Fálkinn - 26.04.1961, Blaðsíða 27
Esja og Hekla eru smíðuð í Álaborg.
Farrými eru á hvoru skipi um sig, er
tekur 12 farþega.
☆
M/s Hekla er 1456 br. tonn að stærð,
100 tonnum stærri en nýja Esja. Hún
getur tekið 166 farþega á tveim far-
rýmum, 106 á fyrsta og 60 á öðru.
Þetta voru helztu staðreyndir um
hinn glæsilega skipakost Skipaútgerð-
ar ríkisins. Og vinnandi getraunar
okkar á eftir að kynnast góðri þjón-
ustu og aðbúnaði á Esju — í ferð sinni
hringinn í kringum landið . . .
Hér lýkur getraunmni, „Hvar hefurðu
komið?". Hver er staðurinn að þessu
sinni? Skrifið nafn hans á seðilinn og
sendið síðan alla seðlana átta í lokuðu
umsíagi til FÁLKANS, póstholf 1411,
merkt: Getraunin.
Myndin efst til vinstri er af Guðjóni Teitssyni,
framkvæmdastjóra Skipaútgerðarinnar, — en
hinar tvær eru svipmyndir af Esju.
Um síðasta staðinn segjum við aðeins þetta: Hann er á
Norðurlandi og frá honum er fagurt um að litast: fjörð-
ur víður og blár fram undan, höfði gnæfandi norður
undan í nærsýn, fræg eyja í norðvestri. Beint í vestri
hefst Tindastóll við himin ...
STAÐURINN ER
NAFN
HEIMILI
FALKINN
21