Fálkinn - 03.10.1958, Qupperneq 14
14
FÁLKINN
Lárétt skýring:
1. bústaður skáldsins, 3. fór í gegn-
um, 7. drykkur, 9. vaða, 11. valkyrja,
13. elska, 15. ekki niikið, 17. á skykkju,
19. svefnþurfi, 22. kyn, 24. upphrópun,
26. land í Afríku, 27. hlóðir, 28. klar-
inettleikari, 30. kvenmannsnafn í ísra-
el, 31. framhluti, 33. frumefni, 34.
stök, 36. hreinsa, 37. tvíhljóði, 38.
krydd, 39. deila, 40. forsetning, 42.
seinlegt verk, 44. fljótið, 45. silfur,
46. ósamlyndi, 48. útbú, 50. hey, 52.
blundur, 53. dauf í dálksinn, 55. leik-
rit, 56. skemmd á túni, 57. lúkur, 59.
ýlfur, 61. stafur, 63. spilið, 65. vökvi,
67. oflitið, 68. lokaþáttur i skóla, 69.
hulla, 70. niðurlagsorð.
Lóðrétt skýring:
1. tré, 2. rák, 3. ólifnaður, 4. kvart-
ett, 5. nálægt, 6. koma að haidi, 7.
stefna, 8. sundgarpur, 10. til hægri,
12. hreinsunartæki, 13. fiskur, 14.
reikningsmerki, 16. rifa, 18. fyrir
sjálft sig, 20. maður, 21. gagnleg, 23.
lágfóta, 25. háll, 27. fyrirtæki, 28.
fuglar, 29. fimur, 31. hreppur, 32.
strjúka, 35. sverð (þf.), 36. langá i,
41. lengdareining, 43. unglingsstúlka,
45. vindill, 47. bungu, 48. litu, 49.
gæfa, 51. móti, 53. töframaður, 54.
steinn, 56. verslun, 57. fjatlalækur,
58. stórborg, 60. gyðja, 62. efni i torf-
veggi, 64. eldavél, 66. tvihljóði, 67.
leðurreim.
LAUSN Á SfÐUSTU KROSSGÁTU.
Lárétt ráðning:
1. Java, 3. nánös, 7. skip, 9. fjör,
11. strý, 13. flot, 15. tóni, 17. nýr, 19.
Bryndis, 22. lás, 24. sag, 26. algáð, 27.
öll, 28. hamur, 30. ilm, 31. ástin, 33.
an, 34. fas, 36. ask, 37. te, 38. .pukur,
39. eldur, 40. bú, 42. nem, 44. SÍS,
45. Sn, 36. orgel, 48. ell, 50. staka, 52.
Als, 53. greip, 55. óma, 56. fló, 57.
ýlustrá, 59. ull, 61. pota, 63. ísar, 65.
Kata, 67. amar, 68. Númi, 69. aftra,
70. gæra.
Lóðrétt ráðning:
1. járn, 2. afl, 3. nötra, 4. ár, 5. ös,
6. stríð, 7. sýn, 8. pass, 10. Job, 12. rós,
13. Fram, 14. öngla, 16. illt, 18. ýsan,
20. yli, 21. dám, 23. álit, 25. Guðunes,
27. öskustó, 28. Hambo, 29. Rakel, 31.
Ásdís, 32. nefna, 35. sum, 36. Als, 41.
Ural, 43. Blesi, 35. skal, 47. glóp, 48.
eru, 49. lit, 51. Amur, 53. giata, 54.
príma, 56. firn, 57. ýta, 58. Ása, 60.
lúta, 62. oki, 64. arg, 66. af, 67. ar.
Frá frímerkjasýningunni í Bogasalnum.
Fyrsta frímerkjasýnmgin hérlendis
Síðastliðinn laugardag var opnuð í
Bogasal Þjóðminjasafnsins fyrsta frí-
merkjasýningin, sem haldin hefir ver-
ið hér á landi. Ber hún nafnið „Frí-
mex 1958“. Sýningu þessari er í fyrsta
iagi ætlað að kynna fólki helstu frí-
merkjasöfn, sem hér eru til, og í öðru
lagi að vekja áhuga manna á fri-
merkjasöfnun og gildi liennar.
Alls eru frímcrki sýnd í 122 römm-
um, sem er komið mjög smekklega
fyrir i Bogasalnum, alls i fimm deild-
um, þ. e. íslensk frímerki, Erlend frí-
merki, Flugfrimerki, „Motive“-frí-
merki og Umslög. Þá cr i forsal Þjóð-
minjasafnsins sýning póststjórnarinn-
ar á öllum íslenskum frímerkjum,
sem út hafa komið Er það safn utan
samkeppni frímerkjasýningarinnar.
