að ekki hafði slitnað upp úr trúlofun- inni fyrir löngu. Aðrar stúlkur en Betty mu'ndu hafa séð það fyrir, að þetta mundi enda með skelfingu, cn hún vonaði að það lagaðist þegar þau væru komin í hjónabandið. Amos hafði litla íbúð í 46. stræti. Norma systir hans sá um heimilið fyrir hann. Hún var þrem árum yngri en Amos, lagleg stúlka og góðkunn- ingi Bettyar. Þau voru oft saman, þrjú, ýmist i kvikmyndalhúsi eða leikhúsi — eða þau sátu saman lieima lijá Amos. Svo bauð Amos eitt sinn Pete God- frey vini sínum heim með sér, og þá stóð ekki á stöku. Þeir unnu saman á bílaverkstæði, og Amos sá strax að Pete leist vel á systur hans. Norma og Pele voru fljót að kynn- ast og innan halfs mánaðar var auð- séð, að þarna var um meira en kunn- ingsskap að ræða. Þau áttu margar ánægjustundir saman, öll fjögur, og jafnvel kom það stundum fyrir að Amos gleymdi af- brýðinni. En Betty kveið fyrir þvi, að kannske mundi afbrýði hans von bráðar bitna á Pete Godfrey, sem var bæði lagleg- ur og skemmtilegur. Godfrey vissi hins vegar um þennan veikleika Amosar og varaðist að gefa honum tilefni til að skipta um ham. Hann var kurteis og alúðlegur við Betty, cn heldur ckki meira. En svo kom reiðarslagið. Norma og Godfrey höfðu þekkst i þrjá mánuði og kom saman um að mál væri komið til að opinbera trúlofunina. Betty og Amos vissu ekkert um þessa ráðagerð. Öllu átti að halda leyndu þangað til þau liefðu verið í leikhúsi og væru komin heim til Amosar. Amos var í slæmu skapi i leikhús- inu. Honum gramdist að Godfrey hafði fengið sæti við hliðina á Betty, annars var hann vanur að sitja sjálf- ur milli stúlknanna. Var eitthvað á milli Godfreys og Bettyar? Og ekki bætti það úr er Godfrey tók Betty undir arminn eftir sýninguna er þau fóru út. Betty var fljót að kippa að sér hendinni, liún vissi að aldrei var of varlega farið. Norma liafði ágætt kvöldborð dúk- að lieima og bauð kokkteil fyrir mat- inn. Amos staupaði sig vel — drakk fjögur glös, en ekki batnaði skapið við það. Samtalið yfir borðum gekk tregt. Amos svaraði aðeins með eins alkvæðisorðum, þegar yrt var á hann. Hann átti flösku inni i herberginu sínu og var að skjótast þangað og staupa sig. Hann var loks orðinn á- berandi svínkaður. í sömu svifum sem Godfrey og Norma höfðu ætlað að fara að opin- bera gleðifregnina stóð Amos upp rið- andi, og tautaði eitthvað um að hann yrði að skreppa niður á hornið og ná i meira af vindlingum. Hann fór inn í herbergið sitt í leiðinni og fór i frakkann. Sjálfur vissi liann varla livað hann ætlaðist fyrir. Hann stóð lengi í portinu áður en hann hætli sér út í rigninguna. 1 liuga hans flögruðu Betty og Godfrey. Allt í einu heyrði hann Godfrey lilæja uppi í stiganum. Hann kúrði sig úti i horni, með skammbyssu í hendinni. Og á næsta augnabliki sá hann Betty og Godfrey koma niður í portið. Þau leiddust. Og nú laut Godfrey að Betty og kyssti hana. Blóðrauð þoka lagðist fyrir augun á Amos. Hann lióf byssuna á loft og skaut ölluni skotunum úr henni á þau. Hann sá þau hníga niður. Og svo skrefaði hann yfir líkin og liljóp upp í íbúðina. Með skjálfandi höndum náði hann lyklinum úr vasanum og opnaði. Dyrnar úr ganginum og inn í stofuna stóðu opnar. Og