Fálkinn - 03.10.1958, Side 10
10
FÁLKINN
BÆNQST KLUMPUR
Myndasaga fyrir börn
115.
— Þetta er meiri hraðinn! Heyrðu,
Skeggur, þú ert gamall sjómaður og hlýtur
að geta gefið skýringu á þessu! — Nei, ég
man ekki einu sinni til að svona kæmi fyrir
i Biscayaflóanum.
— Hvert í heitasta! Við höfum verið étnir af hval! — Eg skal útskýra þetta þegar ég næ
andanum aftur. •— Lítið þið á ■— ég skaust og ætlaði að ná mér í fisk, en þá hrutuð þið með
líka. Þið verðið að afsaka það. En ég hefi aldrei andað að mér verra lofti. Þú verður að fá
betra tóbak, Skeggur.
— Það var svei mér gott að þú ást okkur ekki, því að við erum •— Gerðu svo vel, hérna eru fiskarnir þinir. Annars ætluðum við að
á leiðinni upp á hæsta fjall í heimi Hvað segirðu — ertu glorhungr- nota þá i plokkfisk, en við sleppum því. Þú hefir veitt þennan mat
aður. Já, við tókum líka mikið af mat úr maganum á þér, en bíddu sjálfur, og þess vegna ertu vel að honum kominn.
hægur, við skulum ráða bót á því.
— Vertu nú sæll, Hvalur minn, og gættu betur — Húrra, þarna kemur einhver,
að þegar þú andar að þér næst. Nú sigium við áfram1 við skulum spyrja hann til vegar og
á hæsta fjall í heimi. — Já, gerðu það, Pingo. Beint hvað klukkan sé, og hve langt sé til
af augum og ofurlítið til vinstri. jólanna.
— Þetta er fallegt skip. Segl og stýrissveif og
sumarhús á þilfarinu. Á ég að fara að hrópa góðan
daginn til þeirra?
ÞRUMUR OG ELDINGAR.
Það er ekki algengt að upplifa
þrumuveður Þér á landi. En á Norð-
urlöndum er það algengt. Sumum
finnst kannske bara gaman að því aS
standa við gluggann og horfa á leiftr-
in frá eldingunum. En sumir verða
hræddir.
Þrumurnar geta líka veriS hættu-
legar ef maður hagar sér óskynsam-
lega.
Hvað eigum við þá að gera, eða
hvað megum við ekki gera þegar
þrumuveSur er? Fyrst og fremst eig-
um við að reyna að komast í húsa-
skjól.
En maður má ekki standa nærri
ofni, miðstöSvarofni, síma, útvarps-
tæki og eklci vera í baðklefanum. Ör-
uggast er að standa i miðri stofunni.
— Sé maður úti á viSavangi á maSur
aS varast aS standa undir tré. Best
er að leggjast fyrir, t. d. á skurðbakka.
Og eitt skuluð þið varast: að fara
i bað, hvort heldur er úti eða inni
meðan á þrumuveðri stendur.
Vísindamennirnir hafa reynt að
komast að ástæðunum fyrir þrumum
í nær tvær aldir, en það er ekki fyrr
en eftir síðari heimsstyrjöldina, sem
menn hafa getaö gert sér grein fyrir
hvað gerist þegar þrumuveður geng
ur yfir.
Þrumuský, sem kölluð eru, hafa
safnað í sig neikvæðu rafmagni. Þeg-
ar þau líða um loftið yfir jörðinni
draga þau að sér jákvæða rafmagnið
úr jörðinni. Jákvæða rafmagnið teitar
upp gegnum lnis og jarSargróður til
að sameinast neikvæða rafmagninu í
þrumuskýinu.
Fyrst koma „leitunareldingar“ frá
skýinu niður að jörðinni. Þær komast
ekki nema svo sem tiu metra út úr
skýinu, en mynda eins konar göng,
sem næsta elding getur farið. Hún
kemst lengra en sú fyrri, og þannig
heldur áfram koll af kolli þangaS til
eldingin er komin svo nærri jörðinni
að jákvæða rafmagnið frá henni getur
þotið upp, t. d. eftir liáu tré, og sam-
einast neikvæða rafmagninu. Þetta
gerist allt á broti úr sekúndu, og
þruman sem við heyrum á eftir, staf-
ar af því að loftið hrindist úr stað,
með kringum eins km. hraða á sek-
úndunni.
Ljósmyndaplötur af eldingum hafa
sýnt, að þegar okkur sýnist aðeins
ein elding koma, eru þær þrjátíu—
fjörutíu, sem koma hver eftir aðra.
SKRÝTLUR.
Leikkonan var komin inn í fata-
klefann sinn eftir að hafa vakið afar-
mikla aðdáun i leiknum. Sendillinn
kemur inn til hennar með stóran
blómvönd og kramahús með fræi.
— Blómin eru frá manni niðri í
salnum og fræin frá Skota uppi á efri
svölunum. ---
ÞaS var orðið framorðið þegar þeir
komu úr afmælinu, og ekki laust við
að þeir væri svínkaðir. Þeir hringdu
dyrabjöllunni á liúsi einu á Sólvöll-
um, og ung dama kemur út.
— EruS þér frú Jcnsen?
— Já.
— Ágætt! Þá ætla ég að biðja yöur
um að hlcypa Jensen inn. Við erum
nefnilega ekki vissir um hver okkar
er Jensen.
Forsjtórinn: — ÞaS verður einum
manni færra hérna á skrifstofunni frá
næstu mánaöamótum. Þér slciljið
sjálfsagt hvað ég meina?
Olsen: — Hvaða vandræði, for-
sljóri, að þér skuluS ætla aS hætta.