Fálkinn - 26.04.1961, Side 33
það skiptið, en svo auðsveipur var hann
eingum öðrum. Hér er ekki hægt um
vik að segja hve leingi Elís dvaldi í
Reykjavík, en um þessar mundir var
hann úngur maður; tók hann um síðir
á sig rögg og sigldi til Danmerkur.
Hóf hann járnsmíðanám í Kaupmanna-
höfn. Einnig þaðan fara af honum slags-
málasögur. Eitt sinn kom hann ölvaður
til smiðjunnar. Reiddist húsbóndinn og
ætlaði að ljósta hann með kaðli, en Elís
varpaði honum á smiðjugólfið. Hlupu
þá til allir járnsmíðasveinarnir og
gripu Elís, en hann barði þá og fleygði
víðs vegar um smiðjuna. Missti hann
sjón á öðru auga í átökum þessum. Oðru
sinni deildi hann við pilt einn í smiðj-
unni; veittust þá að honum sex Danir,
en hann hafði nær drepið þá, er menn
komu til og komu í veg fyrir frekari
ófrið.
Að lokinni dvöl sinni í Höfn sigldi
Elís heim. Settist hann að í Stykkis-
hólmi og tók að stunda járnsmíðar. Oft
dvaldi hann þó hjá séra Jóhanni Bjarna-
syni aðstoðarpresti að Helgafelli, og voru
þar oft drykkjur stórar.
Eitt sinn kom hann að Helgafelli og
var ölvaður. Jóhann prestur sat í stofu
við annan mann, og er ekki ótrúlegt
að þeir hafi haft eitthvað í kollinum
líka, því þegar þeim var borið kaffi,
skvettu þeir sjóðandi kaffinu úr boll-
unum í andlit Elísi. Elís flaug þegar
á prest, sem var kraftamaður mesti.
Veitti hinn gesturinn presti lið, en svo
fór, að Elís gekk frá þeim báðum blá-
um og blóðugum.
★
Sæmundur hét maður, sonur Sigurð-
ar stúdents Sigurðssonar í Geiteyjum,
mikils aflraunamanns. Sæmundur flutti
í Stykkishólm um sama leyti og Árni
Thorlacíus hóf þilskipaútgerð þar; gerð-
ist Sæmundur þá skipasmiður og hafði
atvinnu af útveg Árna eins og smiðum
var títt þar um slóðir. Sæmundur var
glímumaður mikill og hraustmenni og
vandvirkur og hraður til smíða sinna.
Ærið var hann drykkjugjarn, en skap-
stilltur svo, að hann kom hvarvetna
fram með friði, þótt drukkinn væri.
Guðrún hét kona á Helgafelli, er sögð
var nokkuð fíngralaung, og var kölluð
Gunna patína eftir að hafa tekið í óleyfi
af kaleiknum í Helgafellskirkju. Hún
eignaðist barn og kenndi það Elísi Odds-
syni. Nú bar svo til, að Elís kom til
messu að Helgafelli. Krafðist séra Jó-
hann þess að hann játaði faðerni barns-
ins, en hann harðneitaði því. Báðir voru
vel hýrir af víni. Fór nú guðsþjónusta
fram, en eftir messu biðu prestur og
Elís ekki boðanna og slógust grimmi-
lega. Hafði Elís betur og tróð presti
upp fyrir kistu og þjarmaði þar að hon-
um. Kom þá Sæmundur skipasmiður og
forðaði presti frá bráðum bana, og þótti
það vel gert.
Séra Pétur Pétursson fékk Helgafell
1837. Hann var ættaður úr Skagafirði
og dvaldi um hríð í Húnavatnssýslu.
Frh. á næstu síðu.
HVAÐ GERI8I í
aifiiiíimi
STJÖRNUSPÁIN
Hrútsmerkið:
Velviljuð manneskja mun gefa yður gott ráð, sem mun
áreiðanlega borga sig fyrir yður að fylgja. Á föstudag ber-
ast yður fréttir, sem létta skapið mjög og gera það að
verkum, að þér sjáið ástæðu til að gleðjast ríkulega. Varizt
léttlyndi og kæruleysi í peningamálum!
Nautsmerkið:
Það liggur eitthvað í loftinu og eftir stjörnunum að dæma
gerist eitt.hvað á sviði tilfinningalífsins. Gætið þess vel að
láta ekki tilfinningasemina hlaupa með yður í gönur. Ofur-
lítill misskilnnigur annað hvort heima eða á vinnustað krefst
skjótrar leiðréttingar.