Sýningin verður opin að minnsta
kosti í liálfan mánuð. í sambandi við
hana er söludeild þar sem liægt er
að fá keypt nýju hestafrímerkin á-
límd á umslög með sérstimpli sýn-
ingarinnar og fleira fæst þar einnig.
Á kvöldin verða sýndar kvikmyndir
og haldnir fræðslufyrirlestrar um
frímerki og frimerkjasöfnun.
Verðlaun hafa verið veitt á sýning-
unni fyrir bestu söfnin í hverri deild.
Fyrstu verðlaun i flokknum „íslensk
frímerki" hlaut Brynjólfur Sveinsson,
Ólafsfirði, en i safni hans eru nær öll
istensk frimerki frá upphafi, öll ó-
notuð. 2. verðlaun hlaut Karl Þor-
steins. — Guðmundur Árnason hlaut
fyrstu verðlaun fyrir erlend frímerki,
en hann á safn norskra frímerkja frá
upphafi og eru öll notuð. 2. verðlaun
hlaut Guido Bernliöft og 3. verðlaun
Karl Þorsteins. — Sigmundur Ágústs-
son og Árni Jónsson eiga best söfn
Aldarafmæli Þorsteins Erlingssonar
Eitt ástsælasta ljóðskáld, sem uppi
hefir verið með þjóðinni, Þorsteinn
Erlingsson, átti aldarafmæli 27. sept.
s.l. Þessa var minnst á ýmsan hátt.
Afhjúpuð var brjóstmynd af skáldinu
að Hliðarendakoti í Fljótslilið, þar
sem Þorsteinn ólst upp í æsku. Nína
Sæmundsson gerði myndina, en
Rangæingafélagið í Reykjavík gekkst
að öðru leyti fyrir undirbúningi
þeirrar hátíðar.
Bókmenntakynning var höfð á
verkum Þorsteins og á afmælisdag-
inn gaf ísafoldarprentsmiðja út
heildarútgáfu af Ijóðum hans, sögurn
og ritgerðum i þremur bindum. Sá
Tómas Guðmundsson skáld um þá út-
gáfu. í fyrsta bindinu er einnig rit-
gerð eftir Sigurð Nordal um Þorstein,
æviferil hans, lífsskoðanir og ljóða-
gerð. „Þorsteinn Erlingsson vildi
kveða fyrir alþjóð manna og seildist
elcki til torveldra yrkisefna,“ segir
Nordal. „Hann var ánægður með að
vera „lærður lítt“ og „leita skammt
til fanga“ i skáldskap sinum eins og
hann kemst að orði um rimnastök-
urnar. Þótt hann ýtti stundum nokk-
uð hastarlega við morgunsvæfum
mönnum, voru honum skáldlegar öfg-
ar fjarri skapi. Hann vildi lýsa þeim
veruleika, sem blasti við lionum,
hvort sem það var fegurð jarðar, til-
finningar hans sjálfs eða meinbugir
tilveru, þjóðfélags og samtíðar, sem
hverjum heilskyggnum manni áttu að
flugfrimerkja og hlutu 1. og 2. verð-
laun. — Sigurður Ágústsson og Ágúst
Sigurðsson hlutu 1. verðlaun fyrir
„Motive“-safn og sr. Jónas Gíslason í
i Vik önnur verðlaun.
Það er Félag frimerkjasafnara, sem
að sýningu þessari stendur, og verð-
ur ekki annað sagt en það fari vel
af stað því það er rúmlega ársgam-
alt. Formaður þess er Guido Bernhöft.
Sýningarnefndina skipa þeir Jónas
Hallgrímsson, formaður, Guðmundur
Árnason og Leifur Kaldal. Fram-
kvæmdastjóri er Þór Þorsteins.
liggja i augum uppi, ef athygli væri
vakin á þeim.“
Kona Þorsteins Erlingssonar, frú
Guðrún, er enn á lífi svo og börn
þeirra tvö, Svanhildur og Erlingur
læknir. Þorsteinn var 56 ára, er hann
lést 1914.
OTTO JOHN FRJÁLS.
Fyrrverandi yfirmaður vesturþýsku
öiyggislþjónustunnar, dr. Otto John
var dæmdur í fjögura ára betrunarhús
árið 1956 fyrir landráð. Hann hvarf
frá Vestur-Berlin 20. júlí 1954 og skaut
uokkru síðar upp í Austur-Berlin, en
í desember 1955 var hann allt í einu
kominn til Vestur-Þýskalands aftur.
Hann gaf þá skýringu, að vinur hans
r.okkur, dr. Wohlgemuth hefði gefið
sér svefnmeðöl og numið sig á burt,
en hæstiréttur Vestur-Þýskalands
neitaði að taka þann framburð gildan,
eftir að hafa yfirheyrt 70 vitni En nú
hefir dr. John verið náðaður.