þar inn sat Betty! Amos var sannfærður um að hann væri orðinn brjálaður. — Ert þú hérna? hvíslaði hann og hrökk við er hann sá sjálfan sig í speglinum á þilinu. — Já, hv&r þélstu að ég væri? svar- aði Betty rólega. — Godfrey og Norma fóru út lil að skyggnast eftir ]iér. Ég lánaði Normu kápuna niína og regn- htifina — hún hafði skilið sína eftir á skrifstofunni. Það- þótti tíðindum sæta í Holly- wood fyrir nokkru, að kvikmynda- dísin Rhonda Fleming var farin að bera út blöð. Hún ók í lúxusbílnum liús frá húsi og skilaði morgunblöð- unum. Svo stóð á, að strákur hennar lier út blöð. en hafði veikst, og sam- kvæmt ameriskri venju bera foreldr- ar ábyrgð á útburðinum, ef börn þeirra geta ekki aðstaðið. Akihito krónprins Japana er orð- inn 23 ára. Hann er ókvæntur ennþá og lifir í höll út af fyrir sig með miklu þjónaliði. Foreldra sína fær hann ekki að sjá nema við hátiðleg tækifæri. Hann fær 500 yen, eða sem svarar 25 krónum i vasaþeninga þeg- ar hann skreppur eittlivað út sér til upplyftingar. Gina Lollobrigida tiafði 30 milljón lira tekjur árið sem leið og svarar það til rúmlega 700 þúsund króna, og er 14 milljónum líra meira en Sophia Loren hefir i tekjur. Tekjuhæstu ítal- ir, þeirra er hafa atvinnu af kvik- myndum, eru Victor de Sica, sem hafði 56.6 milljón lirur í tekjur, og skopleikarinn Toto — réttu nafni 'heitir liann Antonio Curtis og er prins — sem hafði 35 mitljön líra tekjur. ★ Tískumifnrfir ★ SÝNIÐ BAKSVIPINN. — Nú eru kjólarnir flestir sléttir að framan og verður því að sjálfsögðu að gjöra eitt- hvað fyrir baksvipinn. Eitthvað sem ltemur á óvart. Patau hefir valið vítt gúlpandi bak á bláa ullarkjólinn. Svo er hér kvöldkjóll úr ull og silki með mjög sniðugu balti. Hann er frá Catheriene Sanve. IIAUSTTÍSKA. — Af öllum sýnishorn- um hausttískunnar er þessi kjóll frá Pierré Balmain einn hinn fegursti og nothæfasti. Hann er stálgrár, „falskt“ tvískiptur með handsaumuðum legg- ingum á kraga, mjaðmavösum og pilsi. Við kjólinn er notað þríhyrnt sjal, lagt með hlébarðaskinni og handaskjól úr sam efni. Án þess að nota dýrt skinn getur kjóllinn verið fallegur. Vitið þér...? að enn lifa milljónir stríðsflótta- manna í sárri neyð? Sumir þeirra eru flóttamenn úr fyrri heimsstyrjöldinni og vegna bylt- inga þeirra, sem urðu í sambandi við hana, en langflestir hó vegna siðari styrjaldarinnar. I löndunum við mið- jarðarliafsbotn eru um milljón ara- biskir flóttamenn. að sjónvarp litmynda vcrður al- þjóðlegt frá byrjun? Einn af erfiðleikunum á alþjóð- legri samvinnu um núverandi sjón- varp, er sá að löndin nota hvert sitl tæknilega heiti á ýmsu því er þessari uppgötvun viðvíkur. — Nú cr sjón- varp litaðra mynda í upp siglingu og hafa þegar verið gerðar ráðstafanir til, að öll tækniheiti ])ess verði sam- ræmd og sömuleiðis vélaútbúnaður- inn. að „froskmenn“ eru látnir leita að olíulindum á hafsbotni? Allvíða er vitað um oliillindir und- ir hafsbotni, svo sem í Mexikoflóa. Til þess að rannsaka hvar borunar- turnum verði best koniið fyrir, eru jarðfræðingar, sem lært hafa „frosk- niannaköfun" sendir niður á liafsbotn. Þeir visa á hentugustu staðina.

x

Fálkinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.