Fálkinn - 18.03.1960, Blaðsíða 3
FÁLKINN
3
Sinfóníu-
Mjómsveitin
tín úru
UM ÞESSAR mundir er Sinfóníuhljómsveit
íslands tíu ára, en það er einn merkasti við-
burðurinn í tónlistarlífi okkar þegar hún var
stofnsett. Hljómsveitarstarf hafði verið hér tals
vert lengi áður en Sinfóníuhljómsveitin var
formlega stofnuð, en þegar Þjóðleikhúsið var að
taka til starfa tókst samstarf með því og Ríkis-
útvarpinu um að koma á fót ,,fastri“ hljóm-
sveit. Voru ráðnir erlendir menn til að fylla þau
skörð.'sem opin stóðu svo að hljómsveitin mætti
teljast nokkurnveginn fullskipuð. — Nokkur
styrkur til starfsins fékkst frá Reykjavíkurbæ
og síðar ríkinu. Var hljómsveitin rekin á þeim
grundvelli til 1953, en þá varð sú breyting á,
að Ríkisútvarpið tók að sér rekstur hljómsveit-
arinnar og annaðist hann fram á haustið 1955.
Var þá nokkur óvissa um framtíðina og starfið
lá niðri í nokkra mánuði. Síðan var hún endur-
skipulögð og 1. marz 1956 hófst starfið aftur —
og hefur hljómsveitin síðan verið rekin sem
sjálfstætt fyrirtæki. Sjö manna hljómsveitarráð
stjórnar málefnum sveitarinnar, og er Ragnar
Jónsson forstjóri formaður þess, en fram-
kvæmdastjóri hljómsveitarinnar er Jón Þór-
arinsson, tónskáld.
Á þessum fyrstu tíu árum hafa 22 hljóm-
sveitarstjórar starfað með hljómsveitinni. 50
einsöngvarar og einleikarar hafa komið fram með
henni og fimm kórar. Alls hafa verið haldnir
150 opinberir tónleikar í Reykjavík á þessum
árum.
Síðan hljómsveitin var endurskipulögð 1956
hefur hún haldið samtals 77 tónleika í Reykja-
vík og 48 utan Reykjavíkur á 35 stöðum. Auk
þess hefur hún komið fram 175 sinnum í út-
varpinu og 267 sinnum við sýningar í Þjóð-*
leikhúsinu. Þetta jafngildir því, að hljómsveitin
hafi leikið opinberlega 142 sinnum á ári að með-
altali á þessu 4 ára tímabili, eða annan hvern
virkan dag að frádregnum sumarfríum hljóm-
sveitarmanna.
Róbert A. Ottósson stjórnaði fyrstu hljóm-
leikum Sinfóníuhljómsveitarinnar og hefur hann
stjórnað flutningi flestra verka hjá hljómsveit-
inni af einstökum stjórnendum, en sá hljóm-
sveitarstjóri, sem oftast hefur stjórnað opin-
berum tónlistarflutningi hljómsveitarinnar er
dr. Victor Urbancic, sem látinn er fyrir nokkrum
árum. Aðrir innlendir menn, sem stjórnað hafa
hljómsveitinni eru: Dr. Páll ísólfsson, Jóhann
Tryggvason, Páll Pampichler, Albert Klahn og
Ragnar Björnsson, auk þess sem Jón Leifs og
dr. Hallgrímur Helgason hafa stjórnað við sér-
stök tækifæri.
Af erlendum stjórnendum hefur Olav Kiel-
land verið hér lengst og oftast, en hann var
fastráðinn hljómsveitarstjóri um þriggja ára
skeið. Aðrir erlendir stjórnendur hafa verið:
Hermann Hildebrandt, dr. Thor Johnson, Wil-
helm Schleuning, dr. Vaclav Smetacek, Jussi
Jales, Warwick Braithwaite, W. B. Rúggeberg,
Rino Castagnino, Adam Katchaturian, Eugene
Goosens, Hans Zanotelli og Hans Antolitsch.
Myndirnar eru teknar á æfingu hjá Sin-
f óníuhlj ómsveitinni.
★