Fálkinn - 10.06.1960, Blaðsíða 6
6
FALKINN
Wally Castelbarco (t.v.), dóttir Arturo Toscanini, og Manlio Broso,sendi-
herra ítala í USA, óska Callas til hamingju eftir frumsýninguna á „Nor-
ma“ í Metropolitan-óperunni.
MARiA
CALLAS
Maria Callas. Myndin er tekin aj henni á heimili hetmar, þar sem hún
er að œfa hlutverk í „söngstofunni“.
l/iín er shtiss. seyja sttntiv. — En tttirir srt/jjtt: — iltttt t»r tttt»rt/tt»tin. ItttiHttntli.
fttliey oyi stienttniilt»ff. — Off « þeirri shoiitttt er 3MA.HY ii Ufí CMÍEJLÆj*
settt shrifað hefur eftirfarandi yrein.
Þessi mynd er tekin í Feneyjum, á kvikmyndahátíðinni, sem haldin er
þar annaðhvort ár. Frá vinstri: Maria Callas, Battista Meneghini (eftir
útlitinu að dæma, gæti hann verið pabbi hennar) og loks Hollywood-
kjaftakerlingin Elsa Maxwell (sem sýnist gæti verið mamma Battista).
Því er haldið fram, að Elsa hafi með kjaftasögum sínum spillt flein
hjónaböndum í HoUywood en nokkur önnur slúðurkerling eða „blaður-
maður“. Callas taldi hana vinkonu sína, en kannske hefur hún spillt hinu
„ástríka hjónabandi“ Callas, sem segir frá í greininni.
ÞAÐ er ekki nema sjaldan, sem
fólk verður svo hrifið af söng,
að dauðaþögn verði í salnum eftir
að söngurinn hættir, en svo kemur
lófaklappið og fagnaðarópin eins og
þrumuveður á eftir. En þannig er
það, þegar Maria Meneghini Callas
lætur heyra til sín á helztu óperu-
leiksviðum austan hafs og vestan.
Hún er há og grönn og röddin og
persónan sjálf er svo töfrandi, að
þjóðsögur hafa myndazt um hana.
Helmingurinn af því, sem skrifað
er um hana sem „tígrisdýr" óper-
unnar eru staðlausir stafir.
Hún fæddist í New York árið'
1923 í sjúkrahúsi á Fifth Avenue.
Foreldrar hennar voru grísk hjón,
og réttu nafni heitir hún Maria
Anna Cecilia Sofia Calogeropoulos.
Hún sýndi það snemma, að hún
var tónelsk. Þegar hún var átta
ára byrjaði hún að læra á pianó og
fá söngkennslu.
Margar ósannar og fremur leiðin-
legar sögur hafa verið sagðar af
bernsku hennar og uppvexti. Ég
á ýmsa ameríska kunningja, sem
hvessa augim, þegar minnzt er á
hana. Þeir vilja ekki hlusta á mig,
þegar ég segi þeim, að ég hafi þekkt
Mariu í mörg ár og er að reyna að
leiðrétta verstu sögurnar, sem um
hana ganga. Þeir vilja heldur hlusta
á níð og lygasögur .. .
Árið 1937 fór móðir hennar heim
til Grikklands og Maria og systir
hennar fóru með henni. Og Maria
söng í fyrsta skipti í óperunni í
Aþenu. Hún var 15 ára þá og söng
hlutverk Santuzzu í Cavalleria Rus-
ticana. Þetta hlutverk getur borið
margar raddir ofurliði, sérstaklega,
ef þær eru mjög ungar.
En Maria fór að syngja I óperett-
um næst og fékk leikæfingu án þess
að reyná um of á röddina. Einn
bezti koloratursopran heimsins, El-
vira de Hidalgo, tók nú Maríu að
sér og kenndi henni.
Hún lagði mikið að sér næstu ár-
in, en ekki vakti hún sérstaklega
athygli fyrr en hún söng La Gioc-
onda á útisýningu í hringleikhúsinu
í Verona. Þá var hún orðin 23 ára.
Hún vann ekki aðeins stórsigur,
en nú kynntist hún tveimur mönn-
um, sem hvor um sig höfðu mikil
áhrif á framtíð hennar. Annar var
Tullio Serafin, maður, sem þekkti