Tvíburamerkið:
Sýnið fyllstu varfærni í hegðun yðar þessa viku og gefið
engin bindandi loforð. Yður býr eitthvað í brjósti, en þér
eruð ekki sjálfur viss um hvað það er. Sýnið vináttu öllum
sem umgangast yður. Þá verða samskipti yðar við aðra
árekstralaus.
Krabbamcrkið:
Eigingjörn manneskja kemur í veg fyrir, að þér fáið
brýnni þörf svalað. Látið ekki troða yður um tær og reynið
af fremsta megni að ná rétti yðar og því fyrr því betra.
—- Nátengdur maður, esm þér hafið lengi hugsað til og
vænzt, boðar komu sína í lok vikunnar.
Ljónsmerkið:
Þér gætuð leyst af hendi fleiri og vandasamari verk-
efni, ef þér gætuð lært að einbeita yður og stjórna vel þeim
mönnum, sem þér hafið yfir að ráða. Þér eruð góðgjarn
og meinlaus, en ekki laus við skap svo að yður ætti að
takast að kippa þessu í lag á skjótan hátt.
Jómfrúarmerkið:
Vikan hefur upp á mörg og glæsileg tækifæri að bjóða.
Þér eignizt riýja kunningja í vikunni, en gætið þess, að
þeir kynnist yður ekki of fljótt og of vel. Ef þér gerið það
ekki, munu sumir þeirra gerast óþolandi ágengir og uppá-
þrengjandi.
V ogarskálarmerkið:
Lífið yrði yður mun léttbærara, ef þér þyrðuð að treysta
samstarfsmönnum yðar. Það er vissulega gott og blessað
að hafa álit á sjálfum sér og treysta engum betur. En því
aðeins koma samstarfsmenn yðar að gagni, að þér sýnið
þeim traust og lát.ið þá vinna ofurlítið sjálfstætt.
Sporðdrekamerkið:
Verkefni vikunnar krefjast mikils undirnbúnings og það
ríður á fyrir yður að vinna vel og láta ekkert vera tilviljun
háð. Gætið yðar í vikulokin. Það getur verið að þér lendið
í því að særa góðan vin yðar algerlega óviljandi. Aðgát skal
höfð, — eins og þar stendur.
B o gmannsmerkið:
Það er útlit fyrir svolít.ið óveður á heimili yöar í næstu
viku. Hafið taumhald á skapi yðar og þá slotar óveðrinu
og aftur kemst kyrrð á og samkomulagið verður jafnvel
ennþá betra en það var áður. Brátt þurfið þér að taka
ákvörðun, sem mun hafa mikla þýðingu fyrir allt líf yðar.
Steingeitarmerkið:
í þessari viku mun sannast máltækið góða, að eins dauði
er annars brauð. Óstundvísi ákveðins manns mun valda því,
að þér fáið gullið tækifæri upp í hendurnar. Þér hafið löng-
um haft næmt nef fyrir peningalykt, og þess vegna grípið
þér gæsina, og hagnizt geypilega á fyrirtækinu.
Vatnsberamerkið:
Mótlætið gengur eins og rauður þráður í gegnum næstu
viku. Hún verður yður sannarlega þung í skauti. Afsökun sú,
sem þér hafið treyst að tekin yrði góð og gild, reynist hald-
lítil og raunar einskis virði, þegar allt kemur til alls. Þér
verðið að horfast í augu við staðreyndirnar og taka afleið-
ingum gerða yðar.
Fiskamerkið:
Einn af stærstu óskadraumum yðar er í þann veginn að
rætast. Til mála getur komið að þér takizt á hendur snögga
ferð til útlanda í ákveðnum erindagerðum. Sérstök guðs
gáfa, sem þér eruð gæddur, kemur sér einstaklega vel fyrir
yður í þessari ferð.
fflHBHMHH
21. MARZ —
20. APRlL
21. APRlL —
21. MAl
22. MAl —
21. JÚNl
22. lÚNl —
22. IÚLI
23. IÚLI —
23. AGÚST
24. AGÚST—
23. SEPT.
24. SEPT. —
23. OKT.
24. OKT. —
22. NÓV.
23. NÓV. —
21. DES.
22. DES. —
20. IAN.
21. IAN. —
19. FEBR.
20. FEBR. —
20. MARZ